Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018 VIÐTAL Þ að er alveg klárt,“ segir Vincent Kompany þegar hann er spurður hvort belgíska landsliðið á HM í Rússlandi og þjálfarateymið sé það besta frá því hann kom fyrst inn í hópinn. „Þetta er sama liðið og fyrir fjórum árum, fyrir utan fáeina leikmenn. Við búum að mun meiri reynslu og höfum unnið marga titla í millitíðinni, hver með sínu félagsliði, sem þýðir að við komum mun lífsreyndari inn í þetta mót. Og það skiptir sköpum í knattspyrnu. Við höf- um reynsluna en erum eigi að síður nógu ungir til að njóta þess sem hæfileikarnir í hópnum geta skilað okkur.“ – Skiptir máli að hafa Thierry Henry í þjálf- arateyminu, upp á reynsluna? „Já, en það er ekki bara hann; heldur teymið í heild. Thierry Henry vinnur vel með leik- mönnum, sem þriðji þjálfari, eða þannig. En það er fyrst og fremst samsetningin, leikmenn og þjálfarar; við höfum dug og þor til að setja á okkur pressu og leggja allt í sölurnar. Í aðdrag- anda mótsins þurftum við að hafa allt á hreinu; hvernig við viljum spila, hvað við ætlum að gera og hver markmiðin eru. Þá líður okkur vel. Í því samhengi er hlutverk Thierrys Henrys mikil- vægt en það á líka við um fleiri reynslumikla menn.“ Titlarnir hver öðrum ólíkir – Þegar þú lítur til baka yfir tímabilið, þá unnuð þið hjá Manchester City meistaratitilinn með afar sannfærandi hætti. Er þetta ánægjulegasti titillinn af þeim þremur sem þú hefur unnið með liðinu? „Þeir eru í eðli sínu hver öðrum ólíkir. Fyrsti titillinn 2012 snerist um karakter og þrjósku. Eftir að hafa verið átta stigum á eftir Man- chester United, undir stjórn Alex Ferguson, tókst okkur að vinna titilinn á síðustu sekúnd- unni í síðasta leiknum. Það voru vatnaskil vegna þess að þetta var fyrsti titillinn í 44 ár. Þegar menn hafa beðið svo lengi hætta þeir að trúa því að þetta sé hægt. Allt sem við höfum gert síðan á sér upphafspunkt í þessu augna- bliki. Þannig að mikilvægasti titillinn var sann- arlega sá fyrsti en núna, þegar við unnum þann þriðja, sýndum við frá fyrsta degi mótsins að við værum verðugir meistarar. Ef ég gæti valið á milli þess að vinna titilinn einu sinni með yfirburðum eða þrisvar á loka- degi mótsins, myndi ég velja seinni kostinn. Hafandi sagt það þá er frábært að hafa fengið tækifæri til að upplifa tímabil eins og þetta síð- asta, vegna þess að við vorum augljóslega best- ir. 2014, þegar við urðum meistarar í annað sinn, hefði Liverpool líka getað unnið. Bæði lið áttu það skilið. Og þegar við unnum fyrst hefði Manchester United einnig getað staðið uppi sem sigurvegari. Að mínu mati var sigur okkar verðskuldaður þá en enginn hefði getað sagt neitt ef United hefði unnið. Að þessu sinni kom hins vegar bara eitt lið til greina.“ – Fékkstu meira út úr þessu tímabili vegna þess að þér tókst að sigrast á margvíslegum meiðslum? „Ég vildi bara vera partur af þessu liði, innan vallar sem utan. Ég var svo lánsamur að gegna hlutverki í vetur og er ánægður með það. En ég horfi líka fram veginn. Það er frábært að vinna deildina en ég vil láta á það reyna hvort við get- um unnið hana tvisvar til þrisvar í röð. Í mínum huga er það stærsta áskorunin á þessum tíma- punkti.“ Alltaf hvattur til náms – Samhliða því að safna þessum meistaratitlum hefurðu náð öðrum áfanga; að ljúka MBA-námi frá Alliance Manchester Business School. Hver var hvatningin á bak við það? „Fjölskylda mín hefur alltaf lagt áherslu á nám. Allar götur hef ég gert mér grein fyrir því að margt getur slitið feril minn sem knatt- spyrnumanns í sundur, svo sem meiðsli. Það var snar þáttur í uppeldinu. Ég elskaði fótbolta og iðkaði hann öllum stundum, þegar ég gat, en foreldrar mínir voru eigi að síður harðir á því að ég héldi áfram í námi. Einmitt þess vegna var ég hjá Anderlecht til nítján ára aldurs, svo ég gæti klárað menntaskóla.“ – Veltirðu fyrir þér á þeim tíma að halda áfram námi, til dæmis í háskóla, meðan þú varst að hasla þér völl sem knattspyrnumaður? „Já, ég sótti námskeið í Brussel og Þýska- landi [þar sem Kompany lék með HSV] en það var of flókið, enda fullt nám. Meðan ég var í Þýskalandi lést móðir mín og þegar foreldri fellur frá fá öll þess orð aukna merkingu. Það varð mér aukin hvatning til að halda áfram á námsbrautinni og í Englandi fann ég pró- gramm sem hentaði mér. Ég segi ekki að það hafi verið auðvelt, en stundaskráin var alltént með þeim hætti að ég gat látið á þetta reyna. Síðan var þetta bara skref fyrir skref, til að sjá hvort dæmið gengi upp. Ég tók þetta bók- staflega hlekk fyrir hlekk og viðurkenni að það var strembið til að byrja með. Smám saman fann ég að þetta varð auðveldara; þannig að með seiglu og einhverri færni tókst mér að ljúka náminu.“ – Hugsaðirðu á einhverjum tímapunkti með þér: Þetta er of erfitt, ég er hættur! „Já, þetta var yfirþyrmandi til að byrja með en ég hafði extra hvatningu vegna áfallsins sem ég varð fyrir. Það var raunar aðalhvatinn öll þessi fimm ár sem ég var í náminu og sú stað- reynd að mömmu hefði eflaust þótt meira til um þetta en feril minn í fótboltanum.“ Lærði að afsaka mig aldrei – Hverfum aftur til ársins 2007, þegar þú varst hjá HSV og bæði móðir þín og systir voru alvar- lega veikar. Hvernig er að horfa til baka á það tímabil og hvernig gekk þér að eiga við þetta á þeim tíma? „Það voru margvíslegir erfiðleikar í lífi mínu á þessum tíma. Staðan var snúin en ég hafði aldrei það val að segja við sjálfan mig: Nú er ég hættur! Þetta kenndi mér þvert á móti að af- saka mig aldrei. Aldrei. Lífið getur verið erfitt en einmitt á þeim stundum er mikilvægt að horfa til þess sem maður hefur. Ég er til dæmis mjög þakklátur fyrir að hafa haft mömmu í mínu lífi í tuttugu ár. Og að systir mín skyldi sigrast á krabbameininu. Sjálfur er ég gæfu- samur að hafa náð mér af mínum meiðslum. Fyrir tuttugu árum hefðu þessi sömu meiðsli mögulega þýtt að ég þyrfti að leggja skóna á hilluna. Allt er þetta hluti af lífinu. Það gæti líka hafa verið verra. Þess vegna sagði ég við sjálfan mig: Þú verður að halda áfram! Aðalatriðið er að setja sér markmið og stefna síðan á þau. Þá breytir engu þótt þú þurftir að vaða gegnum runna, skóglendi eða fen, þú kemst þangað að lokum. Maður verður að halda áfram og það hef ég gert.“ – Eftir fimm ár í námi laukstu mastersprófi með láði og sérstakri viðurkenningu fyrir loka- ritgerðina. Hvernig horfirðu til baka á ferlið í heild? „Þetta var í senn áhugavert og gagnlegt, en afar erfitt til að byrja með. Áður en ég hóf nám- ið hugsaði ég með mér: Þetta er stuttur við- skiptakúrs, þar sem maður þarf að lesa nokkrar bækur og það er allt og sumt. En þetta var al- vöru kennsluáætlun, með allskyns upplýs- ingum. Sjálfsnám með smávægilegri aðstoð. Erfitt. Ég þurfti meira að segja að glöggva mig á því hvernig maður lærir með skilvirkum hætti. Sú kunnátta hafði fokið út í veður og vind, þar sem ég hafði ekki verið í skóla í fimm eða sex ár. Þess vegna byrjaði ég á núlli. Ég var auðmjúkur í nálgun minni og byrjaði á að ráð- færa mig við Google og horfa á myndskeið á YouTube um það hvernig á að læra og nota alls- kyns tölvuforrit. Ég fletti líka upp hraðlestri og ýmsu öðru. Það er magnað hvað hægt er að finna á Google, þegar maður hefur lært að nota það. Fyrir sérhvert þema er myndbrot sem út- skýrir með afgerandi hætti á fimm mínútum hvernig fara á að. Og það færði ég mér í nyt.“ Allir vegir færir – Hefur þroskinn sem þú gekkst í gegnum og í kjölfarið sú staðreynd að þú réðst við verkefnið verið þér innblástur? „Heldur betur. Innblásturinn verður ekki öllu meiri vegna þess að ég var í raun ígildi bak- ara sem vildi verða læknir. Þannig var þetta. Þegar maður hefur lokið við verkefni af þessu tagi líður manni eins og manni séu allir vegir færir. Sé maður tilbúinn að finna tímann, halda ró sinni og vera nógu auðmjúkur til að viður- kenna fyrir sjálfum sér að maður viti ekkert um verkefnið til að byrja með, getur maður í raun gert hvað sem er. Þetta var mjög áhugavert ferli. Nú veit ég hvernig ég á að hegða mér verði ég beðinn um að taka að mér starf á allt öðrum vettvangi. Höfði starfið til mín mun ég bara líta á það í rólegheitunum og meta hvort það tekur mjög þrjú, fjögur eða fimm ár að komast á þann stað.“ – Ef við horfum á mannlega þáttinn, hvað lærðirðu af verkefninu í heild? „Ég fór langt út fyrir þægindarammann, en til þess var leikurinn einmitt gerður. Ég setti mér markmið og vissi að mestu máli skipti að halda mig við efnið. Ég var tilbúinn að taka nauðsynleg skref enda þótt það væri ekki alltaf auðvelt eða skemmtilegt. Margir eiga sér drauma og setja sér markmið en vilja ef til vill ná þeim of fljótt. Fylgi maður réttri braut, kemst maður á leiðarenda, fyrr eða síðar.“ – Kom aginn sem þú býrð að úr boltanum að gagni á erfiðum augnablikum í náminu? „Ekki sérstaklega. Vegna þess að hvatinn spratt fyrst og fremst af persónulegri reynslu sem ég varð fyrir utan vallar. Þess utan hafði ég mikla trú á hæfileikum mínum sem knatt- spyrnumaður en mun minni trú á hæfileikum mínum á öðrum sviðum. Fyrir vikið nýttist reynsla mín úr boltanum ekki við þessar að- stæður. Fótboltinn hefur alltaf snúist um hæfi- leika en eftir að hafa lokið náminu komst ég að raun um að hæfileikar skipta ef til vill ekki eins miklu máli og margur heldur. Það er niðurstaða mín, þökk sé verkefninu sem ég lauk á allt öðr- um forsendum. Í því fólst mikil hvatning.“ Rannsakaði áhrif heimavallarins Lokaverkefni Kompanys í MBA-náminu var að rannsaka hvaða þættir það eru sem hvetja at- vinnumenn í knattspyrnu til að standa sig betur á heimavelli. Rannsóknin sýnir til hvaða grunn- þátta úrvalsdeildarfélögin í Englandi þurfa að horfa þegar kemur að því að meta forskot heimavallarins. Kompany vann faglega grunn- vinnu, auk þess að ræða við 25 fyrrverandi og núverandi úrvalsdeildarleikmenn frá hinum og þessum félögum og kynnti sér afstöðu þeirra. Ein helsta niðurstaðan var mikilvægi góðs and- rúmslofts á völlunum, með áherslu á þungt vægi áhangenda liðanna. Því forskoti má meðal annars ná með því að endurskipuleggja sæta- skipan og endurskoða miðaverðið í því augna- miði að laða að fólk sem er fært um að skapa sem best andrúmsloft. Hvetja ætti fólk í nær- umhverfinu til að horfa á liðin sín enda gæti það bætt andrúmsloftið á völlunum. Kompany færir rök fyrir því að það geti verið meira virði en tekjur af miðasölu, þar sem liðið á meiri mögu- leika á því að standa sig betur, sem aftur vekur meiri áhuga styrktaraðila og sjónvarpsstöðva. Þar liggja tekjur knattspyrnufélaga hvort sem er öðru fremur. – Eru einstakir þættir í rannsókn þinni tengdir, í þeim tilgangi að auka vægi heimavall- arins? „Já, þeir tengjast. Málið snýst um að skapa ákveðið umhverfi. Þetta nær eins langt og menn vilja, reikni þeir út hvers virði eitt auka- stig í úrvalsdeildinni er. Slái menn tölu á það geta þeir borið það saman við verð á hverju og einu sæti á vellinum fyrir sig og það hvar stuðn- ingsmennirnir sitja á vellinum. Niðurstaðan getur verið sú að menn séu að tapa tekjum vegna þess að umgjörðin á vellinum er ekki eins og best verður á kosið enda þótt bókhaldið segi mögulega aðra sögu. Einhverjir eiga örugglega erfitt með að sætta sig við þessa nálgun, vegna þess að auðvelt er að sjá strax áhrifin af hækk- Ígildi bakara sem vildi verða læknir Vincent Kompany er þrefaldur Englandsmeistari með Manchester City og er nú með Belgum á HM. Hann hefur sigrast á margvíslegum meiðslum og sem fyrir- liði hefur hann leitt bæði lið upp í nýjar hæðir. Á umliðnum árum hefur hann þó gert fjölmargt fleira; lokið MBA-námi í Englandi og tekið þátt í félagslegu verkefni heima í Brussel, sem snýst um að gefa ungmennum aukin tækifæri. Arthur Renard info@arthurrenard.nl

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.