Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2018 Presti í bænum Estella á Spáni, sem geymdi líkanið, fannst eftirmynd af dýrlingnum Georg vera komið til ára sinna. Að sögn bað hann kennara úr bænum um hjálp við að gera hana upp, en afraksturinn hefur vakið mikla reiði hjá íbúum bæjarins. Bæjarstjóri Estella hefur krafist svara um af hverju framkvæmdirnar fóru ekki fyrir bæj- arráð sem hefði falið verkefnið fagmanni. Sérfræðingar hafa verið kallaðir til svo meta megi hvort hægt sé að færa verkið nær fyrra horfi. Málið minnir óneitanlega á svipað tilvik fyrir sex árum þegar áttræð kona tók upp á eigið frumkvæði að lagfæra veðrað málverk af Jesú Kristi. Sú tilraun fór miður vel og fékk afskræmt málverkið viðurnefnið „apakristur“, en varð þó vinsælla meðal ferðamanna í kjölfarið. 15. aldar eftirmyndin minnir í dag frekar á Nenna níska úr Latabæ en drekabanann heilagan Georg. Velviljað skemmdarverk Misheppnuð tilraun myndlistarkennara til að lappa upp á helgilíkan af heilögum Georg minnir á svipað atvik fyrir sex árum. Hinn 1. júlí 1971 greindi Morg- unblaðið frá því að fram- kvæmdir væru hafnar við hita- veitu á Seltjarnarnesi og að vatnssala myndi hefjast í nóv- ember sama ár. Að sögn Sigur- geirs Sigurðssonar, sveitarstjóra Seltjarnarness, átti fyrirtækið Hlaðprýði lægsta tilboð í fyrsta áfangann, vesturhverfið, eða um 10 milljónir króna. Næstu áfangar yrðu síðan Lamb- astaðahverfi og Strandirnar. Fram kemur að hitaveita Sel- tirninga sé sjálfri sér nóg með vatni sem fáist úr borholum á nesinu og að framkvæmdir við dælustöð hitaveitunnar við Lindarbraut séu á vegum hreppsins. Sigurgeir sagði að vatnið yrði ekki selt samkvæmt mæli eins og tíðkaðist í Reykjavík heldur færi Seltjarnarnes að fordæmi Sauðárkróks og Húsavíkur. Þar væri hemill settur á inntak þar sem húsráðandi gæti ákveðið hversu marga lítra hann fengi og rennslið yrði í samræmi við það óbreytt allt árið. Áætlaður heimtaugarkostnaður í meðal- hús var um 20 þúsund krónur. GAMLA FRÉTTIN Hitaveita Seltirninga Framkvæmdir við Lindarbrautina. Miðað var við að kyndingarkostnaður yrði 10% lægri en olíukynding en yrði lækkaður eftir tvö ár. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Peter Sellers leikari Júlíus Kemp kvikmyndagerðarmaður Ólafur Elíasson listamaður DUCA Model 2959 L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,- L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY Model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,- TRATTO Model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- SAVOY Model V458 L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 223 cm Leður ct. 10 Verð 395.000,- ETOILE Model 2623 L 200 cm Leður ct. 25 Verð 429.000,- L 230 cm Leður ct. 25 Verð 465.000,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.