Morgunblaðið - 02.08.2018, Side 6

Morgunblaðið - 02.08.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Eindagi bifreiðagjalda er 15. ágúst næstkomandi Greiðsluseðill bifreiðagjalda birtist eingöngu á rafrænu formi í pósthólfinu á island.is og sem krafa í netbanka. Hægt er að óska eftir útprentuðum seðlum hjá Þjónustuveri Tollstjóra í síma 560-0300 eða á fyrirspurn@tollur.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nú í vikunni var opnað nýtt íbúða- hótel á bænum Klettum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Nú telst slíkt tæp- ast lengur til tíðinda nema hvað þessi gististaður er í 60 ára gömlum súrheysturni sem var innréttaður og ýmsu breytt fyrir nýja starfsemi. Turninn er allt tólf metra hár og herbergin eru fjögur; eitt á hverri hæð. Inn í þau er gengið utanvert af hringstiga sem liggur utan á húsinu og alveg upp á fimmtu hæðina þar sem er útsýnishús, þar sem sést í 360° vítt yfir sveitirnar og inn á há- lendið. Tæpast verður betur boðið! Kraftur á toppnum „Turninn er skemmtilega skap- aður. Neðst er orkan mjög jarð- bundin og mild en verður svo fín- legri þegar á efri hæðirnar kemur. Og útsýnið af toppnum gefur mikinn kraft,“ segir Ásgeir Eiríksson, hót- elhaldari á Klettum. Hann hefur mörg undanfarin ár lagt stund á kín- verska læknisfræði og nam svæða- nudd og nálastungulækningar. Hef- ur síðustu vetur jafnan verið nokkrar vikur austur í Taílandi til að afla sér frekari þekkingar í fræð- unum. Nú er hins vegar sá tími kom- inn að Ásgeir vill fara að miðla af þessari þekkingu sinna og til stend- ur að í Turninum verði haldin nám- skeið og boðið upp á þjónustu til dæmis sálfræðinga, nuddara, nær- ingarfræðinga og fleiri slíkra. Bærinn Klettar er á leiðinni á Flúðir og er á hægri hönd rétt áður en komið er að afleggjaranum inn í Þjórsárdal. Þar stundaði Ásgeir Ei- ríksson um langt árabil kjúk- lingabúskap á Klettum, sem lagðist af fyrir um tuttugu árum. „Þegar búskapnum lauk vann ég við húsasmíðar í mörg ár, fór svo að kynna mér kínversku læknisfræðina og heillaðist af. Kjarni hennar er að með hugarfarinu ráðum við miklu um heilsu okkar, líðan og hvernig við eldumst. Um 90% af orkubúskap okkar og heilsu ráðast af hug- arfarinu. Sjálfur var ég mældur og rannsakaður hátt og lágt austur í Taílandi og niðurstaðan var sú að at- gervi mitt eins og hjá 54 ára gömlum manni og þó er ég orðinn sjötugur.“ Miklu betri hugmynd Nokkur ár eru síðan Ásgeir hóf undirbúning þess að koma upp heilsuhóteli að Klettum. Í fyrstu hugðist hann nýta gamalt útung- unarhús frá tímum kjúklinganna til þess, enda lá það beint við. „Vífill Magnússon arkitekt, kunn- ingi minn, kom hingað og leit á að- stæður en sagðist vera með miklu betri hugmynd en ég hafði. Sendi mér svo skissur að breytingum á súrheysturninum sem hætt var að nota. Ég féll algjörlega fyrir þessari hugmynd,“ segir Ásgeir sem hefur varið flestum lausum stundum síð- ustu árin í breytingar á turninum. Þetta hefur verið mikil vinna og margt í framkvæmdinni hefur kallað á mikla lagni og útsjónarsemi. Hvert herbergjanna fjögurra inni í spor- öskjulaga turninum er 20 fermetra, öll með snyrtingu, baði og eldunar- aðstöðu. Þá er öll lýsing sérhönnuð og mildandi. Ævintýri og aldur „Auðvitað hefur þessi framkvæmd kostað mikið í tíma og peningum. Ég hef hins vegar litið svo á að kominn á þennan aldur megi maður leika sér og fara út í svolitla ævintýra- mennsku eins og þetta verkefni sannarlega er,“ segir Ásgeir sem áformar að opna hótelið fyrir gest- um um miðjan næsta mánuð. Og nafnið liggur fyrir og er einfalt; Turn og upp á ensku Tower. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Íbúðahótel Ásgeir Eiríksson við súrheysturinn sem var byggður árið 1957 og hefur nú fengið nýtt hlutverk. Súrheysturn nú hótel  Skemmtilega er skapað  Kínversk læknisfræði í upp- sveitum Árnessýslu  Útsýni úr turninum er 360 gráður Heimsleikarnir í crossfit hófust í gær í Madison í Wisconsin-ríki. Ís- lendingarnir sem kepptu á leik- unum höfðu staðið sig með prýði þegar þrjár keppnir af fjórum á mótinu voru afstaðnar. Í gær var keppt í götuhjólreiðum, svoköll- uðum „muscle-ups“ eða lyftum í hringjum og crossfit-lyftingum. Eftir þær greinar var Björgvin Karl Guðmundsson í fimmta sæti með 186 stig í flokki karla. Annie Mist Þórisdóttir var einnig í fimmta sæti í kvennaflokki með 188 stig. Í fjórtánda sæti var Ragnheiður Sara Sigmunsdóttir með 150 stig og rétt á eftir henni í fimmtánda sæti var Katrín Tanja Davíðsdóttir, einnig með 150 stig. Katrín Tanja kom þriðja í mark í hjólreiðakeppninni og hafði leitt hópinn um skeið áður en hún missti tvo fram úr sér. Þá var nýliðinn Oddrún Eik Gylfadótt- ir í 25. sæti með 108 stig. Þegar Morgunblaðið fór í prent- un stóð yfir fjórða keppni dagsins, maraþonróður, en þá þurfa kepp- endur að róa yfir 43 kílómetra í róðrarvél á innan við fjórum tím- um. ninag@mbl.is Íslendingarnir stóðu sig vel í crossfit  Fyrsti dagur heimsleikanna í gær Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Við erum að bíða eftir hreyflum í nýja Aribus 321 NEO-vél sem við áttum að fá afhenta í maí en fáum ekki af- henta fyrr en í desember. Miklar tafir hafa verið frá Airbus á öllum Airbus 321 NEO-vélum. Vegna þessara tafa felldum við niður flug okkar frá Birmingham,“ segir Andri Már Ing- ólfsson, stjórnarformaður og eigandi Primera Air. Hann segir að 4.000 far- þegar hafi átt pantað frá Birming- ham til Malaga og Mallorca í nóv- ember og desember og þeir hafi verið látnir vita. Það hafi verið hreinlegast að loka starfsstöðinni í Birmingham í lok september vegna tafa á afhendinu á nýju þotunni. Nýr og spennandi kafli Andri Már segir að nýr og spenn- andi kafli í sögu Primera Air sé að hefjast með tilkomu Airbus 321 NEO. „Við fengum fjórðu Airbus 321 NEO-vélina af átta afhenta í Ham- borg á mánudag en hana átti að af- henda fyrir tveimur mánuðum. Vélin mun fljúga milli Parísar og New York, en í dag flýgur félagið frá London til New York, Toronto og Boston. Frá Skandinavíu flýgur fé- lagið frá Kaupmannahöfn, Stokk- hólmi og Billund. Vélarnar eru búnar nýjustu tegundum hreyfla sem gera það að verkum að þær geta flogið yfir Atlantshafið án þess að vera breið- þotur,“ segir Andri Már og bætir við að Primera Air verði fyrsta flugfélag- ið í heiminum sem flýgur langdræg- um vélum með einum gangi (e. single aisle) yfir Atlantshafið og segir engar vélar í heiminum í dag jafnast á við þær í hagkvæmni. Andri Már segir að fimmta Airbus 321 NEO-vélin verði afhent 10. ágúst og 10 nýjar Boeing Max 9-ER verði teknar í notkun næsta sumar. Þær munu sinna flugi frá Evrópu til Bandaríkjanna og Kanada. Vaxtarskeið fram undan Að sögn Andra Más tekur Airbus 321 Neo-vél 198 farþega í sæti og af þeim eru 16 Premium Class-sæti. „Við erum að fara í mest spennandi vaxtarskeið í sögu fyrirtækisins og nýju vélarnar hafa áhrif á framþróun á mörgum leiðum yfir Atlantshafið með lægri fargjöldum og tíðari ferð- um,“ segir Andri Már sem segir að enginn hafi átt von á því að tafir á af- hendingu vélanna yrðu eins miklar og raun ber vitni. „Þegar við pöntuðum okkar vélar var afgreiðslufrestur tvö ár frá pöntun. Ef flugvél er pöntuð í dag er hún í fyrsta lagi afhent árið 2023,“ segir Andri Már. Stefnir í 32 milljarða veltu Líkt og fram kom í Viðskipta- Mogganum nýlega nam velta félags- ins á síðasta ári 23,7 milljörðum króna og stefnir í 32 milljarða á þessu ári. Hagnaður félagsins var 604 millj- ónir á síðasta ári ( EBITDA) og hagnaður fyrir skatta 166 milljónir króna. Var hagnaður lakari en spár gerðu ráð fyrir og munaði þar mestu um einskiptiskostnað sem féll til vegna tæringar í einni véla félagsins, en félagið missti hana úr rekstri í 10 mánuði. Í dag eru allar vélar félags- ins í fullum verkefnum. Á árinu 2018 flytur félagið um 1,5 milljónir far- þega. Tafir á afhendingu valda röskun  Primera fellir niður flug til og frá Birmingham  Hefur áhrif á 4.000 farþega  Félagið tekur nýjar og langdrægari vélar í notkun  Forstjóri félagsins segir að nú sé spennandi vaxtarskeið fram undan Morgunblaðið/ÞÖK Nýtt Primera Air tekur nú í notkun nýjar vélar, bæði frá Boeing og Airbus.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.