Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 42

Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 ✝ ÖgmundurGuðmundsson rafvirkjameistari fæddist í Reykjavík 25. nóvember 1939. Hann lést 23. júlí 2018 á hjartadeild Landspítalans. Ögmundur vann hjá Rafveri á ár- unum 1973-1977 þar til hann stofn- aði Rafkraft ehf. Vann hann þar alla tíð með Guðjóni Gunnari syni sínum, sem kom inn í fyrirtækið sem meðeigandi árið 1990. Foreldrar Ögmundar voru Guðmundur Ögmundsson raf- virki og Sólveig Dóróthea Jó- hannesdóttir, húsfreyja í Reykjavík. Hann var næstelstur í fimm systkina hópi. Systkinin eru Guðbjörg Guðmundsdóttir (lát- in), Þórhildur Guðmundsdóttir, Hallberg Guðmundsson og Kristín Sæunn Ragnheiður Guðmundsdóttir (látin). og eiga þau einn dreng, fyrir á Ingólfur eina dóttur, og Sara Dagný, f. 29.7. 1991, í sambúð með Aroni Gauta Mahaney og eiga þau eina dóttur. Fyrir á Stefán einn son, Stefán Hilmi, í sambúð með Sigrúnu Ellen Pálsdóttur og eiga þau tvö börn. 3) Guðmundur Kristinn, f. 13. maí 1980. Giftur Helenu Maríu Agnarsdóttur og þeirra börn eru Kara Sóley, f. 18.6. 2007, og Rakel Örk, f. 30.4. 2009. Ögmundur og Kristín byggðu í Hraunbæ árið 1966 og bjuggu þar í um 40 ár fyrir ut- an árin í Bandaríkjunum og þar til þau fluttu í Grafarvog árið 2007. Þau fluttu til Dayton í Ohio í Bandaríkjunum árið 1969 og bjuggu þar til 1973. Ögmundur vann þann tíma sem rafvirki í McCall’s Printing Company. Ögmundur var mikill golf- áhugamaður, spilaði golf öllum stundum og var félagi í Golf- klúbbi Reykjavíkur. Voru þau hjónin dugleg að fara í golf- ferðir bæði til Spánar og Flór- ída. Útför Ögmundar Guðmunds- sonar fer fram frá Grafarvogs- kirkju í dag, 2. ágúst 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Ögmundur kvæntist Kristínu Guðjónsdóttur, f. 14. ágúst 1941, þann 24. nóvember 1962. Foreldrar Kristínar voru Guðjón Gunnar Jó- hannsson frá Skjaldfönn við Ísa- fjarðardjúp og Kristín Jónasdóttir frá Borg í Reyk- hólasveit. Börn þeirra Ögmundar og Kristínar eru: 1) Guðjón Gunnar, f. 18. febr- úar 1960. Giftur Sigrúnu Birgisdóttur. Börn þeirra eru: a) Birgir, f. 26.4. 1983, í sambúð með Hönnu Lóu Skúladóttur og eiga þau tvær dætur. b) Kristín, f. 27.8. 1989, í sambúð með Steinari Páli Veigarssyni. 2) Sólveig Jóna, f. 27. júlí 1964. Gift Stefáni Kristjánssyni og eiga þau tvær dætur, þær eru Sylvía Björk, f. 3.1. 1990, í sambúð með Ingólfi Einissyni Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Takk fyrir allt, ástin mín. Þín Bíbí. Kristín Guðjónsdóttir. Í dag kveðjum við föður okkar í hinsta sinn. Við systkinin viljum minnast hans með fáum orðum. Það sem fyrst kemur upp í hug- ann er þakklæti. Þakklæti fyrir kærleiksríkt og gott uppeldi. Æskuminningar okkar eru falleg- ar og góðar. Pabbi var yndislegur maður í alla staði og reyndist okk- ur vel alla tíð. Það var ætíð gott að leita til hans ef upp komu mál sem þurfti að leysa. Hann var afskap- lega hlý manneskja, ekki kannski maður margra orða, en lét verkin tala. Hann var hamingjusamur maður hann pabbi, naut lífsins í botn, mikill sælkeri og alltaf mjög ánægður með allt sitt. Minningarnar eru margar á stundu sem þessari. Hugurinn leitar til allra ferðanna vestur í Skjaldfannardal við Ísafjarðar- djúp. Fjölskyldan á þar yndislegt athvarf og pabbi kunni líklega hvergi betur við sig en þar. Einnig til Florida nú í seinni tíð. Þar spil- aði fjölskyldan oft golf og eigum við skemmtilegar minningar það- an. Pabbi var mikill húmoristi og skemmtilegur maður. Við fundum reglulega fyrir miklum áhuga á öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Hann fylgdist líka með barnabörnunum og spurði reglu- lega um verk þeirra og áhugamál. Hann var líka mikill áhugamaður um gæludýr innan fjölskyldunnar og þau nutu velvildar hans og væntumþykju í ríkum mæli eins og aðrir fjölskyldumeðlimir. Pabbi og mamma voru mjög samstiga í lífinu og um þessar mundir eru sextíu ár frá því að leiðir þeirra lágu saman. Þau voru yndislegir foreldrar, elskuðu hvort annað mikið og gerðu allt saman. Pabbi var nægjusamur maður og þegar heilsan brást honum fyrir um tveimur árum kvartaði hann aldrei. Hann tók því sem honum var úthlutað af miklu æðruleysi og bar harm sinn í hljóði. Mamma bar hann á höndum sér og hugsaði svo vel um hann í öllum veikindum hans. Hún er hetjan okkar og orð fá því ekki lýst hversu mikið við börnin þökkum henni fyrir að hugsa svona vel um hann fram á síðasta dag. Blessuð sé minning þín, elsku pabbi. Guðjón Gunnar, Sólveig Jóna og Guðmundur Kristinn. Ég fékk snemma þá tilfinningu að ég hefði dottið í lukkupottinn hvað tengdaföður varðar. Það stóð heima. Ég get sagt með góðri samvisku í dag að samband okkar Ögmundar Guðmundsson- ar var mjög gott alla tíð og aldrei bar þar skugga á. Ögmundur hafði alltaf mikinn áhuga á barnabörnum sínum og dætur okkar Sólveigar voru þar engin undantekning. Þær minn- ast hans í dag með mikilli hlýju og eftirsjá. Tengdapabbi var maður sann- girni og samhjálpar og réttlæti átti hug hans allan. Líklega fór ekkert meira í taugarnar á hon- um en óréttlæti og ef fólk stóð ekki við orð sín. Ögmundur var afar hæglátur og traustur maður. Vandvirkari mann hef ég varla hitt og alltaf var hann fundvís á bestu lausnir sem í boði voru. Hann var ekki að- eins vandvirkur til verka. Hann vandaði sig vel þegar hann átti samskipti við annað fólk og var hvers manns hugljúfi. Ögmundur var mikill húmor- isti og réð yfir einstaklega skemmtilegum og lúmskum húm- or. Það var alltaf pláss fyrir glettni í lífi tengdapabba. Alveg þrotinn að kröftum og sárlasinn, þegar biðin eftir lausninni var mjög nálæg, hafði hann tíma fyrir góðlátlegt grín sem fékk starfs- fólk Landspítalans til að gleðjast og brosa. Um langan veg lágu leiðir okk- ar Ögmundar saman í stangveiði og golfi. Þar náði ég bestum kynnum við ástkæran tengda- pabba minn og á skemmtilegum veiðidegi við árbakkann áttum við okkar bestu stundir. Þegar vegir okkar lágu saman í stangveiðinni, sem fljótlega varð að fluguveiði, var kannski smá spotti á milli okkar í veiðireynslunni en Ög- mundur var einkar laginn og fljótur að læra og tileinka sér nýja hluti. Mér fannst skemmtilegt og gefandi að fylgjast með því hvernig tengdapabbi sýndi fisk- um og fuglum áhuga og virðingu. Mér fannst líka skemmtilegt hvernig áhugi hans á fluguveiði jóskt með hverju árinu. Það skipti meira og meira máli hvaða fluga varð fyrir valinu og hve stór hún var. Já, og hvernig hún var á lit- inn. Hann nálgaðist fiskana af sinni alkunnu virðingu og hóg- værð. Í lokin var tengdapabbi orð- inn laginn fluguveiðimaður, fór sér hægt, ígrundaði vel allar að- gerðir að venju og við uppgjör veiðidaga var hann oftar en ekki jafnoki annarra veiðimanna. Og eins og þetta var allt skemmtilegt á meðan á því stóð var afar erfitt að sætta sig við það þegar hann heilsu sinnar vegna gat ekki lengur farið með mér á veiðislóð. Þar er hans sárt saknað. Af einstakri yfirvegun og rósemi tók hann því sem honum var út- hlutað á lokaspretti lífsins. Samvera Ögmundar og Krist- ínar Guðjónsdóttur varði í röska sex ártugi. Tengdamóðir mín elskuleg var bjargið sem Ög- mundur gat jafnan leitað til í veik- indum sínum síðustu tvö árin. Söknuður hennar og okkar allra er mikill. Það verður vandasamt verk okkar aðstandenda í framtíð- inni að hugsa vel um Kristínu en ég get lofað því að hún verður í góðum höndum. Ég kveð tengdaföður minn með miklum söknuði. Öggi var mikill og sannur vinur minn. Hann reyndist mér vel alla tíð og það mun taka mig langan tíma að sættast við fjarveru hans. Stefán Kristjánsson. Elsku afi okkar. Það er sárt að hugsa til þess að við munum ekki hitta þig aftur en um leið minnumst við góðu tím- anna sem við áttum með þér. Okk- ur eru efst í huga allar yndislegu minningarnar fyrir vestan þar sem þú elskaðir að vera. Þar var mikið veitt og spilað, þú kenndir okkur að leggja kapal og það var skilyrði að spyrja kapalinn. Yfir- leitt var spurningin um veðrið, hvort það yrði bíbíarblíða daginn eftir eða hvort við myndum fá fisk niður í fjöru. Kapallinn hafði oftar en ekki rétt fyrir sér. Frá Hraunbænum eigum við einnig margar góðar minningar. Það sem stendur upp úr er þegar við sungum og dönsuðum við kántrítónlist, sem var í miklu uppáhaldi hjá þér. „Ertu komin með fiktuputta?“ sagðir þú líka oft þegar við vorum í heimsókn í Hraunbænum. Í dag notum við þessa spurningu oft við litla fólkið í kringum okkur og hugsum við þá ávallt til þín. Þú varst yndislegur afi, hugul- samur, mikill húmoristi og hlóst alltaf manna hæst. Hláturinn þinn er okkur sérstaklega eftirminni- legur. Hvíldu í friði, elsku afi, við munum sakna þín mikið. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin; mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Þínar afastelpur, Sylvía, Sara og Kristín. Í dag kveðjum við ástkæran bróður okkar Ögmund Guð- mundsson eftir hetjulega baráttu við erfið veikindi. Við systkinin vorum fimm. Elst var Guðbjörg og yngst var Krist- ín, en þær eru fallnar frá. Barnsskónum slitum við á Bar- ónsstíg og í Skipholti. Stór krakkahópur var í hverfinu og var þar oft líf og fjör. Sumardvöl í sveit fórst honum einkar vel úr hendi, var hann einstaklega lag- inn með hesta. Þar má nefna er hann dvaldist á Bláfeldi á Snæ- fellsnesi, þaðan sem við eigum ættir að rekja. Fermingardagur hans var sér- staklega eftirminnilegur. Þar var spilað á harmóníku, dansað og fylgt eftir með snapsi. Ungur að árum varð hann mik- ill lestrarhestur. Fjárfesti í öllum Íslendingasögunum og las þær spjaldanna á milli, ekkert sjón- varp var á þessum tíma og því nægur tími til heilbrigðari at- hafna. Eftirminnileg voru grammó- fónkaup hans og hljómaði Bing Crosby og Hallbjörg á Baróns- stígnum með söng sínum „vorið er komið og grundirnar gróa“. Sjómennsku stundaði hann á unglingsárum með dugnaði og elju. Bróðir okkar tvínónaði ekki við hlutina. Náði sér í konuefni aðeins 19 ára gamall. Það var ást við fyrstu sýn heima hjá Þórhildi þar sem þær voru vinkonur. Talandi um að gera hlutina vel. Kristín (Bíbí) var aðeins 17 ára og áttu þau einstakt samband og voru einkar samheldin hjón. Við bræðurnir þóttum einkar líkir í útliti á tímabili. Sögusagnir um að Öggi væri á „tjúttinu“ á Hótel Sögu, meðan hann var heima hjá spúsu sinni, fékk okkur bræður oft til að hlæja. En þar var ég sjálfur á ferð. Öggi menntaði sig í rafvirkjun og lauk síðar meistaranámi í fag- inu. Hjónin fluttu til Ohio í Banda- ríkjunum með börn sín tvö Gunn- ar og Sólveigu. Þar freistuðu þau gæfunnar við vinnu og dvöldu í nokkur ár. Hann var fljótur að að- laga sig amerískri menningu. Kunni vel við sig í sportklæðnaði á heitum sumrum þar vestra, hvítir sokkar og mokkasínur. Við fengum þau aftur til lands- ins. Flutti hann inn rauðan Bla- zer-jeppa sem hann naut þess að keyra um götur borgarinnar. Fagmaðurinn stofnaði fyrir- tæki eftir heimkomuna og bættist örverpið Guðmundur í systkina- hópinn. Golfíþróttin hefur átt stóran sess í huga þeirra hjóna og flestra í fjölskyldunni. Ótal ferðir með stórfjölskyld- unni til Flórída og Spánar eru ein- stakar minningar fyrir börnin og barnabörn. Síðastliðin ár naut hann þess að vera með eiginkonu og vinum. Má þar nefna golfhópinn „Súpugeng- ið“, sem er skemmtilegur fé- lagsskapur sem þau hjónin til- heyra. Ögmundur Guðmundsson Elskulegur faðir okkar, ERLINGUR HALLSSON, sem lést föstudaginn 27. júlí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 8. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Fyrir hönd aðstandenda, Einar, Guðrún, Tryggvi og Erlingur Erlingsbörn Ástkær sonur minn, stjúpsonur, bróðir, mágur og barnabarn, BIRGIR IMSLAND, Bræðratungu 1, Kópavogi, lést föstudaginn 27. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Digraneskirkju í dag, fimmtudaginn 2. ágúst, klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Fyrir hönd annarra ástvina, Ómar Imsland Hildur Björg Hrólfsdóttir Ragnar Imsland Arnar Imsland Alexandra Dís Unudóttir Bragi Þ. Sigurðsson Sigurlaug Sveinsdóttir Ragnar Imsland Júlía Imsland Elskuleg systir mín og föðursystir okkar, ÁSLAUG AXELSDÓTTIR, Þorragötu 9, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 30. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Ólafía Axelsdóttir Bryndís Ólafsdóttir Sigrún Ólafsdóttir Axel Ólafsson og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARÍA STEINUNN HELGA JÓHANNESDÓTTIR frá Dynjanda, lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði þriðjudaginn 31. júlí. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 10. ágúst klukkan 13. Sigurvin Guðbjartsson Þórey Kristín Guðbjartsdóttir Reynir Snæfeld Stefánsson Guðbjartur Guðbjartsson Sigurður Bjarki Guðbjartsson tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir, tengdadóttir og systir, MARGRÉT GEIRSDÓTTIR Gréta, Lundahólum 6, lést á gjörgæsludeild LSH Fossvogi miðvikudaginn 25. júlí umvafin fjölskyldu. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 9. ágúst klukkan 13. Sigmar Guðlaugur Sveinsson Olgeir Sigurgeirsson Laufey S. Sigmarsdóttir Steindór Gíslason Ólafur T. Sigmarsson Jóhanna Björg Geir Friðbjörnsson Laufey Leifsdóttir Sigrún Gísladóttir Svandís Geirsdóttir Ingi Grétarsson Hreiðar Geirsson Kristín Þóra Ólafsdóttir G. Inga Geirsdóttir Þorkell Ingi Ólafsson Guðrún S. Geirsdóttir Guðbergur Ægisson Helga K. Geirsdóttir Guðrún Telma, Pétur Alex, Guðbjörg Tanja og Valdimar Vopni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.