Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
„Heimsendir er skáldsaga sem ég
hef verið að skrifa undanfarin ár
en gat einmitt klárað almennilega
eftir að ég hætti á þingi. Þetta er
mín önnur skáldsaga“ segir Guð-
mundur en árið 2003 gaf hann út
skáldsöguna Áhrif mín á mann-
kynssöguna. „Einhverra hluta
vegna heita bækurnar mínar svona
stórum nöfnum,“ segir hann bros-
andi og bætir við að hann sjái eftir
því að hafa ekki byrjað að auglýsa
bókina með orðunum „Heimsendir
í nánd“.
Tilvistarleg spennusaga
„Þessi bók er um mann sem
heitir Leifur og er á tímamótum í
lífi sínu. Hann er nýbúinn að segja
upp sem blaðamaður og ákveður
að skella sér í skemmtiferð til
Bandaríkjanna með kærustunni,“
segir Guðmundur. „Og síðan er
bókin um það hvernig einföld
áform, hlutir geta þróast á al-
gjörlega annan veg en ætlað var.
Þetta er hálfgerð dæmisaga um
það. Tilvistarleg spennusaga, því
það gerast þarna óvæntir hlutir.
Ég er haldinn stanslausri undrun
yfir því hvernig hlutirnir þróast,“
segir Guðmundur sem var á þingi
fyrir tveimur árum en er allt í einu
farinn að smíða eldhús fyrir fólk
sem hann þekkir ekki og kominn á
fullt í útivist og orðinn landvættur.
„Ég sá ekkert af þessu fyrir. Mér
finnst stundum eins og tilvistin
taki mann í munninn, þvæli manni
þar um og skyrpi manni bara út
einhversstaðar annars staðar.
Þessi bók er um það. Hún er um
mannlegt ferðalag og ég held að
hún sé, þótt ég sé fyrir löngu bú-
inn að missa sjónar á því, fyndin,“
segir Guðmundur og bætir við að
þetta sé kannski líka saga Leifs
Eiríkssonar. „Hann ætlaði bara út
að sigla eitthvað, en fann svo allt í
einu heimsálfu.“
Vanur slæmum viðtökum
En er Guðmundur stressaður
yfir viðtökum við bókinni? „Ég
veit það ekki. Ég hef nú svolítið
lent í því hvað þetta varðar. Fyrri
sagan mín fékk ömurlega dóma,
henni var algjörlega slátrað. Ég
var tekinn af lífi. Hún fékk einn
góðan dóm, eftir jól,“ segir Guð-
mundur hlæjandi og bætir við að
stysti dómurinn hafi komið í sjón-
varpinu: „Það er táfýla af þessu.“
Ánægður með Heimsendi
„En þetta var fyrir 15 árum síð-
an. Þessi bók núna, Heimsendir,
mér finnst hún góð, ég er virkilega
ánægður með hana og ég heyri
líka frá fólki sem er að lesa hana
að það getur ekki lagt hana frá
sér,“ segir Guðmundur sem er
strax byrjaður að skrifa næstu
bók.
Hægt er að horfa og hlusta á
viðtalið við Guðmund Stein-
grímsson í heild sinni á vefsíðunni
k100.is. islandvaknar@k100.is
Fjölbreytt líf eftir
þingmennsku
Guðmundur Steingrímsson hefur haft í nógu að
snúast eftir að hann hætti þingmennsku fyrir
tveimur árum og lifir ansi fjölbreyttu lífi í dag. Guð-
mundur stofnaði tímaritið Úti með Róbert Mars-
hall, hann smíðar fyrir sjálfan sig og aðra og nú á
dögunum sendi hann frá sér sína aðra skáldsögu
en hún ber heitið Heimsendir.
K100/Rikka
Heimsendir Guðmundur Stein-
grímsson sendi frá sér á dögunum
sína aðra skáldsögu.
Dagskrá K100 vikuna sem hátíðin
fer fram í Reykjavík mun taka mið
af því sem er að gerast þar sem við-
burðir hátíðarinnar verða kynntir á
hverjum degi auk þess sem
skemmtilegir gestir líta við til þess
að ræða eitt og annað sem tengist
Hinsegin dögum og hinsegin sam-
félaginu. Föstudaginn 10. ágúst
verður dagskrá stöðvarinnar snúið á
hvolf og mun stöðin taka upp nafnið
Hinsegin100. Þetta er fjórða árið í
röð sem stöðin fagnar Hinsegin dög-
um með þessum hætti. Á laugardeg-
inum verður svo bein útsending frá
Gleðigöngunni og dagskrá henni
tengdri í Hljómskálagarðinum þar
sem alls konar fólk verður tekið tali
þannig að hlustendur fái stemn-
inguna úr miðborg Reykjavíkur
beint í æð hvar sem þeir eru staddir.
„Það er mjög ánægjulegt að hafa
K100 og Árvakur í stórum hópi sam-
starfsaðila Hinsegin daga, annað ár-
ið í röð og við hlökkum til að leyfa
hlustendum K100 að skyggnast á
bakvið tjöldin á næstu dögum,“ seg-
ir Karen Ósk Magnúsdóttir, gjald-
keri Hinsegin daga, sem skrifaði
undir samkomulagið fyrir þeirra
hönd í gær. „Hátíðin verður stærri
og glæsilegri með hverju árinu,
stendur nú í sex daga og á dag-
skránni eru yfir 30 viðburðir. Hin-
segin dagar eru ein stærsta hátíð
landsins og líklega sú eina sem ekki
er með neitt starfsfólk heldur al-
gjörlega undirbúin og framkvæmd
af sjálfboðaliðum. Gott samstarf og
stuðningur öflugra fyrirtækja er
okkur því afar mikilvægt,“ segir
Karen enn fremur.
Stolt að geta tekið þátt
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
útvarpsstöðin K100 gerir eitthvað í
tilefni Hinsegin daga og er þetta
annað árið í röð þar sem formlegu
samstarfi á milli K100 og hátíðar-
innar er komið á. „Það gleður okkur
mjög að taka þátt í þessari frábæru
hátíð með formlegum hætti,“ segir
Sigurður Þorri Gunnarsson, dag-
skrár- og tónlistarstjóri K100. „Við
á stöðinni viljum öll sem eitt fagna
fjölbreytileikanum, stuðla að jafnara
samfélagi og styðja við réttindabar-
áttu hinsegin fólks með því að auka
sýnileika,“ segir Sigurður. Eins og
fram kom að ofan mun stöðin snúast
á hvolf föstudaginn 10. ágúst og
skipta um nafn og mun hún þá heita
Hinsegin100. „Við ætlum að bregða
á leik og breyta út frá venjulegri
dagskrá og lagalista þennan eina
dag. Við sláum upp heljarinnar
veislu og hitum upp fyrir Gleðigöng-
una sem fram fer daginn eftir. Það
mun ekki fara framhjá hlustendum
okkar að Hinsegin dagar eru í
gangi,“ segir Sigurður brosandi.
Morgunblaðið/Valli
Hinsegin Karen Ósk Magnúsdóttir, gjaldkeri Hinsegin daga, og Sigurður Þorri Gunnarsson, dagskrár- og tónlistar-
stjóri K100, við undirritun samningsins í vikunni.
K100 og Hinsegin
dagar í samstarf
Samkomulag milli útvarpsstöðvarinnar K100 og
Hinsegin daga var undirritað í vikunni. Er þetta
annað árið í röð þar sem K100 og Hinsegin dagar
gera með sér formlegan samstarfssamning.
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.