Morgunblaðið - 02.08.2018, Side 16

Morgunblaðið - 02.08.2018, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 TE N G IT A U G A R Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Fjölbreytt og gott úrval til á lager Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði FA LLB LA K K IR BELTI Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Miklar breytingar hafa orðið á gróðri í landi Skaftafells á síðustu 40 árum. Rannveig Thoroddsen, plöntuvistfræðingur á Náttúru- fræðistofnun Íslands, segir að sam- anlagt með hlýnandi loftslagi og beitarfriðun hafi útbreiðsla og hæð birkis og víðis aukist mjög mikið á svæðinu, en gróska fleiri tegunda hafi einnig aukist. Hún tekur þó fram að endanlegri úrvinnslu gróð- urmælinga í síðustu viku ljúki ekki fyrr en í fyrsta lagi undir lok ársins. Glögglega megi þó sjá aukna grósku í mörgum reitanna með berum aug- um og samanburði nýrra og gamalla mynda. Meta átti framvindu gróðurs á 8-10 ára fresti Starfsmenn Náttúrufræði- stofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs voru í síðustu viku við mælingar í föstum reitum á svæðinu og var gróður endurmældur í reitum sem lagðir voru út og mældir á árunum 1979-1981 og 1985-1987. Eyþór Ein- arsson grasafræðingur, sem þá var forstöðumaður Náttúrufræðistofn- unar og formaður Náttúruverndar- ráðs setti gróðurreitina upp í þjóð- garðinum við Skaftafell í kringum 1980 um það leyti sem svæðið var girt af og að mestu friðað fyrir beit. Þá stóð til að mæla gróður í reit- unum á 8-10 ára fresti en ekki fékkst fjármagn í það verkefni. Árin 2004 og 2012 voru reitirnir mældir upp á nýtt með GPS-tækjum og önnuðust þeir Kristbjörn Egilsson og Sigurður H. Magnússon m.a. það verkefni. Þá fundust 45 af 54 upp- haflegum reitum, en eitthvað var um að reitir hefðu lentu undir skriðum. Með nákvæm hnit Náttúrufræðistofnun og Vatna- jökulsþjóðgarður fengu í ár í sam- einingu styrk frá Vinum Vatnajök- uls og með mótframlagi frá styrkþegum var loks í síðustu viku hægt að fara í mat á þróun gróðurs- ins. Vísindamenn og aðstoðarmenn höfðu nú í fórum sínum nákvæm hnit um 45 reiti þar sem gróður var mældur. Rannveig segir að verkefnið sé forvitnilegt og vonandi verði í fram- tíðinni hægt að fara reglulega í slík- ar mælingar til að sjá enn frekar hver framvindan verður. „Þegar lagt var af stað í upphafi var ætlunin að fylgjast með áhrifum beitarfriðunar á gróður við mismunandi aðstæður,“ segir Rannveig. „Aukin gróska er líka hluti af hlýnandi loftslagi og það er spurning hvort við getum aðskilið þessa tvo umhverfisþætti og áhrif þeirra á breytingar. Einn nýlegur þáttur hefur líka komið til sögunnar, en það er Alaskalúpínan sem er orð- in áberandi í Morsárdal og hefur far- ið í suma reitina. Hana var víða að finna þar sem áður hafði verið hálfgróinn melur eða skriður og sums staðar vex hún í þéttum breið- um ásamt geithvönn innan um birki.“ Upp í 660 metra yfir sjávarmáli Rannveig segir að gróðurreitirnir séu á stóru svæði í landi Skaftafells undir Austurbrekkum skammt frá Þjónustumiðstöðinni, ofan við Bæjarstaðarskóg, inn í Morsárdal og í Skaftafellsheiði frá reit rétt ofan við Hæðir og í átt að og upp undir Kristínartinda. Lægstu reitir séu í um 100 metra hæð og sá hæsti í 660 metrum yfir sjávarmáli. Í hæstu reitum sé að finna snjódældargróður og melagróður, en einnig mýra- gróður. Gróðurinn sé í raun ótrúlega fjölbreyttur og miklar breytingar hafi orðið á gróðurþekjunni. Áberandi breyting hafi orðið í mýrarblettum þar sem áður var lág- vaxinn víðir, en nú hafi hann styrkst og dafnað, jafnframt því að hann hefur aukið útbreiðslu sína. Rann- veig segir að undantekning sé flag- kenndir melar þar sem ekki hafi orð- ið merkjanleg breyting á gróður- þekjunni, væntanlega vegna þess að plöntur nái ekki rótarfestu vegna holklaka. Aukin gróska við Skaftafell  Rannsóknir í tæplega 40 ára gömlum gróðurreitum  Áhrif beitarfriðunar og hlýnandi loftslags  Aukin útbreiðsla og hæð birkis og víðis  Alaskalúpína er orðin áberandi í Morsárdal Ljósmyndir/María Harðardóttir Kennir margra grasa Erling Ólafsson skordýrafræðingur skoðar gróðurþekjuna í einum reitnum í grennd við Skaftafell. Rannveig Thoroddsen plöntuvistfræðingur og Starri Heiðmarsson fléttufræðingur ræða málin. Vísindi Járngerður Grétarsdóttir plöntuvistfræðingur gróðurgreinir og metur þekju plöntutegunda. Mikið hefur verið kvartað undan reiðhjólafólki á höfuðborgarsvæð- inu í sumar. Eru margir hjólreiða- menn sagðir virða allar umferð- arreglur að vettugi og skeyta í engu um aðra vegfarendur í um- ferðinni, að því er fram kemur á Facebooksíðu lögreglunnar. Kveðst lögreglan ekki geta sagt til um það hversu margir hagi sér með þessum hætti, en víst sé að til- kynningarnar séu fjölmargar og berist lögreglu daglega. „Ábendingar eða kvartanir um reiðhjólafólk sem fer ógætilega hafa borist frá vegfarendum í öllum sveitarfélögum í umdæminu og seg- ir það sína sögu. Þeir sem kvarta undan hjólareiðamönnum segja þá m.a. glannalega og hjóla í veg fyrir aðra vegfarendur, ýmist á akbraut- um eða göngustígum,“ að því er segir í færslunni. Eru þessir sömu hjólreiðamenn sagðir tillitslausir með öllu að mati þeirra sem kvarta og er fólki oft mikið niðri fyrir er það hefur samband við lögreglu til að benda á slysahættuna sem fylgi háttalagi hjólreiðamannanna. „Lögreglan biðlar til reið- hjólafólks, sem þetta á við um, að gera betur í umferðinni, þ.e. virða umferðarreglur og sýna öðrum vegfarendum bæði kurteisi og til- litssemi.“ Birtir lögregla með færslunni myndband frá Samgöngustofu sem sýnir þau atriði sem mestu máli skipta þegar hjólað er á á gang- stígum. Morgunblaðið/Ómar Tillitssemi Lögreglan biðlar til hjólreiðafólks um að sýna varkárni. Mikið kvartað undan hjólreiðafólki í sumar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.