Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skógræktarfélag Kópavogs og Kópa- vogsbær vinna saman að því að bæta aðstöðu fyrir gesti og félagsmenn á útivistar- og skógræktarsvæðinu Guðmundarlundi í Vatnsendaheiði. Nýjasta viðbótin er frisbígolfvöllur og stutt er í að tekið verði í notkun sam- eiginlegt félagsheimili. Jafnframt er unnið að því að auka aðsókn að svæð- inu með því að koma upp aðstöðu til ýmiskonar afþreyingar. „Rekstur svæðisins byggist á því að halda því hreinu. Hvergi sé hægt að sjá rusl. Þá vinnum við að því að auka við skóginn og nýta hann. Það felst í því töluverð vinna að eiga skóg, það þarf að grisja og gera hann um- hverfisvænan,“ segir Bernhard Jó- hannesson, framkvæmdastjóri Skóg- ræktarfélags Kópavogs. Hann er eini starfsmaður félagsins en fær aðstoð sumarstarfsfólks frá Kópavogsbæ og af sambýlum fatlaðra á vegum vel- ferðarsviðs Kópavogsbæjar til að vinna þau störf sem til falla í skóg- inum. Þar eru allt að 18 starfsmenn frá Kópavogsbæ og 4-5 frá sambýl- unum. Tekjur af grilli og kurli Bernhard leggur áherslu á að til þess að hægt sé að njóta skógarins til útivistar þurfi hann að vera sjálfbær fjárhagslega. Skógræktarfélagið hef- ur tekjur af því að leigja grillaðstöðu í Guðmundarlundi og af því að selja kurl sem unnið er úr grisjunarvið úr skóginum. Guðmundarlundur er op- inn öllum án endurgjalds. Gestir þurfa aðeins að greiða fyrir grill- aðstöðuna, ef það vill nota hana. Kurlinu er mokað í poka sem seldir eru í Byko, Garðheimum og fleiri verslunum, eða notað í göngustíga í skóginum. Bernhard segir að þótt ekki sé mikill arður af hverjum poka skapi starfsemin verkefni fyrir íbúa sambýlanna sem einnig sé mikilvægt. Bernhard er ánægður með aðsókn- ina í sumar, í þessu mesta rigningars- umri í manna minnum. Fjöldi sam- koma hefur verið í Guðmundarlundi, allt frá litlum fjölskyldusamkomum til stórra brúðkaups- eða afmæl- isveislna. Hann getur þess að í lok júní hafi tekjur fyrir leigu á grill- aðstöðunni verið orðnar meiri en allt árið í fyrra. Grundvallast það á því að aðstaðan hefur verið kynnt betur en áður, meðal annars á samfélags- miðlum. Þá ber þess að geta að hægt er að leita skjóls fyrir rigningunni í skýlum og tjöldum, fara í minigolf og sitja við opinn eld. Þá hefur verið komið upp nýjum salernum. Aukin afþreying Kópavogsbær hefur verið að byggja upp aðstöðu til afþreyingar í Guðmundarlundi. Á síðasta ári var settur upp minigolfvöllur sem tals- vert er notaður og nú er búið að setja upp fínan frisbígolfvöll. Þurfti að grisja töluvert til að opna brautirnar í skóginum. Völlurinn kom til í verk- efninu „Okkar Kópavogur“ og var valinn af íbúum í almennri kosningu á vef Kópavogsbæjar. Bernhard segir að útsýnisskífa fyrir ofan Guðmund- arlund hafi einnig orðið ofarlega í kosningunni og vonast til að hún komist á verkefnaskrá bæjarins á næsta ári. Byrjað er að planta trjám til skjóls við litla dæld í landslaginu. Bernhard segir að hugmyndir hafi komið upp um að gera þar stalla í brekkuna og svið á móti svo hægt verði að halda þar samkomur eða litla tónleika. „Þar verða aldrei Guns N’ Roses-tónleikar, í mesta lagi Halli og Laddi!“ segir Bernhard til útskýringar. Þá er draumurinn að byggja nýtt grillhús. Aðalfundur Skógræktarfélags Ís- lands verður haldinn í Guðmundar- lundi á næsta ári í tilefni þess að Skógræktarfélag Kópavogs verður fimmtugt. Fundurinn verður haldinn í nýju félagsheimili sem Kópavogs- bær og Skógræktarfélagið eru að byggja. Húsið sjálft er að verða tilbú- ið að utan og innan en eftir er að koma fyrir húsgögnum og tækjabún- aði og ganga frá umhverfinu. Skóg- ræktarfélagið fær herbergi fyrir skrifstofu og félagsaðstöðu í félags- heimilinu og bærinn og félagið munu hafa aðgang að góðum fundarsal með tilheyrandi aðstöðu. Fjölbreytt starf „Þetta er indælisstaður. Það er eins og að vera í sumarbústað allt sum- arið,“ segir Bernhard um vinnuna í Guðmundarlundi. Þetta er hans fyrsta sumar í starfi framkvæmdastjóra fé- lagsins. Þá segir hann að samstarfið við Kópavogsbæ sé ákaflega gott og starfsfólkið sem bærinn útvegar sé viljugt að vinna í skóginum. Vinna framkvæmdastjórans er fjölbreytt. Hann þarf að geta reddað öllu sem uppá kemur, til dæmis að að halda sláttuvélum og öðrum búnaði gangandi og hafa lag á að fá starfs- fólkið til að njóta sín í vinnunni. Og helst einnig að hafa svolítið vit á skóg- rækt. Auka við skóginn og nýta hann Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bætt aðstaða Minigolfið er vinsælt. Í hlíðinni sést í nýja félagsheimilið sem tekið verður í notkun á næstu mánuðum og skapar aukið líf í skóginum. Skógarmenn Starfsmenn á vegum Kópavogsbæjar taka til hendinni í skóg- inum með framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Kópavogs. Guðmundarlundur » Skógræktarsvæðið er nefnt eftir gefandanum, Guðmundi H. Jónssyni stofnanda Byko. Hann tók spildu á leigu snemma á sjöunda áratugnum og hóf ræktun rófna og kartaflna og seldi afurðirnar til að byggja upp verslunarreksturinn. Hann hóf trjárækt til að fá skjól og hélt þeirri starfsemi áfram eftir að rófnaræktin var lögð af. Guð- mundur og fjölskylda hans af- henti Skógræktarfélagi Kópa- vogs svæðið og sumarhúsið á árinu 1997. » Sumarið 2008 bættist við myndarlegur garður með fjöl- breyttum fjölærum garðagróðri úr garði Hermanns Lundholm sem var fyrsti garðyrkjustjóri Kópavogs. Garðurinn ber nafn hans. » Síðastliðið vor var komið upp vísi að ávaxtagarði í Guðmund- arlundi þegar plantað var epla- trjám og berjarunnum. Ætlunin er að koma smám saman upp myndarlegum ávaxtagarði.  Margir koma í Guðmundarlund til að njóta útivistar og afþreyingar  Frisbígolfvöllur er nýjasta viðbótin og félagsheimili í byggingu  Yfir 20 manns við vinnu í skóginum á vegum Kópavogsbæjar Frisbígolfvöllurinn í Guðmundarlundi varð strax einn vinsælasti völlur landsins. Suma daga hafa fleiri sótt hann en völlinn á Klambratúni sem verið hefur mest sótti frisbígolfvöllur landsins. Birgir Ómarsson, formaður Íslenska frisbígolf- sambandsins, segir að völlurinn þyki áhugaverður, bæði hjá almenningi og keppnisfólki. „Hann er líka í þessu æð- islega umhverfi. Guðmundarlundur er falin perla á höf- uðborgarsvæðinu. Aðsókn að vellinum hefur verið mjög góð frá því hann var tekinn í notkun og þar er biðröð þegar veðrið er gott,“ segir Birgir. 10 holur eru á vell- inum og eru brautirnar í stórum hring í skóginum. Völlurinn í Guðmundarlundi er 58. frisbígolfvöllur landsins. Sá 59. verður tekin í notkun í Grímsey bráð- lega. Aðstandendur frisbígolfsambandsins settu sér það takmark að jafna fjölda valla við golfvelli sem nú eru um sextíu. Það markmið næst í ár og vel það. Ekkert kostar að spila á frisbígolfvöllunum og byrj- andi þarf aðeins að fjárfesta í einum disk sem kostar frá 2.000 krónum. Það getur því varla verið einfaldara að byrja. Hefur iðkendum fjölgað hraðfara. Erfitt er að halda utan um fjöldann en Birgir giskar á að 12-14 þús- und manns eigi frisbídiska og noti þá að minnsta kosti einu sinni á ári. Aðeins lítill hluti þessa hóps stundar íþróttina með keppni í huga. helgi@mbl.is Strax í röð vinsælustu frisbígolfvalla Frisbígolf Birgir Ómarsson hönnuður vallarins og Avery Jenkins sem er fyrrverandi heimsmeistari í frisbígolfi heimsóttu Bernhard og skoðuðu nýja völlinn. Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.