Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 44
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
✝ SigurðurBjörgvinsson
fæddist í Stóru
Borg undir Austur-
Eyjafjöllum 10. jan-
úar 1942. Hann lést
25. júlí 2018 á
Kirkjuhvoli, dval-
arheimili aldraðra
á Hvolsvelli.
Hann var sonur
Sigríðar Sigurð-
ardóttur í Stóru
Borg f. 6.10. 1897, d. 5.2. 1990
og Björgvins Ingvarssonar
bónda í Klömbru í sömu sveit, f.
11.10. 1897, d. 29.4. 1969.
Sigurður bjó alla
tíð í Stóru Borg,
fyrst með móður
sinni og Helgu Sig-
urðardóttur móð-
ursystur sinni en
hún lést 12.1. 1972.
Eftir andlát þeirra
bjó hann áfram
einn í Stóru Borg.
Sigurður var
ógiftur og barn-
laus.
Útför Sigurðar fer fram í dag
frá Eyvindarhólakirkju, Austur-
Eyjafjöllum, 2. ágúst 2018, og
hefst athöfn kl. 14.
Látinn er frændi okkar hann
Siggi í Borg eins og hann var
jafnan kallaður. Hann og móðir
okkar voru systrabörn og ólumst
við upp við það að ávallt var gott
samband við frændfólk okkar í
Stóru Borg. Móðir okkar ólst upp
í Steinum og kom þangað tveggja
vikna gömul þegar Vilborg amma
okkar fór á Vífilsstaði vegna
berkla. Fósturforeldrum hennar
ber að þakka hversu ötul þau
voru að viðhalda sambandi við
hennar nánasta fólk. Siggi var í
eðli sínu hlédrægur og ekki marg-
máll þegar gesti bar að garði.
Þrátt fyrir hlédrægnina tók hann
þátt í félagsstörfum í sveitinni og
sat m.a. um tíma í hreppsnefnd og
var virkur í leikfélaginu.
Siggi hafði áhuga á lestri góðra
bóka og ættfræði. Hann hafði sér-
stakar mætur á ljóðum og til
marks um það kunni hann nánast
öll ljóð Einars Ben. Siggi var auk
þess sjálfur ágætur hagyrðingur.
Íslendingasögur voru í miklu
uppáhaldi hjá honum og þá eink-
um Njála. Njálssynir voru hans
menn. Siggi var einnig vel heima í
sögu Stóru Borgar og fylgdist
hann grannt með þegar fornleifa-
uppgröftur fór þar fram á seinni
hluta tuttugustu aldar. Vegna
eldgossins í Eyjafjallajökli 2010
þurfti Siggi að yfirgefa heimili
sitt og dvaldi þá um tíma á
hjúkrunarheimilunum í Vík og á
Kirkjubæjarklaustri. Hugurinn
var þó alltaf bundinn við Stóru
Borg og sveitina hans Austur-
Eyjafjöllin. Þegar hann komst
aftur heim og gosinu var lokið
sagði hann eitt sinn við okkur að
ekki liði á löngu þar til við fengj-
um aftur sveitina okkar fögru.
Þar reyndist hann sannspár.
Fljótlega upp úr þessu fór að
halla undan fæti og árið 2014
fluttist Siggi á Kirkjuhvol, dval-
arheimili aldraðra á Hvolsvelli.
Hann naut þar góðrar umönnun-
ar og viljum við aðstandendur
færa starfsfólki heimilisins okkar
bestu þakkir.
Að lokum viljum við þakka
Sigga sérstaklega fyrir frænd-
semi og góðan hug til okkar.
Vilborg, Jóhann, Elín
Rut og fjölskyldur.
Sigurður
Björgvinsson
Elsku amma, í
dag kveðjum við
þig með söknuði. Mikið finnst
okkur skrítið og tómlegt að þú
sért farin frá okkur og munum
aldrei getað komið til þín aftur og
verið vissar um það að það væri
nóg af nammi í öllum skálum. Þú
passaðir alltaf upp á það að mað-
ur færi aldrei svangur út frá þér
og passaðir líka alltaf upp á það
að við ættum alltaf nóg af sokk-
um og vettlingum sem þú prjón-
aðir fyrir okkur svo okkur yrði
aldrei kalt. Þú hefur alltaf sýnt
okkur hversu mikil hetja þú varst
þar sem þú kvartaðir aldrei og
fannst alltaf björtu hliðarnar á
öllu, sama hvernig aðstæðurnar
voru. Við munum alltaf muna eft-
ir þér sem hetjunni í fjölskyld-
unni sem var alltaf til staðar fyrir
alla. Þú stóðst með okkur í öllu
sem við gerðum og sýndir öllu því
svo mikinn áhuga og varst alltaf
stolt. Við eigum svo mikið af góð-
um minningum með þér sem við
erum svo þakklátar fyrir og mun-
um aldrei gleyma. Elsku amma,
þú munt alltaf eiga svo stóran
stað í hjörtum okkar allra og við
viljum þakka þér fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir okkur, þú varst
einstök.
Við vitum að þú ert á betri stað
með afa.
Elskum þig endalaust.
Guðrún Unnur, Hildur
María og Sigurbjörg Sara.
Elsku amma okkar.
Við viljum þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir okkur.
Amma Unnur var besta amma
í heimi. Þú varst alltaf góð við
alla.
Elsku besta amma Unnur,
takk fyrir alla hlýju sokkana sem
þú prjónaðir handa okkur krökk-
unum og sleikjóana, nammið,
knúsin og allt sem þú gerðir fyrir
okkur. Okkur þykir vænt um þig.
Við munum aldrei gleyma þér og
góðu stundunum okkar saman.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín langömmubörn,
Elías Breki, Eyrún Birna,
Sigurbjörg Embla,
Bendik, Elva María,
Haraldur Hrafn og Ylfa.
Unnur
Haraldsdóttir
✝ Unnur Har-aldsdóttir
fæddist 27. októ-
ber 1933. Hún lést
23. júlí 2018.
Útför hennar
fór fram frá Lága-
fellskirkju í Mos-
fellsbæ í gær, 1.
ágúst 2018.
Elsku hjartans,
yndislega amma
okkar.
Það er þyngra en
orð fá lýst að hugsa
til þess að þú sért
fallin frá. Það sem
okkur þykir sárt að
stundirnar okkar
hér verða ekki fleiri.
Missir þinn skilur
eftir djúpt skarð í
hjörtum okkar sem
aldrei verður fyllt.
Það sem þú hefur gert fyrir
okkur systkinin í gegnum líf okk-
ar er ómetanlegt. Alltaf hefur þú
verið til staðar fyrir okkur, við er-
um búin að ganga saman í gegn-
um ýmislegt bæði í gleði og sorg
og vitum við hreinlega ekki hvar
við værum ef við hefðum ekki
haft þig og fyrir það erum við þér
ævinlega þakklát.
Þið afi veittuð okkur og elsku
pabba svo mikla hlýju,ást og um-
hyggju og öryggi þegar mamma
okkar lést. Heimili ykkar varð
okkar og gerðuð þið bókstaflega
allt fyrir okkur á þeim erfiðu
stundum og gerðuð það alla tíð.
Að hugsa til þess að geta ekki
komið til þín, elsku amma, á þitt
fallega hlýja og notalega heimili,
spjallað við þig um heima og
geima sem var nú ósjaldan, skoð-
að með þér fallegu prjónalista-
verkin þín sem við öll stór og smá
nutum heldur betur góðs af. Allt-
af hefur þú séð til þess að við og
börnin okkar höfum átt hlý
prjónaföt frá þér sem öll voru
sannkölluð listaverk eins og allt
sem þú gerðið.
Já, elsku amma, þér var margt
til lista lagt, þú varst engin venju-
leg kona. Þú varst þvílíkur dugn-
aðarforkur, mikil handavinnu-
kona, einstaklega barngóð með
stórt hjarta og gullfalleg að innan
sem utan.
Elsku hetjan okkar, þú varst
kletturinn okkar og verður það
alltaf í hjörtum okkar.
Að fylgjast með þér eftir að þú
fékkst þær fréttir núna í mars að
þú værir með ólæknandi sjúkdóm
var aðdáunarvert, eins og alltaf
tókst þú á við þetta verkefni með
hetjudáð, jákvæðni og þraut-
seigju alveg fram á síðasta dag.
Nú vitum við, elsku amma, að
þú ert komin í sumarlandið og
þar hafa verið fagnaðarfundir.
Afi, pabbi okkar og mamma
ásamt fleirum hafa tekið vel á
móti þér.
Það verður sárt og tómlegt án
þín en í hjörtum okkar lifir þú alla
tíð. Við munum svo sannarlega
miðla öllu því góða til okkar
barna sem þú kenndir okkur.
Hvíldu í friði, elsku yndislega
amma okkar, takk fyrir öll sam-
tölin sem við áttum og samveru-
stundirnar okkar með þér.
Elskum þig, engillinn okkar.
Þín
Unnur Ósk, Helga Björk og
Magnús Már Byron.
Sunnudaginn 22.
júlí kom símtalið
sem við höfðum ótt-
ast svo mjög, Þór-
hallur Birkir, frændi okkar, var
látinn aðeins 25 ára að aldri.
Höggið var þungt og eftir sitj-
um við vanmáttug og sorg-
mædd. Fíknin hafði sigrað. Þór-
hallur hafði barist lengi og við
hlið hans alla tíð foreldrar hans
og systkini. Nú var baráttan
töpuð. Þórhallur var mér kær
frændi, góðhjartaður og mikil
barnagæla alla tíð. Snemma
kom í ljós að hann var kraftmik-
ill og sem barn var hann ætíð
glaðlyndur og hrókur alls fagn-
aðar í krakkahópnum frá Öng-
ulsstöðum.
Elsku Þórhallur, þú komst
síðastur af okkur systkinabörn-
unum og nú ert þú fyrstur til
þess að kveðja. Þegar þú fædd-
ist, elsku frændi, hafði ég nýver-
ið gengið í gengum mikla sorg
og man ég að það var mér hugg-
un að fá að heimsækja ykkur
mæðgin, skipta á þér og kalla
fram bros sem var auðfengið. Á
milli okkar lágu 19 ár og fylgdist
ég því með þér sem stóra
frænka fremur en leikfélagi. Á
meðan afa og ömmu naut við
vorum við þéttur hópur sem
hittist oft. Í seinni tíð leið lengra
á milli þess að við hittumst en
reglulega skiptumst við á skila-
boðum, síðustu ár enduðu skila-
Þórhallur Birkir
Lúðvíksson
✝ Þórhallur Birk-ir Lúðvíksson
fæddist 21. júní
1993. Hann lést 22.
júlí 2018.
Jarðsett var í
gær frá Akureyrar-
kirkju, 1. ágúst
2018.
boðin þín ávallt á
þeim orðun að þú
baðst mig að kyssa
Halla litla frá þér.
Mér þótti vænt um
að heyra hversu
ánægður þú varst
að eignast lítinn
nafna og nei, minn
kæri, nafnið var svo
sannarlega ekki
ónýtt. Ekki síður
þótti mé vænt um
þegar þú reyndir að heimsækja
okkur nafna þinn á Vökudeild-
ina þegar við dvöldum þar. Þór-
hallur minn ber nú nafn tveggja
af bestu og hjartahreinustu ein-
staklinga sem ég hef þekkt.
Baráttan var orðin löng og ég
veit að þú varst þreyttur, þú
hættir samt aldrei að reyna að
snúa við blaðinu. Fíknin er
harður húsbóndi en þrátt fyrir
veikindi þín tapaðir þú aldrei
þínum góðu eiginleikum.
Hjartahlýjunni og umhyggju
fyrir öðrum. Það höfum við upp-
lifað sterkt síðustu viku.
Það er komið að kveðjustund
um sinn. Við kveðjum þig með
þakklæti fyrir góða samfylgd.
Við kveðjum þig í þeirri trú að
nú líði þér vel, þú hafir öðlast
frið.
Elsku vinur í minningu þinni
munum við lifa undir því leið-
arljósi að við eigum aðeins eitt
líf og í þinni minningu reynum
við að lifa því vel. Minning þín
mun lifa og ég mun reglulega
kyssa Halla litla frá þér.
Elsku frændi, hafðu þökk fyr-
ir samfylgdina. Minning um
góðan dreng mun lifa í hjörtum
okkar alla tíð.
Þín frænka
Guðný Jóhannesdóttir.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÓLAFUR K. GUÐMUNDSSON,
fyrrv. aðst. yfirlögregluþjónn,
lést á líknardeild Landspítalans
föstudaginn 27. júlí.
Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði þriðjudaginn 7. ágúst klukkan 13.
Sigurlaug J. Jónsdóttir
Guðmundur Rúnar, Elínborg Jóna, Kristín,
Ólafur Erling og fjölskyldur
Ástkær sambýlismaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir
og mágur,
ANDRÉS PÉTUR EYJÓLFSSON,
Læk, Holtum,
búsettur í Lóurima 7, Selfossi,
andaðist sunnudaginn 26. júlí á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Hann verður jarðsettur frá Hagakirkju í Holtum laugardaginn
4. ágúst klukkan 14.
Rannveig Harðardóttir
Sigurborg S. Andrésdóttir Kristján Nielsen
Guðrún Andrésdóttir Sigurður J. Hallbjörnsson
Lilja Björk Andrésdóttir Kristján Ingi Magnússon
Sóley H. Guðbjörnsdóttir Björgvin Pálmi Daníelsson
Jósep Friðrik Guðbjörnsson
Ósvald H. Indriðason
Hilma Dögg Hávarðardóttir Sigursteinn Jónsson
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir Óskar Konráðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku afi minn,
óraunveruleikinn
blasir við mér þeg-
ar ég hugsa til þess að þú sért
farinn frá mér. Ég er ekki bara
að kveðja afa minn heldur góð-
an vin, vin sem ég hef átt frá
fæðingu. Fyrirmynd, þúsund-
þjalasmiður, þrjóskur en um-
fram allt konungur fimmaura-
brandaranna. Kæri vinur, þegar
ég horfi yfir farinn veg og
hugsa um allar minningarnar
og stundirnar sem við áttum
saman þá sé ég enn betur hvað
ég er heppinn að hafa haft þig í
mínu lífi, ég er óendanlega
þakklátur fyrir allt sem þú
kenndir mér og ég er þakklátur
fyrir að bera sama nafn og þú.
Ég var mjög ungur þegar ég
man eftir mér með þér fyrst
uppí bústað í kraftgalla með
tommustokk í vasanum alveg
eins og þú. Fyrir ungan dreng
að fá að elta afa sinn og læra að
verða vinnumaður eins og hann
var gulls ígildi. Minningarnar
áttu eftir að verða mun fleiri í
bústaðnum þú í sama stólnum
með kaffið, rabbaðir um daginn
og veginn og skaust inn einum
og einum brandara. Við fórum
svo að sjálfsögðu aldrei yfir
Hvítá á leið okkar í bústaðinn
nema ég sæti í fanginu á þér og
fengi að stýra. Þegar þú kennd-
ir mér á sláttuvélina og ekki var
ég gamall þegar ég var farinn
að stjórna henni einn. Á milli
þess sem við eyddum tíma okk-
ar í bústaðinum var ég svo
heppinn að fá að ferðast með
þér, ömmu, mömmu pabba og
síðar meir Degi Lár, litla bróð-
ur mínum, sem er líka svo
heppinn að hafa fengið að eiga
þig að. Öll þessi ferðalög gerðu
mig að fróðari manni og fjölg-
uðu minningunum. Við Látra-
Diðrik Óli
Hjörleifsson
✝ Diðrik ÓliHjörleifsson
fæddist 28. júlí
1942. Hann lést 20.
júlí 2018.
Útför Diðriks fór
fram frá Breið-
holtskirkju 28. júlí
2018.
bjarg í miklum
vindi þegar derhúf-
an sem ég hafði
gefið þér með text-
anum „Afi Diddi“
fauk af þér varð ég
nú ekki sáttur með
þig, en útfrá því fór
ég að safna derhúf-
um alveg eins og
þú. Þegar þið
amma selduð sum-
arbústaðinn og
fluttuð í Hveragerði eignaðist
ég nýja „sveit“. Hjá ykkur
eyddi ég mörgum nóttum og
m.a. var ég hjá ykkur part úr
sumri þegar þú ákvaðst að
byggja stærðarinnar bílskúr.
Ég djöflaðist með þér allan
daginn við vinnuna á meðan
amma sá um kaffið. Þetta er
bara brot af þeim ánægjulegu
minningum sem ég á. Maturinn
þinn var alltaf í uppáhaldi, þú
varst snillingur í að elda alvöru
íslenskan mat. Svo ég tali nú
ekki um þegar ég fékk að sitja
með þér í mjólkurbílnum. Á
seinni árum þegar ég kynnist
svo Rebekku, kærustunni
minni, var yndislegt að sjá
hvernig þú og hún urðuð góðir
vinir, þú sýndir henni hvað það
var alltaf stutt í húmorinn og
hún tók þér eins og sínum eigin
afa. Undir lokin var alltaf gam-
an að koma til þín á spítalann
ræða málin og hlusta á brand-
arana. Það var aðdáunarvert að
sjá hvað þú hélst í húmorinn,
sama hversu veikur þú varst
orðinn. Þú skemmtir starfsfólk-
inu eins og enginn væri morg-
undagurinn og er ég viss um
það að frábæru starfsfólki
Landspítalans sem hugsaði svo
vel um þig hefur ekki leiðst að
hafa þig hjá sér.
Elsku vinur minn, besti afi í
heimi, það eru ekki til nein
nógu stór orð til þess að lýsa
því hvað söknuðurinn og sorgin
er mikil. Á sama tíma er ég
glaður að þú skulir vera kominn
til ömmu og fáir að hvíla henni
við hlið. Fallegustu englarnir
mínir sem munu alltaf eiga
stóran stað í hjartanu mínu.
Grímur Óli Geirsson.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar