Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 35
1.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 BÓKSALA 20.-26. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Sumar í litla bakaríinu við Strandgötu Jenny Colgan 2 UppgjörLee Child 3 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson 4 StormfuglarEinar Kárason 5 KapítólaEmma D.E.N. Southworth 6 Uglan drepur bara á nóttunniSamuel Björk 7 Independent PeopleHalldór Laxness 8 Sagas Of The IcelandersÝmsir höfundar 9 Vegahandbókin 2018Ýmsir höfundar 10 BlóðengillÓskar Guðmundsson 1 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson 2 Risasyrpa – Sniðugar uppfinningar Walt Disney 3 Þegar ég verð stór ætla ég að spila með íslenska landsliðinu Gemma Cary 4 Handbók fyrir Ofurhetjur, annar hluti – Rauða gríman Elias/Agnes Vahlund 5 Risasyrpa Sögufrægar endur Walt Disney 6 Stóra bókin um HvolpasveitinaMary Tillworth 7 Ísland á HMGunnar Helgason 8 Einar Áskell leikur sérGunilla Bergström 9 Vinir Einars ÁskelsGunilla Bergström 10 Vögguvísurnar okkarÝmsir höfundar Allar bækur Barnabækur Ég er nýbúin að lesa Hin óró- legu eftir norska höfundinn Linn Ullmann í þýð- ingu Ingibjargar Eyþórsdóttur. Stórgóð og spennandi bók. Um þessar mundir er ég að lesa skáldsöguna Formaður hús- félagsins eftir Friðgeir Einarsson og hún lofar góðu. Ég ætla næst að lesa Dagbók í Höfn eftir Gísla Brynjúlfsson. Dagbókin er rit- uð á 19. öld en hún kom út á bók árið 1952 svo hún er hvergi sýnileg í bókabúðum, bara á bókasöfnum. Eftir að hafa skoðað ís- lenska bók- menntasögu 19. aldar sá ég að þessa bók þarf ég nauðsynlega að komast í. ÉG ER AÐ LESA Sigurlín Bjarney Gísladóttir Sigurlín Bjarney Gísladóttir er rithöfundur og ljóðskáld. Skáldsagan Meistararnir eftirHjört Marteinsson segir frádrengnum Rósant litla sem fylgir afa sínum og nafna á ímyndað Evrópumót öldunga í frjálsum íþróttum í Finnlandi árið 1972. Í þessum áhugaverða heimi er að finna bráðskemmtilegar mann- gerðir, sterkan tíðaranda og gífur- legt keppnisskap. Heimsmet í nokkrar sekúndur Söguna tileinkar Hjörtur föður sín- um sem hóf rétt undir fimmtugt að mæta í frjálsar íþróttir hjá öldung- unum í Laugardal. „Mig langaði að skrifa um þennan heim sem er lok- aður en skemmtilegur menningar- kimi, fullur af keppnisskapi og mikl- um persónudráttum,“ segir Hjörtur. „Kveikjan að sögunni er þegar Ricky Bruch, eða Rikki brúskur eins og ég kalla hann í bókinni, kem- ur til Íslands á kastmótið í frjálsum íþróttum á Laugardalsvellinum. Þar var pabbi að dæma þegar Rikki set- ur heimsmet sem gamli maðurinn dæmir réttilega ógilt nokkrum sek- úndum síðar. Þetta hafði mikil áhrif á mig á fimmtánda ári og var kveikj- an að sögunni. Ég hef oft pælt í lífi Rikka sem féll frá 2011, svo ég ákvað að nota hann í þessa sögu. Maðurinn sem kom til Íslands og setti heimsmet í nokkrar sekúndur.“ Spjótkast við Kleppsveginn „Ég fékk nasasjón af þessum heimi öldunganna í gegnum pabba,“ segir Hjörtur „Þegar hann skrapp niður á völl var hann alltaf með bindi og í jakkanum sínum, vel tilhafður og snyrtilegur. Svo átti hann til að rífa sig úr jakkanum og taka lóðkast. Það er þessi keppnisandi, viljinn til að ná árangri. Svo voru þessir menn alltaf að leita að góðum vindi fyrir kringluna. Ef það fréttist af góðri lægð í átt að Reykjanesinu þá var farið þangað og slegið upp innan- félagsmóti í Garðinum þar sem kringlurnar áttu til að fjúka ansi langt í rokinu. Pabbi byrjaði sjálfur ekki að keppa fyrr en í kringum fimmtugt. Hann á einhver met í öld- ungaflokki, ábyggilega í kringlu og sleggju en þó ekki spjótinu en það er erfitt að kasta því þegar menn eru orðnir eldri.“ Hjörtur segist sjálfur ekki hafa tekið þátt í frjálsum íþróttum nema sem áhorfandi. „Svo fékk ég aðeins að kasta með pabba. Við vorum oft að kasta spjóti inni á leikvellinum við Kleppsveginn forðum við mis- jafnlega góðar undirtektir íbúa hverfisins, enda var þetta nátt- úrlega spjót á flugi í kringum börn að leik.“ Sterar og blöðrubelgir Þótt bókin sé gamansöm er þar líka harmur. „Margt sem gerist í sög- unni er tragískt og þótt sumt virki kannski klisjukennt þá fannst mér þurfa að vera smá harmur líka. Ég vildi kafa aðeins í þennan lyfja- og dópheim sem er á bakvið glansmynd frjálsra íþrótta á þessum gull- og heimsmeistaramótum,“ segir Hjört- ur. „Þú sérð fullkomið fólk fyrir þér en á bak við eru rannsóknastofur og lyfjaskammtar sem eru meiri en hægt er að ímynda sér. Þetta á ekki bara við í frjálsum. Ég sá suma af þessum kösturum þegar pabbi var að dæma á þessum steratíma og sumir þeirra voru eins og upp- blásnir blöðrubelgir. Það fór mjög illa fyrir mörgum þessara manna.“ Diskar frá öðrum heimum Innan um þjóðlegar lýsingar bók- arinnar bregður einnig fyrir draum- um þar sem eru grískar höggmyndir undir kringlubjörtum himni. „Ég sé fyrir mér þessar kringlur sem menn hafa kastað út í loftið í þúsundir ára eins og stjörnuhröp eða diska frá öðrum heimum. Ég set þætti sem ég hef haft gaman af í aðalpersónuna Rósant litla, en ég hafði fyrst og fremst að leiðarljósi að skemmta mér þegar ég skrifaði bókina. Það er svo mikið til af bókum sem eru mis- skemmtilegar. Það er stundum spurning um tíma og hvort lestur eigi við fólk, en þetta er hverfandi iðja. Veruleikinn í dag er allt annar en árið 1972, hver maður er með sitt litla vélmenni sem er síminn – kær- asta eignin sem geymir alla drauma og vonir.“ Spurður hvað taki við vill Hjörtur ekki gefa of mikið upp en segir að það tengist kannski einhverjum íþróttum. „Ég er með eitthvað í farvatninu sem ég vil ekki segja of mikið um. Ég er með sögu í huga sem á að ger- ast úti í löndum og ég er búinn að vera að smíða smá grind að henni. Svo er líka annað gamalt stöff sem hefur ásótt mann, svo ég er með nóg af ágætis hugmyndum að moða úr.“ Leitað að lægðum Frjálsar íþróttir öldunga eru viðfangsefni nýútgefinnar skáldsögu Hjartar Marteinssonar, Meistararnir, sem lýsir menningarkimanum á glettinn hátt. Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is Hjörtur Marteinsson kveðst vera með nóg af ágætis hugmyndum að moða úr. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.