Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þegar unnið var að því í gær að grafa fyrir nýjum frárennslislögnum við austurenda Tollhússins í Kvos- inni var komið niður á eina frægustu bryggju í Reykjavík, Steinbryggj- una. Bryggjan fór undir uppfyllingu árið 1940 og hefur verið hulin sjón- um manna í áratugi. Er hún talin vera nokkuð heilleg. Nú er unnið að því að endur- gera svæðið milli Tollhússins og hins nýja Hafnartorgs, sem hefur verið í byggingu. Þessi kafli, milli Tryggva- götu og Geirsgötu, tilheyrði áður Pósthússtræti en mun framvegis heita Steinbryggja. Þór Gunnarsson, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg, tjáði Morgunblaðinu að frárennslis- lögnunum yrði fundinn annar staður, nær Hafnartorginu. Þar er önnur lögn sem liggur dýpra. Fornleifafræðingar fylgjast grannt með framkvæmdunum, enda er Steinbryggjan friðuð. Hin nýja gata, Steinbryggjan, verður malbikuð og lögð steinum. Verklok eru áætluð í október. Verk- taki er Lóðaþjónustan ehf. Steinbryggjan var gerð sumarið 1884 úr tilhöggnum steini og var þá hið mesta mannvirki sem Reykjavík hafði ráðist í. Júlíusi Schou stein- höggvara var falin umsjá verksins. Hún átti að heita Bæjarbryggja en var alltaf kölluð Steinbryggja. Þótti hún framför miðað við trébryggjurn- ar úti af fjörukambinum í Reykjavík Bryggjan var fyrsti viðkomu- staður þeirra sem komu til Reykja- víkur. Þegar Friðrik VIII. Danakon- ungur kom til landsins 1907 gekk hann upp á Steinbryggjuna. Einnig Kristján 10. og Alexandrína drottn- ing árið 1921. Var bryggjan þá fagurlega skreytt. Steinbryggjan fræga skaut upp „kollinum“ Ljósmynd/Jón Halldór Jónasson Steinbryggjan Hin gamla bryggja er heilleg að sjá þar sem hún er grafin undir yfirborði jarðar við Tollhúsið.  Bryggjan hefur verið hulin sjónum manna í áratugi Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Eskihvammi í Kópavogi frá upphafi sumars, en þar fara fram skipti á helstu leiðslum og lögnum sem liggja um götuna. Sveinn Guðsteinsson, hjá verktakafyrirtækinu Auðverk sem sér um framkvæmd verksins, segir að framkvæmdin sé talsvert umfangs- meiri en ráðgert hafði verið í upphafi. Áætluð verklok voru 5. ágúst nk. en nú þykir ljóst að það náist ekki og seg- ir Sveinn að verklokum muni seinka um mánuð hið minnsta. „Þetta er miklu meira verk en við höfðum gert ráð fyrir í upphafi. Það þarf að end- urnýja nánast allar leiðslur í götunni auk þess sem lagnirnar eru miklu fleiri en við bjuggumst við,“ segir Sveinn og bætir við að endurnýjun leiðslna í götunni hafi verið löngu tímabær. „Það er allt orðið eldgamalt og ónýtt hérna enda eru þessar helstu leiðslur orðnar 60 ára gamlar. Þá er- um við að tala um skólpið, rafmagnið og annað í þeim dúr,“ segir Sveinn. Eins og fyrr segir hefur verklokum í Eskihvammi verið frestað um mán- uð en búist er við að framkvæmdinni ljúki 15. september. Upphafleg kostn- aðaráætlun verksins hljóðaði upp á 70 milljónir króna en að sögn Sveins mun heildarkostnaður framkvæmd- arinnar fara töluvert fram úr áætl- unum. Spurður um kostnað við verkið seg- ir hann að erfitt sé að fullyrða um það að svo stöddu. „Það er svakalega erf- itt að spá fyrir um það en þetta er augljóslega verkefni sem fer fram úr upphaflegum plönum. Það er oft þannig með þessi verk að þegar hafist er handa kemur í ljós að framkvæmd- in er miklu meiri en hún átti að vera,“ segir Sveinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdir Búið er að grafa upp götuna í Eskihvammi. Nú fara þar fram skipti á helstu leiðslum og lögnum, en verklok eru áætluð eftir um mánuð. Meira verk en í upphafi var talið  Miklar framkvæmdir í Eskihvammi Framkvæmdir í Eskihvammi » Upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 70 milljónir króna en ljóst er að kostnaður verður talsvert meiri. » Verklokum hefur verið frest- að um einn mánuð, til 15. september. » Skipta á um allar helstu leiðslur og lagnir í götunni enda eru þær orðnar um 60 ára gamlar. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Sameiginlegur leikskóli og grunn- skóli á Tálknafirði, Tálknafjarðar- skóli, verður ekki rekinn af Hjalla- stefnunni ehf. á næsta ári, líkt og verið hefur. Fækkun barna í bænum er meðal ástæðna fyrir því að Hjalla- stefnan hættir rekstri í sveitarfé- laginu. Hjallastefnan, undir stjórn Margrétar Pálu Ólafsdóttur, hefur haft reksturinn með höndum frá árinu 2012 og veitti menntamála- ráðuneytið þróunarskólastyrk vegna verkefnisins til þriggja ára. Nýr skólastjóri ráðinn í vor Bjarnveig Guðbrandsdóttir, odd- viti Tálknafjarðarhrepps, segir að sveitarfélagið skilji sátt við Hjalla- stefnuna og engin leiðindi séu í spil- unum. Að miklu leyti verður haldið í þá stefnu sem mörkuð var með Hjallastefnunni á Tálknafirði. „Við viljum halda því sem var gott og sækja í stefnuna það sem okkur langar að hafa. Það gerir góðan skóla að enn betri skóla,“ segir Bjarnveig. Skólinn verður rekinn af sveitarfé- laginu með hefðbundnu sniði í op- inberum rekstri grunn- og leikskóla. Aðspurð kveðst Bjarnveig ekki hafa trú á því að breytt rekstrarform hafi áhrif á útgjöld Tálknafjarðarhrepps vegna skólamála. Sömu starfsmenn verða í skólan- um í vetur og áður voru, en Sigurður Örn Leósson var í vor ráðinn nýr skólastjóri. Fluttist hann í kjölfarið til Tálknafjarðar ásamt konu sinni. „Okkur finnst mikill fengur að hafa fengið þau,“ segir Bjarnveig. Sem stendur verða 40 börn í grunnskólanum og sex í leikskólan- um næsta vetur. Áætlaður fjöldi er á reiki því möguleiki er á að nokkrar fjölskyldur setjist að í bænum. Bærinn tekur við rekstri skólans  Hjallastefnan hættir á Tálknafirði Morgunblaðið/Kristinn Tálknafjörður Leikskólabörn í Tálknafjarðarskóla að leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.