Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Page 37
veldishugmyndum hennar um
hlutverk konunnar, svo sem í Like
a Virgin. Alla tíð hefur hún verið
að feta leiðir til að pota í tilveruna
og nýtt sér alls konar listform.
1992 gaf hún út bókina Sex, ljós-
myndabók þar sem hún hélt á vit
eigin kynferðislegra óra. Að sjálf-
sögðu var hún enn eina ferðina
kölluð dóni en margir myndu ekki
kippa sér upp við það í dag þótt
kona talaði opinskátt um kynlíf
sitt og þrár.
Madonna hefur víða lagt fleiri
lóð á baráttuskálar en fyrir frelsi
kvenna. Hún hefur verið ötul bar-
áttumanneskja fyrir réttindum
hinsegin fólks, velferð barna í
þriðja heiminum og HIV-smitaðir,
sem urðu fyrir miklum fordómum
á 8. og 9. áratugnum einkum, nutu
góðs af hennar liðsinni.
Í dag er það sem Madonna fær
að heyra ekki endilega að hún sé
dóni eða frekja heldur er núna
einblínt á aldur hennar. „Farðu nú
að haga þér eftir aldri.“ Það er
auðvitað ekki séns að Madonna
hlusti á slíkt.
Madonna hættir aldrei að koma
á óvart. Hér er hún á MOMA-
safninu í New York í vor.
Á tónleikum
árið 2012.
Madonna í
Svíþjóð árið
2000.
Frægur koss Madonnu og Christina
Aguilera á MTV-verðlaununum 2003
hneykslaði marga.
Madonna tók óvænt-
an snúning þegar
hún fór með hlut-
verk Evitu í sam-
nefndri kvikmynd.
„Ég er hörð, metnaðargjörn og
veit hvað ég vil. Ef það gerir mig
að tík, allt í lagi.“
Madonna umkringd
ljósmyndurum árið
1987 í París.
Madonna á tónleikum 1987, þegar
Who’s that Girl kom út.
Madonna er fjórði söluhæsti
tónlistarmaður allra tíma.
AFP
29.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
TÓNLIST 250 gestir The Cavern Club í Liverpool duttu
í lukkupottinn á fimmtudaginn þegar Sir Paul McCart-
ney birtist óvænt á staðnum og tók lagið fyrir viðstadda.
The Cavern Club er tónlistarklúbbur og bar, líkt og
hann var árið 1961, þegar hann var einn helsti vett-
vangur Bítlanna og er því eins konar mekka Bítlaaðdá-
enda um víðan heim í dag enda voru hljómsveitir að taka
sín fyrstu skref þar, John Lennon og félagar þá aðeins
táningar. McCartney sagði við gesti að það væri magnað
fyrir hann að koma aftur á staðnn, sem hann hefur ekki
heimsótt í nærri 20 ár. Hann sagði jafnframt í ávarpi
sínu til gesta að þá hafi hann og félaga hans í Bítlunum
ekki órað fyrir hvað biði þeirra, og vissu hreinlega ekki
hvort þeir ættu nokkra framtíð fyrir sér í tónlistinni.
Heimsótti helgistaðinn
Sir Paul McCartney hefur alla tíð þótt
einkar natinn við aðdáendur sína.
MYNDLIST Leikarinn Pierce Brosnan
ætlar að sýna á sér nýja hlið síðar á
árinu en þá efnir hann til listasýningar á
verkum sem hann hefur málað í frí-
stundum sínum.
Í viðtali við tímaritið Heat segist hann
elska að skapa eitthvað sem er fallegt
og gleður augað og myndlist leiki orðið
mjög stórt hlutverk í lífi hans.
„Ég hætti mjög snemma í skóla þegar
ég var ungur, með litla akademíska
reynslu, en ég átti þó möppu með vatns-
litamyndum og teikningum,“ segir hinn
65 ára gamli leikari í viðtalinu.
Brosnan með listasýningu
Pierce Brosnan er ástríðumálari í frístundum.
AFP
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
Ný kynslóð málningarefna
SUPERMATT
Almött þekjandi viðarvörn
Djúp og falleg áferð – ekkert endurkast