Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Veiðieftirlitsmenn í Stykkishólmi og á Höfn í Hornafirði
Fiskistofa óskar eftir að ráða tvo metnaðarfulla og jákvæða starfsmenn í veiðieftirlit,
einn á hvora starfstöð.
Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og
þekkingarmiðlun.
Starfandi veiðieftirlitsmenn eru nær eingöngu karlar og er því athygli kvenna sérstaklega vakin á starfinu í þeim
tilgangi að jafna kynjahlutföll í starfsgreininni, sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla.
Helstu verkefni:
• Eftirlit á sjó, en í því felst m.a. lengdarmæling á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með aflasam-
setningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla. Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að
afladagbækur séu rétt útfylltar og séu í samræmi við veiðar og afla um borð.
• Eftirlit í landi, en það felur m.a. í sér eftirlit með löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum
og aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu afladagbóka. Eftirlit með löndunum er-
lendra skipa og úttektir á afurðum vinnsluskipa, eftirlit með lax- og silungsveiði ásamt skrifstofustörfum s.s.
skýrslugerð þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiski-
stofu og öflun gagna vegna brotamála sem upp koma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Haldgóð reynsla af störfum í sjávarútvegi.
• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta er áskilin.
• Gott heilsufar.
• Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.
• Sanngirni og háttvísi.
• Mjög góð hæfni í samskiptum nauðsynleg.
• Menntun sem nýtist í starfi s.s. skipstjórnarréttindi, stúdentspróf eða iðnmenntun æskileg.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sævar Guðmundsson, deildarstjóri, í síma 5697900.
Ferilskrá sem hefur m.a. að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila sem og
kynningarbréf þar sem hæfni viðkomandi umsækjanda í starfið er rökstudd sendist í gegnum heimasíðu fiskistofu,
www.fiskistofa.is
Umsóknarfrestur er til og með 3. september 2018.
Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við SFR.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr.
2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í 2.
mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt og eru höfuðstöðvar á Akureyri. Stofnunin an-
nast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og vinna úr upplýsingum um þá málaflokka.
Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is.
Traust – Framsækni – Virðing
Leitum að einstaklega þjónustuliprum einstaklingum í hlutastörf á starfsstöðum okkar
á Malarhöfða í Reykjavík og á Hringhellu í Hafnarfirði.
Starfið felst í umsjón með pöntun og afhendingu á mat í mötuneyti, ásamt léttum þrifum
á starfsaðstöðu.
Viðkomandi þurfa að hafa auga fyrir því að halda aðstöðunni snyrtilegri og notalegri,
vera skipulagðir og búa yfir góðri þjónustulund. Okkur vantar einstaklinga sem eru
tilbúnir að leggja sig alla fram um að viðhalda góðu starfsumhverfi með bros á vör.
Vinnutími er áætlaður frá 10-14.
Um framtíðarstörf er að ræða.
Ertu þjónustulipur og átt auðvelt með að brosa?
Þá erum við kannski að leita eftir þér.
Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst. Umsóknir skulu berast til Sigríðar Rósu
Magnúsdóttur, starfsmannastjóra, á netfangið sigridur@steypustodin.is sem
jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið.
Góð mannleg samskipti
Stundvísi
Þjónustulund
Frumkvæði
Samviskusemi
Snyrtimennska
Íslenskukunnátta æskileg
Hæfniskröfur
1
ATVINNA
í boði hjá Kópavogsbæ
Grunnskólar
• Bókasafns- og upplýsingafræðingur í Álfhólsskóla
• Forstöðumaður frístundar í Kópavogsskóla
• Aðstoðarforstöðumaður frístundar Hörðuvallaskóla
• Húsvörður í Vatnsendaskóla
• Kennari í hönnun og smíði í Vatnsendaskóla
• Tónmenntakennari í Salaskóla
• Íþróttakennari í Hörðuvallaskóla
• Íþróttakennari í Álfhólsskóla
• Umsjónarkennari á miðstig
• Umsjónarkennari á miðstig í Vatnsendaskóla
• Umsjónarkennari á miðstig í Álfhólsskóla
• Umsjónarkennari á miðstigi í Hörðuvallaskóla
• Umsjónarkennari á unglingastigi
• Umsjónarkennari á yngsta stig í Smáraskóla
• Forfallakennari í Hörðuvallaskóla
• Frístundaleiðbeinendur í Smáraskóla
• Frístundaleiðbeinendur í Vatnendaskóla
• Frístundaleiðbeinendur í dægradvöl Hörðu-
vallaskóla
• Skólaliðar í Hörðuvallaskóla
• Skólaliði í Smáraskóla
• Stuðningsfulltrúi í Álfhólsskóla
Leikskólar
• Matráður í Kópahvol
• Aðstoðarmatráður í Kópahvol
• Deildarstjóri í Kópahvol
• Leikskólasérkennari í Kópahvol
• Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi í Marbakka
• Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í Álfatúni
• Leikskólakennari/þroskaþjálfi í Efstahjalla
• Leikskólakennari í Arnarsmára
• Leikskólakennari í Dal
• Leikskólakennari í Dal
• Leikskólakennari í Efstahjalla
• Leikskólakennari í Kópahvoli
• Leikskólakennari í Marbakka
• Leikskólakennari í Núp
• Leikskólakennari í Álfatúni
• Starfsfólk í Núp
• Starfsmaður sérkennslu í Læk
Ýmis störf
• Starfsmenn í íþróttahúsi Vatnsendaskóla
• Forstöðumaður félagsmiðstöðva eldri borgara
• Starfsmaður hjá Sundlaug Kópavogs - Karl
• Starfsmaður í Þjónustumiðstöð við almenna
þjónustu
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt á
heimasíðu Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is,
þar sem jafnframt má finna fleiri störf og nánari
upplýsingar
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi