Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Side 18
HRINGFERÐ
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018
L
agt var að stað einn laugardags-
morgun fyrir skemmstu og lá leiðin
austur fyrir og þaðan var hringveg-
urinn þræddur, með viðkomu á Vest-
fjörðum. Litla skottið á bílnum var
troðfullt og mátti þar finna töskur, teppi, nesti og
spil. Tveir synir blaðamanns, Logi, sextán ára, og
Sindri fjórtán voru með í för, auk frænkunnar
Lóu Schriefer, einnig fjórtán. Eftir að græjurnar
höfðu verið stilltar á rapparann Drake og hækk-
að í botn var hægt að leggja í hann.
Eftir hádegismat í Hveragerði var haldið af
stað til Víkur, með viðkomu við Seljalandsfoss,
Skógafoss og í Reynisfjöru. Í Vík beið okkar
fyrsta ævintýrið, Zipline! Þar fengum við að
renna okkur á vír og svífa yfir gil og læki og var
þetta hin besta fjölskylduskemmtun. Gist var á
Klaustri og Jökulsárlón beið okkar daginn eftir í
blíðskaparveðri. Bátsferð um lónið var afar ljúf
og góð afþreying. Á Höfn var staldrað við og lét-
um við það eftir okkur að splæsa í alvöruhumar-
máltíð. Þaðan lá leiðin til Seyðisfjarðar þar sem
biðu okkar hlýir vindar og sjóstangaveiði. Krakk-
arnir drógu hvern þorskinn á fætur öðrum sem
eldaður var kvöldið eftir á Akureyri, eftir stopp
við Dettifoss og Mývatn.
Eftir tveggja daga hvíld á Akureyri með til-
heyrandi sund- og bæjarferðum var haldið af stað
í flúðasiglingu niður Austari-Jökulsá með Viking
Rafting. Líklega var það hápunktur ferðarinnar,
bæði hjá móður og börnum. Ekki bara var þetta
æsispennandi heldur var náttúrufegurðin engu
lík. Kvöldið fór í langa keyrslu til Hólmavíkur þar
sem gist var eina nótt á leið okkar til Ísafjarðar.
Þar var slakað á, kíkt á Flateyri, farið út að borða
og í Ísafjarðarbíó um kvöldið. Daginn eftir var
keyrt að Reykhólum þar sem beið okkar sum-
arbústaður og sigling um Breiðafjörðinn. Það var
sáttur hópur sem brunaði í bæinn daginn eftir og
beint heim að horfa á úrslitaleikinn á HM. Að baki
lágu 2.323 kílómetrar og er nú móðirin fullnuma í
rappfræðum. J. Cole er í sérlegu uppáhaldi.
Á átta dögum var keyrt hringinn um landið með þrjá unglinga
innanborðs. Ekki var nóg að bjóða þeim upp á útsýnið og var
því ferðin full af spennandi ævintýrum.
Texti og myndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Síðasti áfangastaðurinn var Reykhólar. Þar beið okkar
sumarbústaður sem góðir vinir buðu óvænt upp á. Eftir
kvöldmat bauð fjölskylduvinur upp á siglingu út á
Breiðafjörð á hraðbáti. Himinninn logaði þetta kvöld og
málaði allt í bleiku og appelsínugulu. Eftir nánast þurra
hringferð var vaknað í rigningu og haldið heim á leið.
Siglt út á
Breiðafjörð
Seljalandsfoss var skoðaður á leiðinni
austur. Krakkarnir gengu á bak við
fossinn og komu hálfblaut til baka, en
enginn er verri þótt hann vökni. Hjá
Skógafossi var líka áð og röltu ferða-
langar upp ansi stífar tröppur til þess
að horfa á fossinn ofan frá.
Fossar frá
öllum hliðum
Ekki er hægt að keyra til Víkur án þess að staldra við
og fara í Reynisfjöru. Þrátt fyrir nokkurn fjölda af
ferðamönnum er hægt að njóta þess að ganga um
svartan sandinn, horfa á Reynisdranga og njóta nátt-
úrufegurðarinnar. Krakkarnir léku sér og hlupu und-
an óvæntum öldum, undir vökulu auga móðurinnar.
Sjór, drangar og
svartur sandur
Hjá Viking Rafting á Hafgrímsstöðum
nálægt Varmahlíð er hægt að fara í ofur-
skemmtilega flúðasiglingu. Við bók-
uðum okkur í þriggja tíma fjölskyldusigl-
ingu og sáum ekki eftir því. Það voru um
fimm fullir gúmmíbátar sem fylgdust að
niður flúðirnar í Austari-Jökulsá sem
rennur í gegnum stórfenglegt gljúfur.
Það var hasar og fjör á leiðinni og gus-
urnar gengu yfir okkur. Á einum stað
var stoppað og bolla með kakódufti var
dýft í sjóðandi heitt vatn sem bullar þar
upp úr bakkanum. Á leiðinni fengu þeir
sem vildu að stökkva út í ána og fljóta.
Krakkarnir nýttu sér það óspart en
móðirin kaus að halda sig innanborðs. Ljósmynd/Viking Rafting
Æsispennandi buslugangur
Falleg er leiðin frá Hólmavík til Ísa-
fjarðar. Á leiðinni var tekið kaffistopp
í Ögri og selir skoðaðir á Hvítanesi. Á
Ísafirði var ákveðið að kíkja út að
borða og skreppa í Ísafjarðarbíó.
Daginn eftir var keyrt á Flateyri þar
sem sólin skein og krakkarnir fundu
barnið í sér á hoppudýnu. Fjörðurinn
skartaði sínu fegursta þennan júlídag.
Selir, bíó
og hopp
2323kílómetrarmeð unglingum