Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Út er komin ný plata fráJóaPé og Króla semheitir Afsakið hlé.Fyrsta plata þeirra, An-
anas, kom út á fyrri helmingi 2017
en flestir heyrðu fyrst af þeim er
platan GerviGlingur kom út síðasta
haust. Sú útgáfa
var í kjölfar stór-
sigurs þeirra og
eins áhugaverð-
asta innbrots inní
íslenskan tónlist-
arheim síðari
ára, en það átti
sér stað með lag-
inu „B.O.B.A.“ Þegar þetta er ritað
hafa ríflega ein komma tvær millj-
ónir horft á það myndband á You-
Tube sem hlýtur að teljast einhvers
konar met fyrir efni frá nýrri
hljómsveit.
Ég er ein þeirra sem kolféllu fyr-
ir „B.O.B.A.“ en fannst GerviGling-
ur kannski ekki alveg öll jafn-
skemmtileg. Hún átti sína spretti
en það var jafnframt skiljanlegt að
platan í heild sinni væri minna gríp-
andi en smellurinn þeirra og enginn
bjóst við neinu af svona ungum og
reynslulitlum tónlistarmönnum.
Fyrir nýju plötuna, Afsakið hlé,
hljóta þeir Kristinn Óli Haraldsson,
einnig þekktur sem Króli, og Jó-
hannes Damian Patreksson, einnig
þekktur sem JóiPé, að hafa fundið
fyrir því að nú væri pressa á þeim,
en samt taka þeir sér heldur
skamman tíma til að ganga frá út-
gáfu á þriðju plötunni, og það er
líka það sem helst má finna að
henni.
Lög plötunnar hljóma mjög vel
en mér finnast þau bara vera allt of
mörg. Ef nýja efnið hefði fengið ör-
lítið meiri tíma til að anda áður en
kom að útgáfu hefði eitthvað líklega
dottið út og lögin sem lifðu af nið-
urskurð hefðu verið mun sterkari
heildarmynd, og betri plata. Fyrir
vikið eru nokkur lög keimlík, annað
hvort með svipuðum sönglínum eða
álíka tempói eða töktum. Það er
vissulega metnaðarfullt að senda
frá sér 15 lög í fullri lengd ásamt
inngangs- og útgangslagi en þetta
veikir heildarmyndina.
Platan byrjar ágætlega með
„Sjúkir í mig“ þar sem Emmsé
Gauti er gestur en svo dettur öll
stemmning niður og ekkert mikið
gerist fyrr en í næsta gestalagi,
„Sósa“, sem er númer sjö og þar
kíkir Aron Can í heimsókn. Lögin
„Þriggja rétta ásamt Herra Hnetu-
smjör“ og „Stjörnur ásamt Smjörva
og Helga A“ eru bæði frábær, og
persónulega finnst mér hið síðast-
nefnda vera sterkasta lag plöt-
unnar. Það nær manni alveg á sitt
band og tekur yfir nokkrar heila-
frumur sem ákveða að fara að stýra
því hvað ég er með á heilanum
næstu vikur og jafnvel mánuði.
Við erum komin að staðnum í
þessum dómi þar sem ég velti upp
spurningum sem ég hef alls engin
svör við, en það þarf samt að spyrja
þeirra: Hvers vegna eru lögin þar
sem JóiPé og Króli fá gesti í heim-
sókn bestu lög plötunnar? Þetta, og
hvers vegna ákveðið var að hafa lög
plötunnar svona mörg eru stórar
spurningar, en hluti af svarinu er
þó áreiðanlega hversu ungir og
reynslulitlir þessir strákar eru.
Augljóslega fær maður samt ekki
reynslu öðruvísi en að gera hlutina,
og það er miklu betra að gefa út
plötu sem er ekki fullkomin en að
gefa enga plötu út og fyrir það er
ég, sem mikill áhugamaður um ís-
lenska tónlist, afar þakklát!
Eitt af því besta við stórsmellinn
„B.O.B.A.“ var hversu einlægir
þessir ungu og hressu strákar voru,
og útgeislun þeirra var eitthvað svo
ekta, og þeir voru heldur ekkert
hræddir við að vera með alls kyns
furðulegan húmor í textanum, og
það eitt skipaði stóran sess í vin-
sældum lagsins. Það er mjög auð-
velt að detta í einhverjar stellingar,
sérstaklega á jafnlitlu landi og Ís-
land er, og margir textar plötunnar
endurspegla svolítið að það sé ekki
verið að grafa mjög djúpt í leit að
skemmtilegum hlutum til að syngja
og rappa um. Margir textanna fjalla
því um öfund annarra sökum
skyndilegrar velgengni JóaPé og
Króla annars vegar og hversu mikla
peninga þeir eru að þéna hins veg-
ar. Það eru frekar miklar klisjur
sem eru mjög þekktar innan rapp-
tónlistar og tvímælalaust afturför
eftir húmorinn og gleðina í
„B.O.B.A.“. Það er þó eitt lag og
texti þar sem mér finnst ég finna
fyrir einlægni og er það lagið „Graf-
ið ekki gleymt“, en það er einmitt
svona lag sem vinnur á við hverja
hlustun.
Þegar upp er staðið er þetta
mjög fín plata, og tvímælalaust
meira „verk“ en þau sem á undan
eru komin. Þarna finnur maður að
þetta eru ungir menn sem langar að
vera teknir alvarlega og hafa heil-
brigðan metnað fyrir sínu efni. Að
sama skapi finnur maður líka
hvernig platan hefði getað orðið
betri en slíkt er bæði skiljanlegt og
jafnvel nauðsynlegt þegar maður er
að þroskast og þróast sem tónlistar-
maður. Ég vona að JóiPé og Króli
leggist í lestur bóka og áhorf
áhugaverðra kvikmynda og fari svo
í mörg ferðalög á framandi staði áð-
ur en næsta plata kemur út, því
með því er pottþétt að textarnir
verða betri. Hljóðheimurinn er
kominn og þeir kunna alveg að gera
flotta tónlist. Best væri að næsta
plata myndi sleppa því algjörlega að
segja okkur frá því hve mikla vinnu
þeir félagar taka að sér og hve
hratt veski þeirra þykkna. Það er
varla nokkuð sem ég gæti hugs-
anlega haft minni áhuga á. Heldur
myndi ég vilja texta um söfnun
þeirra á naflakuski! Það gæti að
minnsta kosti ekki orðið verra.
Ekkert hlé
Morgunblaðið/Eggert
Rapp
JóiPé x Króli – Afsakið hlé bbbnn
Afsakið hlé er þriðja plata JóaPé og
Króla, gefin út rafrænt á Spotify 2018.
17 lög, 46 mínútur.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Vinsælir „Ég vona að JóiPé og Króli leggist í lestur bóka og áhorf áhugaverðra kvikmynda og fari svo í mörg ferða-
lög á framandi staði áður en næsta plata kemur út, því með því er pottþétt að textarnir verða betri,“ skrifar rýnir.
Jón Kalman Stefánsson er einn 47
rithöfunda víða að úr heiminum sem
Nýja akademían í Svíþjóð hefur val-
ið í samstarfi við bókaverði þar í
landi og býðst almenningi nú að
kjósa um hver þeirra hreppir ný
bókmenntaverðlaun sem afhent
verða í haust og aðeins í það eina
skipti.
Á annað hundrað sænskra menn-
ingarfrömuða, sem eru ósáttir við þá
ákvörðun Sænsku akademíunnar að
veita ekki sökum hneykslismála
Nóbelsverðlaun í bókmenntum í ár,
stofnuðu á dögunum svokallaða
Nýju akademíu, sem ætlað er að
veita verðlaun á sama tíma og Nób-
elsverðlaunin eru alla jafna veitt, í
byrjun desember.
Nýja akademían fól bókavörðum í
Svíþjóð að tilnefna höfunda sem
þeim þykja skara fram úr í dag.
Listinn með 47 nöfnum var opinber-
aður um miðjan júlí og getur al-
menningur nú kosið þann sem þykir
vænlegastur verðlaunahafa.
Höfundar frá 16 löndum eru á list-
anum, flestir frá Bandaríkjunum, 13,
en 12 eru sænskir. Sjö eru frá Bret-
landseyjum, þrír frá Kanada, og
tveir frá Frakklandi og Ítalíu. Einn
höfundur er tilnefndur frá, auk Ís-
lands, Sviss, Finnlandi, Japan, Ind-
landi, Guadeloupe, Póllandi, Kenýa,
Nígeríu og Ísrael. Meðal höfund-
anna eru stjörnur
á borð við Marg-
aret Atwood, Ha-
ruki Murakami,
Paul Auster,
Joyce Carol
Oates, Amos Oz,
Zadie Smith,
Cormac
McCarthy, Ian
McEwan, J.K.
Rowling, Patti
Smith, Arundhati Roy, Thomas
Pynchon, Anne Carson og Elena
Ferrante.
Aðstandendur Nýju akademíunn-
ar sögðu hana stofnaða til að minna
fólk á að bókmenntir og menning
ættu að stuðla að lýðræði, gagnsæi,
samúð og virðingu, án forréttinda,
hroka eða mismununar.
Þá segir að á tímum þegar í sí-
auknum mæli sé efast um mannleg
gildi verði bókmenntir sífellt mik-
ilvægara afl til að koma í veg fyrir
þöggun og kúgun. Fyrir vikið telur
Nýja akademían að kunnustu bók-
menntaverðlaun jarðar séu það mik-
ilvæg að það hefði átt að veita þau í
ár – en fyrst svo verður ekki var
stofnað til þessara nýju verðlauna til
að veita í eitt skipti og að því loknu
verður Nýja akademían leyst upp.
Áhugasamir geta valið höfund á
vefnum dennyaakademien.com
Jón Kalman meðal
47 tilnefndra höfunda
Jón Kalman
Stefánsson
Glæsilegt úrval
af trúlofunar- og
giftingarhringa-
pörum
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Verð á pari: 239.181 kr.
ICQC 2018-20