Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Side 24
HEILSA Fólk kemst mjög langt með góða fótaheilsu ef það skolar af fótum á hverj-um degi og man að þurrka sér vel á milli tánna og klippa táneglurnar. Ekki er þó verra að hafa nóg af hælsærisplástrum og sárakremi með í ferðalög. Einföld umhirða gulls ígildi 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018 Veldu garða og göngugötur. Það skiptir máli hvar þú þrammar í sumar. Farir þú í stórborg- arferð skaltu frek- ar þræða litlar sæt- ar götur og almenningsgarðana en umferðaröng- þveiti eins og Ox- ford Street. Rann- sókn sem birtist í vísindaritinu Lan- cet fyrir nokkrum mánaðum leiddi í ljós að heilsufars- legur ávinningur sé enginn af því að fara í göngutúr ef gengið er í meng- uðu andrúmslofti og þreytir fólk fyrr. Getty Images/iStockphoto Þraukaðu þrammið Framundan er sumar fullt af göngu, í íslenskri náttúru, stórborgum og á ýmsum sumarleyfisstöðum. Það er hundleiðinlegt að endast aðeins hálfan dag því fæturnir eru að drepa þig. Hér eru nokkur ráð til að koma sér í gegnum sumarþramm um allar trissur. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Aldrei kaupa skó fyrir hádegi. Best er að kaupa skó síð- degis en fætur þrútna yfir daginn og eru meiri um sig síð- degis en á morgnana. Því er best að kaupa skóna þegar þeir eru mestir um sig svo að þeir séu alltaf sem þægilegastir. Geymdu skóna í þurrki. Þegar heim er komið skaltu geyma skóna í mjög þurri vistarveru og lokaðar skóhirslur eru ekkert sérstakar til þess. Skórnir þurfa að þorna vel því sviti dagsins liggur í þeim og svalirnar eru bestar ef það er ekki skýfall úti, jafnvel að hengja þá út á snúru. Teygðu eftir hverja einustu gönguferð. Það er lúmskt álagið sem ganga er og þótt þú finnir ekki fyrir því strax getur fótaórói gert vart við sig síðar um kvöldið. Teygðu vel á kálf- um sérstaklega. Út með vondu skóna. Það er ekki útlitsins virði að vera á ferðalagi í vondum skóm. Slepptu flatbotna plastskónum við sundlaugarbakkann, flatbotna ballerínuskóm, támjóum skóm, of háum hælum og ekki vera í of gömlum skóm. Fjárfestu í vönduðum sandölum með góðum höggdeyfum til að vera í á daginn og hafðu flottu spariskóna líka gönguvæna. Sólarvörn. Flestir muna að bera á sig sólarvörn en fæt- urnir vilja gleymast en þeir brenna oft frekar því þeir eru í og úr vatni og sjó. Aumar hásinar. Margir finna fyrir eymslum í hásinum á sumrin eftir göngur upp í móti. Til að styrkja hásin er gott að tylla sér á tær þrisvar í röð og halda aðeins í hvert skipti. Þessi aðferð er betri en sú að láta sig síga í tröppu á tánni. Minnkið göngu upp á við séu hásinarnar mjög aumar og ekki vera á mjög flatbotna skóm. Hugaðu sérstaklega að börnunum. Aldrei eru börn á meiri hreyfingu en yfir sumartímann og er því sérstaklega hætt við að misstíga sig og snúa. Lykilatriðið er, ef eitthvað kemur fyrir, að kæla strax með köldum bakstri í 20 mínútur, taka af í 20 mínútur og endurtaka þetta í um 3 klst. Ekki leggja heita bakstra á verkinn. Svo má leggja kaldan bakstur næstu daga nokkrum sinnum yfir daginn. Það er ekki verra að hafa teygjubindi með í ferðalagið því það getur verið gott að nota það fyrstu dagana, bara ekki hafa það of þétt. Lítill bolti. Það er mjög auðvelt að pakka litlum bolta í ferðatöskuna og nota hann til að nudda ilina á kvöldin. Hafið hann mátulega harðan og standið í báða fætur meðan þið rúllið til skiptis boltanum fram og til baka undir ilinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.