Morgunblaðið - 02.08.2018, Side 38
Lilja Ósk Sigurðardóttir
snyrtipenninn@gmail.com
Grunnur
Til að láta varalitinn end-
ast sem best notum við gjarn-
an mattari varaliti, því þeir
renna síður til, en á hinn bóg-
inn geta þeir verið þurrkandi
fyrir varirnar með langtíma-
notkun. Höldum vörunum
mjúkum með því að skrúbba
þær létt með varaskrúbbi eða
volgum þvottapoka og berum
á þær nærandi varasalva en
gættu þess þó að varirnar séu
ekki löðrandi, því það kann að
eyðileggja áhrif langvarandi
varalita. Þessa dagana nota
ég mikið Inika Organic-
varasalvann og Inika Organic
Lip Tint, sem er í raun vara-
salvinn en með smá lit. Form-
úlan inniheldur piparmyntu
og mér finnst varirnar verða
voðalega djúsí.
Varalitablýantur
Kremaðir og langvarandi vara-
litablýantar eru besti vinur þinn
þegar kemur að því að halda vara-
litnum á sem lengst. Sjálf er ég
reyndar farin að nota varalita-
blýanta eina og sér sem varalit,
skelli smá varasalva yfir til að jafna
út litinn og þá er ég komin með frá-
bæran varalit sem endist lengi og
ég get mótað varirnar á sama tíma.
GOSH The Ultimate Lip Liner er í
miklu uppáhaldi því hann er ódýr,
litirnir fallegir og formúlan mjúk.
Ég hef líka áður skrifað um Urban
Decay 24/7 Glide-On Lip Pencil en
ég á hann sennilega í öllum litum og
nota þá sem
varaliti. Nýlega
kom svo MAC
með á markað
línu sem nefn-
ist Liptensity
og inniheldur
hún 18 varaliti
og varalita-
blýanta í stíl.
Frábærir litir
og formúla
sem helst
lengi á og færir okkur
ákafan lit.
Mattir varalitir
Síðustu tvö árin
hafa mattir varalitir
átt snyrtiheiminn og
ég held að hluti af
þeirri ástæðu sé að
þeir haldast mun bet-
ur og lengur á en
glossaðir varalitir.
Sömuleiðis er hægt
að leika sér meira
með þá og gera þá
glossaðri ef maður
vill. Nýju Joli Rouge
Velvet Matte varalit-
irnir frá Clarins eru
einnig sérlega góðir
og þurrka ekki var-
irnar þó að þeir séu með matta áferð
og get ég líka mælt með MAC Lip-
tensity-varalitunum sem eru sér-
lega litmiklir, langvarandi og auð-
velt að leika sér með þá.
Fljótandi varalitir
Ef þú vilt fara alla leið í að nota
varalit sem haggast ekki væri upp-
lagt að prófa fljótandi varaliti en
þeir eru mjög mattir og ef þú
grunnar ekki varirnar, eins og tal-
að var um í byrjun greinarinnar,
kunna þeir að molna á vörunum og
Ertu að borða varalitinn?
Veltirðu því fyrir þér hvað varð um varalitinn sem þú settir á í morgun og ert búin að setja
hann á þig átta sinnum síðan þá? Konur innbyrða að jafnaði tvö til fjögur kíló af varalit yfir
ævina og þá er nú betra að tryggja að varaliturinn haldist á sínum stað. Hér fyrir neðan eru
góð ráð til þess að tryggja betri endingu varalitarins og hvaða vörur er sniðugt að nota.
gera þær þurrar ásýndar. Það eru
tveir fljótandi varalitir sem ég er
hvað mest hrifin af og ber fyrst að
nefna Guerlain Intense Liquid Matte.
Einhvern veginn tókst franska
snyrtihúsinu að fullkomna þessa hug-
mynd um fljót-
andi varalit og á
einhvern ótrú-
legan hátt eru
varirnar
fullkomlega
rakamettaðar
með þessari
formúlu. Svo
er það Chanel
Rouge Allure
Ink, þessi
formúla er
ekki jafn þurr
og mött og
margar aðrar
en hún er
mun þægilegri.
Lífrænir varalitir
Lífrænir varalitir
eru alltaf að verða
vinsælli því þeir eru
byrjaðir að koma í fal-
legri og fleiri litum og
flottari umbúðum. Ef
þú hefur áhyggjur af
því að þú sért að
borða of mikinn vara-
lit er spurning um að
nota þá varalit sem
faktískt má borða.
Flestir varalita
minna koma frá ILIA
Beauty, sem er líf-
rænt snyrtivöru-
merki og eru varalitir
sérstaða þess að mínu
mati. Dr. Hauschka
og Lavera framleiða
einnig góða lífræna
varaliti.
Urban Decay 24/7 Glide-On Lip Pencil
GOSH The Ultimate Lip Liner
Inika
Organic
Lip Balm
og Inika
Organic
Lip Tint.
MAC Lipten-
sity Lip Pencil
ILIA Beauty
Lipstick
Guerlain Intense Liquid Matte
Chanel Rouge Allure Ink
MAC Liptensity Lipstick
Clarins Joli Rouge Velvet Matte
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is