Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Page 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018
Kalda stríðið, með sínu við-kvæma ógnarjafnvægi ogviðvarandi hættu á útrým-
ingu mannkyns vegna gagnkvæmrar
tortryggni austurs og vesturs, varð
þeim ágæta tónlistarmanni Sting
(sem móðursystir
mín lét mig hlusta
á, lítt áhugasaman
unglinginn) tilefni
til að semja lagið
sitt um „Rúss-
ana“.
Það væri full-
mikið að segja
lagið stórkostlegt
en textinn er
áhugaverður.
Meginstefið er
spurningin um hvort Rússar elski
ekki börnin sín rétt eins og við hin.
Söngvarinn vonar að svo sé, enda sé
þeim þá alveg eins mikið í mun og
okkur hinum að afstýra allsherj-
artortímingu. „Hvorug fylkingin
hefur einkarétt á almennri skyn-
semi,“ syngur hann; „hvað sem líður
hugmyndafræði erum við öll bara
manneskjur – og vonandi elskum við
öll börnin okkar.“
Okkar köldu stríð
Ef við veltum fyrir okkur hvaða mál-
efni hafi á undanförnum áratugum
skipt íslensku þjóðinni í fylkingar,
nánast eins og í „köldu stríði“, eru
virkjanaframkvæmdir á meðal þess
fyrsta sem kemur
upp í hugann. Gjá-
in á milli fylkinga
er iðulega djúp og
illbrúanleg. Al-
gengt er að önnur
segi um hina: „Þið
viljið virkja allt.“
Hin svarar: „Þið
viljið vernda allt.“
Það verður að
segjast vernd-
arsinnum til hróss
að þau hafa almennt ekki knúið fram
þá stefnu að „vernda allt“, í það
minnsta ekki fram til þessa. Þrjár
síðustu virkjanaframkvæmdir
(stækkun Búrfellsvirkjunar sem
gangsett var í vikunni, Þeista-
reykjavirkjun og Búðarhálsvirkjun)
fóru allar fram í ágætri sátt. Upp á
síðkastið hefur það þó orðið áleitin
spurning hvaða næstu virkjanir
verði samþykktar eins greiðlega,
þegar jafnvel lítt sýnilegar fram-
kvæmdir á borð við Skrokköldu-
virkjun mæta andstöðu þrátt fyrir
að tilkvaddir sérfræðingar hafi með
faglegri umfjöllun og einkunnagjöf
sett þær í flokk minnstu mögulegu
umhverfisáhrifa.
Virkjanasinnar hafa að sjálfsögðu
ekki heldur viljað „virkja allt“, í það
minnsta ekki í seinni tíð. Um flesta
virkjanakosti sem búið er að setja í
verndarflokk vegna neikvæðra um-
hverfisáhrifa ríkir fullkomin sátt um
að hrófla ekki við þeirri niðurstöðu,
þótt á fyrri tímum hafi verið uppi
alls kyns hugmyndir sem engum
dytti í hug að mæla með í dag.
Af framangreindu sést að nálar-
auga náttúruverndarsjónarmiða,
sem virkjanakostir þurfa að komast í
gegnum, hefur þrengst. Líklegt er
að þetta sé að hluta til breytt gildis-
mat og varanleg þróun, að mörgu
leyti heillavænleg, en að hluta til
dægursveiflur sem ráðast af efna-
hagsástandinu hverju sinni.
Styðjum faglega nálgun
Það liggur fyrir að við þurfum að
auka orkuframleiðslu til að mæta
þörfum framtíðarinnar. Hvernig
gerum við það? Jú, við höfum komið
því þannig fyrir að í stað þess að
tvær fylkingar standi í sífelldum
hrópum og köllum um hvern virkj-
unarkostinn á fætur öðrum eru lög í
landinu um hvernig við komumst að
niðurstöðu. Við gerum það með
verndar- og orkunýtingaráætlun
(rammaáætlun) sem byggist á fag-
legu mati sérfræðinga. Í framhald-
inu fer svo fram enn ítarlegra mat á
umhverfisáhrifum, m.a. til að
tryggja að sveitarfélagið, sem veitir
framkvæmdaleyfi, hafi örugglega
fullnægjandi upplýsingar í hönd-
unum áður en það tekur sína ákvörð-
un.
Ég notaði tækifærið til að minna á
stöðu og tilgang rammaáætlunar
þegar ég var í vikunni innt álits á
þeim tíðindum að Náttúrufræði-
stofnun hefði lagt til við umhverf-
isráðherra að Drangajökull og um-
hverfi hans yrðu friðlýst, sem
samkvæmt fréttum gæti sett
Hvalárvirkjun stólinn fyrir dyrnar
þó að hún sé í nýtingarflokki
rammaáætlunar og í undirbúningi.
Ég minnti einfaldlega á þá stað-
reynd að rammaáætlun er hið lög-
bundna ferli til að flokka virkjunar-
kosti og leggja á þá faglegt mat
færustu sérfræðinga.
Mætti raska svæði
í verndarflokki?
Hvalárvirkjun hlaut jákvæða niður-
stöðu í matsferli rammaáætlunar og
Alþingi staðfesti þá niðurstöðu sem
sinn vilja. Síðan þá hefur umhverfis-
mat farið fram, álit Skipulagsstofn-
unar á því mati liggur fyrir, og svo
er það í höndum viðkomandi leyfis-
veitenda, til að mynda sveitar-
stjórnar og Orkustofnunar, að meta
hvort leyfin verði veitt.
Þegar vegið er og metið hversu
heppilegt væri að grípa inn í þetta
ferli og friðlýsa svæði í nýtingar-
flokki áður en það hefur verið virkj-
að, sýnist mér að fróðlegt geti verið
að velta fyrir sér hvort gera mætti
hið gagnstæða, sem væri að raska
svæði í verndarflokki áður en það
hefur verið friðlýst. Að gera þar
sambærilegt rask og virkjun hefði
haft í för með sér en bara ekki setja
upp túrbínur og virða þar með virkj-
unarbannið í hvívetna.
Það er algjör óþarfi að gera mér
upp þá skoðun, sem því miður hefur
verið gert af þessu tilefni, að mér sé
ekki annt um íslenska náttúru, að ég
telji að náttúran eigi „einungis að
þjóna manninum“ og ekki beri að
umgangast hana með virðingu.
Svarthvítar alhæfingar af slíku tagi
eru að mínu mati kaldastríðstal sem
skilar litlu. Það er tímabært að við
áttum okkur öll á því að Rússar
elska líka börnin sín.
thordiskolbrun@anr.is
Rússar elska líka börnin sín
’Við höfum komiðþví þannig fyrir að ístað þess að tvær fylk-ingar standi í sífelldum
hrópum og köllum um
hvern virkjunarkostinn
á fætur öðrum eru lög í
landinu um hvernig við
komumst að niðurstöðu.
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Að gefnu tilefni
varð varla þver-
fótað fyrir at-
hugasemdum
um fótboltann í
netheimum í
vikunni og hefur forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir verið ötul
við að hvetja íslenska landsliðið á
Twitter. Eftir tapið gegn Króötum
skrifar hún: „Frammistaða ykkar á
HM var frábær! Takk fyrir að
veita allri þjóðinni innblástur um
hvað það þýðir að vinna saman
og gefast aldrei upp.“
Berglind
Pétursdóttir,
einnig þekkt
sem Berglind
Festival, fer
ótroðnar slóðir
í matargerð en
hún skrifar: „Eina saltið sem er til
í vinnunni er bíópoppsalt og nú er
linsoðið egg með bíópoppsalti
uppáhaldsmaturinn minn.“ Mat-
gæðingurinn deildi einnig frásögn
af kostakjörum: „Fékk kíló af
papriku á 50 kall um helgina. Er
að fá smá leið á paprikusúpu og
hrökkbrauði með papriku en sæl-
ir eru hagsýnir.“
Hallgrímur
Helgason rit-
höfundur sýnir
samstöðu með
kjaradeilum
ljósmæðra í
skrifum sínum á
Facebook. „Í guðanna bænum,
kæra ríkisstjórn, hlífið okkur við
frekari fregnum af kjaradeilum,
verkfalli, yfirvinnubanni og upp-
sögnum ljósmæðra. Þjóðfélag
sem ekki gerir vel við þessa
æðstu starfsstétt sína er í veru-
legri krísu. (Reyndar byrjaði síð-
asta hrun einmitt með verkfalli
ljósmæðra.) Og það er bara gjör-
samlega óbærilegt að vita af ljós-
mæðrum óánægðum og niður-
lægðum. Koma svo, VG.“
AF NETINU
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Borð 136.900
TILBOÐ 82.140
Stóll 18.900
Spegill 38 cm
8.900
Spegill 32 cm
6.900
Stóll 29.900
Stóll 18.900
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÆNSK GÆÐI Í 90 ÁR
Sænska fyrirtækið Mora hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 90 ár.
Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Mora.