Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 17
1.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 ekki síst eftir að einhver óprúttinn netverji komst í mynd- bandið og skeytti við það þemalaginu úr teiknimyndunum „Sögur úr Andabæ“. Kvennabanni Írana aflétt – í bili Íranar unnu dramatískan og sögulegan sigur á Marokkó í fyrsta sigurleik sínum á HM síðan 1998 þegar eina mark leiksins kom á 95. mínútu. Á áhorfendapöllunum mátti einn- ig sjá vísi að öðrum sögulegum sigri þar sem áhangendur liðsins héldu meðal annars uppi stórum borða sem á stóð #NoBan4Women. Myllumerkið vísaði til þess að allt frá byltingunni 1979 hafa íranskar konur ekki fengið að fylgj- ast með knattspyrnuleikjum karla á knattspyrnuleikvöngum – en það átti eftir að breytast. Fáeinum dögum síðar var Azadi-leikvangurinn í Teheran nefnilega opnaður fyrir báð- um kynjum og leik Írana gegn Spáni var sjónvarpað. Ástæða bannsins mun að hluta til sú að trúarleiðtogar telja rétt að vernda konur frá háhreysti og blótsyrðum karlkyns áhangenda. Forseti landsins, Hassan Rohani, hef- ur hins vegar ítrekað gagnrýnt bannið, sem nýtur lítilla vin- sælda meðal almennings. Ekki eru þó allir á sama máli og sagði ríkissaksóknarinn Mohammad Jafar Monazeri að mál- ið væri skammarlegt. „Sumar kvennanna tóku slæðurnar af höfðum sér og hófu að syngja og dansa,“ sagði hann. „Þetta er vanvirðing við píslarvotta okkar og svik við byltinguna.“ Erfitt er að segja til um hvort blandaðir leikvangar séu komnir til að vera í Íran en knattspyrna hefur lengi valdið yfirvöldum erfiðleikum. Þegar landsliðið vinnur leiki þeysa bæði konur og karlar á götur út, syngjandi og dansandi, og lögreglan má sín lítils gegn skaranum enda alls ótækt að handtaka heila þjóð. Frægasta aðdáandanum úthýst Ef einhver getur eignað sér titilinn frægasti knattspyrnu- áhangandi heims er það hinn spænski Manolo El del Bombo. Hann heitir réttu nafni Manuel Cáceres Artesero en gælunafnið vísar í bassatrommuna „El bombo de Esp- aña“ sem ferðast með honum á alla leiki spænska landsliðs- ins. Bassatromman er ekki eina sérkenni Manuels, en hann er auðþekkjanlegur af klæðaburði sínum sem inniheldur meðal annars alpahúfu frá Baskalandi og rauða treyju merkta númer tólf. Manuel og tromman góða hafa mætt á síðustu 10 heims- meistaramót karla í knattspyrnu. Þau voru á sínum stað í fyrsta leik Spánverja en síðan þá hafa öryggisverðir meinað Spánartrommunni inngöngu í stúkurnar. Manuel er eðlilega í öngum sínum vegna málsins og hefur biðlað til spænska knattspyrnusambandsins og jafnvel Rússlandsforseta eftir aðstoð „Pútín, vinur, hjálpaðu vini,“ sönglaði hann fyrir fjöl- miðlamenn eftir æfingu spænska liðsins í liðinni viku og felldi jafnvel tár. Óvíst er að þau nái að bræða téðan vin enda hefur forsetinn litla ástæðu til að aðstoða Spánverja fyrir næsta leik þeirra. Sá er nefnilega gegn Rússlandi og fer fram í dag, sunnudag. Helsta baráttumál íranskra stuðningsmanna er að konum verði leyft að horfa á karla leika knattspyrnu. AFP Manolo El del Bombo fylgir spænska landsliðinu á öll stórmót. Svisslendingurinn Xherdan Shaqiri fékk bágt fyrir fagn sitt gegn Serbíu enda þótti það lykta af pólitík. Víkingaklappið ber nafn með rentu enda rændu Íslendingar iðjunni af skosku félagsliði. Kólumbíumenn fagna mörkum iðulega með samhæfðum salsasporum sem kallast „salsa choque“.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.