Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Agnarsmá skrautleg flugutegund af
frittfluguætt sem fannst í fyrsta
skipti á Íslandi, nánar tiltekið í
Surtsey, í fyrra hefur nú fundist í
mun meira mæli en áður. Þetta kem-
ur fram í niðurstöðum rannsókn-
arleiðangurs sem líffræðingar Nátt-
úrustofnunar Íslands fóru í um
miðjan júlí.
Niðurstöðurnar leiða í ljós að
vætutíðin hefur haft jákvæð áhrif á
sumar lífverur en neikvæð á aðrar.
Sniglar hafa til að mynda haft gott af
vætutíðinni og braggast vel í eynni.
Eggjaklasar engjasnigils
„Engjasnigil mátti finna undir
mörgum hraunhellum og rekaviði og
fundust meira að segja eggjaklasar
þeirra sem hefur ekki gerst áður,“
segir í niðurstöðunum.
Mávar hafa aftur á móti ekki farið
jafn vel út úr mikilli rigningartíð og
sniglarnir. Unga sílamáva og silfur-
máva var ekki að sjá í eynni en
venjulega eru mávar í eynni áber-
andi.
„Máfakórinn sem jafnan sveimar
hávær yfir varpinu var óvenjulega
þögull,“ segir í niðurstöðum rann-
sóknarleiðangursins.
Ekki er ljóst hvað veldur þessu en
þegar hreiður voru talin kom í ljós
að þau hafa aldrei verið færri.
Votviðri valda vosbúð
Möguleg skýring á minna varpi
máva er sú að fæðuskortur hafi
dregið úr varpi og gert þeim mávum
sem náðu að verpa erfitt fyrir. Vot-
viðri gætu einnig hafa valdið litlum
ungum vosbúð.
Mávavarpið skiptir eyna miklu og
er, samkvæmt niðurstöðunum, „drif-
krafturinn í framvindu gróðurs og
dýralífs á eynni“.
Hvað gróður varðar þá fundust
engar nýjar tegundir í eynni en í ljós
kom að þær sextíu og tvær tegundir
sem fundust þar á lífi í fyrra voru
enn á lífi. Niðurstöður rannsókna
síðustu ára benda til þess að hægt
hafi á landnámi æðplantna.
Plönturnar eiga það sameiginlegt
með sniglunum að vera kátar með
úrkomuna enda var gróður „almennt
þroskamikill og mátti vel merkja af-
leiðingar ríkjandi og langvarandi
úrkomutíðar þetta sumarið,“ sam-
kvæmt niðurstöðunum.
Endurlífguð ætihvönn
Ætihvönn blómstraði fyrir fimm
árum í fyrsta skipti í Surtsey en
drapst skömmu síðar. „Nú hafði einn
afkomandinn náð að blómstra og var
að þroska fræ í fjölmörgum sveip-
um,“ segir ennfremur í niðurstöðum
rannsóknarinnar.
Hrúðufléttur sem safnað var í
þessari rannsókn á eftir að greina en
annars er ekki hægt að segja að
miklar breytingar hafi orðið á fléttu-
fungunni í Surtsey á síðustu fjórum
árum. Vekur athygli að töluvert sé
af hrúðurfléttum á toppi Aust-
urbunka, fjalls í Surtsey, þrátt fyrir
að fjallið sé að stórum hluta móberg
og slíkt undirlag langt frá því að
vera hagstætt fyrir fléttur.
Í rannsóknarleiðangrinum fannst
fjölbreytt úrval tegunda í setstöðum
fugla sem leita í áburðarríkt um-
hverfi.
Sniglar Eggjaklasar engjasnigla fundust í fyrsta skipti í Surtsey. Úrkoma hefur orðið til þess að sniglar höfðu það
gott í Surtsey. Mávar voru ekki jafn ánægðir með vætuna enda sáust hvorki ungar síla- né silfurmáva.
Náttúrufræðistofnun/Erling Ólafsson
Gróður Ætihvönnin hefur nú þroskað fræ í annað sinn í Surtsey. Hún sáði
þúsundum fræja fyrir fimm árum en drapst svo. Nú hefur hún snúið aftur.
Aldrei færri
mávahreiður
Tilvera lífvera í Surtsey hefur breyst
Eiginleikar burðarpokans:
• hentar börnum frá 3,5-20 kg
• viðheldur M-stöðu mjaðma
og fóta
• leyfir baki nýbura að vera kúpt
• hægt er að bera barnið á þrjá
vegu, að framan, á baki og
á mjöðm
• dreifir þunga barnsins vel fyrir
þann sem ber barnið
• einfaldur í notkun
• úr lífrænni bómull og hampi
• til í mörgum fallegum litum
Þegar velja á burðarpoka er
mikilvægt að pokinn fari vel með
líkama barnsins.
Manduca burðarpokinn er hann-
aður af þýskum barnaburðarsér-
fræðingum með það markmið að
leiðarljósi að barn geti viðhaldið
M-stellingu fóta og mjaðma.
MANDUCA
BURÐARPOKINN
Kíktu á
netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14