Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 12
Í PRÓFÍL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018 Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 TUNGLIÐ Að morgni 16. júlí 1969 var geim- flauginni Apollo 11 skotið út í geiminn. Um borð voru geimfararnir Buzz Aldrin, Neil Armstrong og Michael Collins. Flaugin lenti á tunglinu fjórum dögum síðar, hinn 20. júlí 1969. Armstrong tilkynnir mönnum heima á jörðinni að Örninn sé lentur en tunglferjan var nefnd Örninn eftir skallaerninum á merki leiðangurs- ins, þjóðartákni Bandaríkjanna. Næsta dag steig Armstrong fyrstur á tunglið en Aldrin um það bil fimmtán mínútum síðar. Það hafði verið ósk Aldrins að fara fyrstur en sú ákvörðun var ekki í höndum geimfaranna held- ur var það fremri lúga tunglferjunnar sem réð því og staðsetning geimfaranna í flauginni. Þótt Aldrin hafi ekki verið fyrstur til að stíga fæti á tunglið var hann þó fyrstur manna til að hafa þvaglát á því ef marka má orð hans í heim- ildarmyndinni In the Shadow of the Moon frá árinu 2007. Þá sagðist hann hafa lent í dálitlum vandræðum með að komast aftur um borð í geimflaugina en það tókst að lokum. Buzz Aldrin segist hafa tekið pissupásu á tunglinu enda ekki hlaupið að því að komast á salerni þar. Reuters Örninn er lentur Edwin Eugene Aldrin Jr., fæddist í New Jersey í Bandaríkjunum 20.janúar 1930. Hann fékk nafnið Buzz viðurkennt sem eiginnafn árið1988 en það hafði verið gælunafnið hans frá barnsaldri þegar eldri systur hans gátu ekki borið fram „brother“ (ísl. bróðir) og sögðu þess í stað „buzzer“. Það var svo stytt í Buzz. Aldrin útskrifaðist úr West Point-herskólanum með þriðju hæstu einkunn með BS-gráðu í vélaverkfræði. Hann var liðsforingi í bandaríska flughernum í Kóreustríðinu og flaug 66 ferðir í bardaga. Hann skaut niður tvær Mikoyan- Gurevich MiG-15-vélar og vakti mikla athygli þegar hann náði ljósmynd af því þegar sovéskur flugmaður skaut sér út úr laskaðri vél sinni og birtist myndin í Life-tímaritinu. Í janúar 1963 lauk Aldrin doktorsgráðu í geimvísindum og í ritgerð sinni sagði hann m.a. að hann vonaðist til að fá tækifæri til að fara út í geim. Hann sótti tvisvar um sem geimfari en það var ekki fyrr en í þriðju tilraun, í október 1963, sem hann var valinn í geimferðahóp NASA. Það var svo 20. júlí 1969 sem Aldrin lenti á tunglinu ásamt Neil Armstrong og þeir urðu þar með fyrstu mennirnir til að ganga á tunglinu. Aldrin lét af störfum hjá NASA í júlí 1971 og tók við sem liðsforingi í skóla flughersins í Kaliforníu og starf- aði svo í stjórnunarstöðu hjá flughernum. Vandamál í hans persónulega lífi bundu enda á framann, en hann hefur bæði barist við þunglyndi og áfengissýki eins og greint er frá í ævisögum hans, Return to Earth, sem kom út árið 1973, og Magnificent Desolation frá árinu 2009. Er sú barátta sögð hafa byrjað eftir að hann sneri frá tunglinu. Báðir foreldrar hans frömdu sjálfsmorð og hefur Aldrin sagt að líklega hafi hann erft þunglyndið frá þeim. Móðir hans lést árið 1968, ári áður en Aldrin steig fæti á tunglið. Aldrin hefur gifst þrisvar sinnum. Hann giftist Joan Archer árið 1954 og eignaðist með henni þrjú börn, James, Janice og Andrew. Þau skildu árið 1974 en ári síðar giftist Aldrin Beverly Van Zile og voru þau gift í þrjú ár. Árið 1988 giftist hann Lois Driggs Cannon en skildi við hana 2011. Þunglyndi tunglfarinn Buzz Aldrin reffilegur í geimfara- búningnum. Búningurinn hefur verið til sýnis á safninu National Air and Space Museum í Washington D.C. í Bandaríkjunum frá árinu 1971. Buzz Aldrin steig á tunglið 21. júlí 1969 ásamt Neil Armstrong. Eftir komuna aftur til jarðar tók við þung- lyndi og áfengissýki, sem batt enda á starfsferil Aldrins. Reuters KÆRUMÁL Aldrin hefur höfðað mál gegn tveimur barna sinna, Ja- nice og Andrew, sem hann sakar m.a. um rógburð og að hafa eytt peningum hans í vitleysu. Þá hafi þau eyðilagt ástarsambönd fyrir honum. Börnin hafa farið fram á að taka við fjármálum og umsjá föður síns þar sem honum sé farið að förlast af elli. Í apríl síðastliðnum lét Aldrin öldrunargeðlækni gera á sér próf. Í yfirlýsingu sem læknirinn sendi lög- fræðingi Aldrin segir m.a. að niður- staðan hafi verið afar góð miðað við hans aldur og Aldrin sé fullfær um að sjá um sig sjálfur. Fullfær eða elliær? Öldrunargeðlæknir segir Aldrin vera í toppformi og geta séð um sig sjálfur. Ljósmynd/Gage Skidmore UPPSPUNI Þann 9. september 2003 var Aldrin lokkaður á hótel í Beverly Hills undir því yfirskini að hann væri að fara í viðtal við japanskan barna- þátt um geiminn. Þegar á hót- elið kom tók myndatökulið á móti honum ásamt Bart Sibrel, sem hefur haldið því fram að Apollo-leiðangurinn sé uppspuni frá rótum. Sibrel krafðist þess að Aldrin myndi sverja við Biblíuna að hann hefði logið því að hafa geng- ið á tunglinu. Eftir að hafa kallað Aldrin lygara og hugleysingja upp- skar hann kjaftshögg frá Aldrin. Vitnum bar saman um að Sibrel hefði ögrað Aldrin mjög og potað í hann með Biblíunni. Af þessu urðu engin eftirmál þar sem Sibrel sakaði ekki og Aldrin var ekki á sakaskrá. Bart Sibrel trúir því ekki að Aldrin hafi stigið fæti á tunglið. ’Báðir foreldrar hans frömdusjálfsmorð og hefur Aldrin sagt aðlíklega hafi hann erft þunglyndið fráþeim. Móðir hans lést árið 1968, ári áður en Aldrin steig fæti á tunglið. AP Fótspor á tunglinu eða sviðsetning? Hasar á hóteli

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.