Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Side 8
SACHA BARON COHEN Alaskadrottningin Sarah Palin greindi nýlega
skúffuð frá því að hún hefði verið göbbuð í sjónvarpsviðtali. Palin var ekki ein á
báti þar sem aðrir stjórnmálamenn og opinberar persónur stigu einnig fram í
sviðsljósið til að gera grein fyrir sinni hlið eftir að hafa verið ginntir í viðtal fyrir
sjónvarpsþáttinn Who is America? nýjustu hugarsmíð grínarans Sacha Baron
Cohen. Fyrirbyggjandi aðgerðir þessa fólks segja mikið til um orðspor Baron
Cohen sem hefur öðlast frægð með því að vekja vandræðaleg viðbrögð hjá fólki
með skrautlegum persónum sínum og gervum.
Sacha Noem Baron Cohen fæddist í London árið 1971. Hann er af blönd-
uðum gyðingaættum en föðurætt hans á rætur að rekja til Austur-Evrópu en
móðir hans er fædd í Ísrael. Sem barn gekk Baron Cohen í einkaskóla en lærði
síðar sagnfræði við Cambridge-háskóla þar sem hann tók einnig þátt í leiklist.
Eftir háskólann lá braut Baron Cohen að sjónvarpi þar sem hann vann um tíma
sem kynnir, en hann braust fyrst fyrir alvöru fram á sjónarsviðið árið 1998 þeg-
ar hann birtist sem persónan Ali G. í The 11 O‘Clock
Show. Ali G. varð strax mjög vinsæll og fékk í kjölfarið
sinn eigin þátt sem hét Da Ali G Show og síðar leiknu
gamanmyndina Ali G. Indahouse. Þættirnir voru settir
upp í heimildarmyndarstíl þar sem Ali G. tók óvenju-
leg viðtöl við alls konar fólk, en þessi stíll hefur ein-
kennt feril Baron Cohen. Í þáttunum brá einnig fyrir
öðrum persónum sem leiknar voru af Baron Cohen
sem síðar fengu sínar eigin kvikmyndir.
Árið 2006 kom út myndin Borat: Cultural Learnings
of America for Make Benefit Glorious Nation of Ka-
zakhstan. Þar brá Baron Cohen sér í gervi kasakska
fréttamannsins Borat Sagdiyev og ferðaðist um
Bandaríkin til að fræðast um bandaríska menningu.
Flestir viðmælendur Borat voru ekki leikarar, og tókst
honum að skapa vandræðalegar en bráðfyndnar að-
stæður þegar hann gekk oft fram af þeim með spurn-
ingum sínum og hegðun. Önnur persóna Baron Cohen,
samkynhneigði Austurríkismaðurinn Brüno Gehard,
fékk líka sína eigin mynd þar sem tískumógúllinn ferð-
aðist um Bandaríkin í von um að meika það. Loks fór
Baron Cohen í hlutverk einræðisherrans Aladeen í
The Dictator sem kom út árið 2012, en þar var mun
stærri hluti myndarinnar leikinn en áður. arnart@mbl.is
Ali G. (fullu nafni
Alistair Leslie Gra-
ham) er alkunnur.
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Nýjar vörur
Matardiskur 2.950
Forréttardiskur 2.550
Ljós
21.000
Glas 1.550
Ljós
17.000
30-50%afsláttur afvöldumvörum
BANDARÍKIN Þættirnir Who is America? hóf-
ust nýlega og hafa strax vakið gríðarlega athygli,
en þar fer Baron Cohen í mörg gervi til að taka
viðtöl og heimsækja Bandaríkjamenn. Í fyrsta
þættinum fer Baron Cohen í gervi hins ísraelska
Erran Morad og ræðir við viðmælendur um
hvort það sé góð hugmynd að þjálfa ung börn í
notkun skotvopna til að sporna gegn skotárásum
í skólum. Viðbrögð viðmælenda hans, sem eru
margir hverjir þingmenn, hafa farið fyrir brjóstið
á mörgum þar sem þeir virðast opnir fyrir hug-
myndinni um að ung börn vopnist.
Önnur gervi Baron Cohen eru meðal annars
samsæriskennismiður, frjálslyndur prófessor og
ítalskur tískuljósmyndari, en hverri persónu er
beitt til að reyna að hámarka viðbrögð frá við-
mælendum. Í öðrum þætti fer Baron Cohen aft-
ur í gervi Morad og heimsækir stjórnmálamann
sem endar á því að hrópa kynþáttaníðorð hástöf-
um. Stjórnmálamaðurinn bölvaði Baron Cohen
á netinu en hann sagði upp störfum nokkrum
dögum eftir að þátturinn var sýndur.
Byssuáhugamaðurinn Philip Van Cleave og ofurstinn Erran
Morad fræða börn um hvernig beita skuli skotvopnum.
Byssur fyrir börnin
KASAKSTAN Þrátt fyrir miklar vinsældir
Borat voru ekki allir ánægðir með myndina
en mörgum heimamönnum sárnaði sú vill-
andi mynd sem gefin var af Kasakstan. Í byrj-
un myndarinnar heimsækir Borat meint
heimaþorp sitt þar sem fólk er ekki ensku-
mælandi. Þar kallaði hann til dæmis einn íbú-
ann „þorpsnauðgarann“, en maðurinn
komst síðar að því og kærði framleiðendur
myndarinnar.
Síðar meir kom upp vandræðalegt atvik á
íþróttamóti í Kúveit þar sem skáldaður þjóð-
söngur úr myndinni var spilaður í stað raun-
verulegs þjóðsöngs Kasakstan. Aðstandendur
mótsins báðust afsökunar, en í texta söngsins
úr myndinni er meðal annars talað um
hversu hreinar vændiskonur í Kasakstan séu.
Óheppilegur
þjóðsöngur
Reuters
Borat heimsækir meint heimaþorp sitt en íbúar bæjarins töluðu ekki
ensku og héldu að hann væri kominn til að fjalla um erfiðleika í þorpinu.
EINRÆÐISHERRAR Hershöfðingja-
aðmírállinn Aladeen, persóna Baron Co-
hen í The Dictator, var að mestu leyti
byggður á lýbíska einræðisherranum
Muammar Gaddafi. Framleiðendur ótt-
uðust að þeir myndu reita Gaddafi, sem
var þá enn lifandi, til reiði og mögulega
valda hryðjuverkaárás. Af þeim sökum
var gripið til þess ráðs að kynna myndina
frekar á þann veg að hún væri lauslega
byggð á rómantískri sögu sem íraski ein-
ræðisherrann Saddam Hussein hafði
skrifað. Síðar meir birtist Aladeen á
rauða dregli óskarsverðlaunaafhend-
ingar þar sem hann hellti óvart ösku
norðurkóreska einræðisherrans Kim
Jong-il yfir Ryan Seacrest, þó síðar
meir hafi komið í ljós að það var
hveiti.
Hershöfðingja-aðmírállinn Aladeen.
Öskufullur
einvaldur
Hamhleypa
og húmoristi
Austurríkismaðurinn Brüno
Gerhart gekk oft langt.
Sacha Baron Cohen segir Peter Sellers
vera helsta innblástur sinn.
AFP
’Í dágóðan tímavissi enginn áEnglandi hvernigég leit út í raun
og veru.