Morgunblaðið - 02.08.2018, Síða 51

Morgunblaðið - 02.08.2018, Síða 51
DÆGRADVÖL 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Stýrðu birtunni heima hjá þér MYRKVA GLUGGATJÖLD Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert eitthvað þungur núna svo kannski er best að þú sért ekkert að reka hornin í aðra svona rétt á meðan. Temdu þér kurteisi og yfirvegun. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert skýjum ofar því draumar þínir eru orðnir að veruleika. Hugsaðu á já- kvæðum nótum. Sýndu vinsemd og taktu undir daður. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Fylgstu vel með því sem er að gerast í kringum þig. Það hefur ekkert upp á sig að æpa á aðra og slíkt lagar ekki stöðuna. Veltu hlutunum vandlega fyrir þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Orka og gleði ríkir hjá þér um þessar mundir. Þú ættir að gera þér glað- an dag með einhverju móti bara svona til þess að vera góður við sjálfan þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Til að forðast það að brenna út í ná- inni framtíð skaltu koma reglu á orkuna þína. Gættu þess að missa ekki sjónar á takmarki þínu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er kominn tími til að slaka á og taka því rólega. Leyfðu lífinu að hafa sinn gang. Allt sem þú ert í dag er afleiðing þess sem þú varst í gær. 23. sept. - 22. okt.  Vog Atriði sem hafa verið þér ókunn koma upp á yfirborðið og valda þér vandkvæðum í starfi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér gengur allt í haginn og aðrir undrast velgengni þína. Taktu engu sem sjálfsögðum hlut en gættu þess að færast ekki of mikið í fang samt sem áður. Lofaðu ekki upp í ermina á þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu það eftir þér að skvetta svolítið úr klaufunum en gættu allrar hátt- vísi. Gerðu ráð fyrir því óvænta og reyndu að gera það besta úr því sem upp kemur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Farðu varlega í fjármálum í dag og ekki láta plata þig út í einhverja til- raunastarfsemi. Gefðu þér tíma til að velta málunum fyrir þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur engar efasemdir varð- andi markmið þín og átt því auðveldara með að fá fólk til samstarfs við þig. Haltu áfram á þinni braut. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er mögulegt að bæta hverju sem er og hverjum sem er inn í líf þitt. Mundu að engin manneskja er annars eign. Það var einmunaveður, sólskinog blíða, á föstudag. Skúli Pálsson orti á Boðnarmiði: Maður ætti að yrkja ljóð um alla þessa blíðu, syðra kætir sólin þjóð og sjafnar yndin fríðu. Borgina lengi byrgðu ský og bleyttu hennar stræti, núna fer um heiminn hlý hamingja og kæti. Þýð er blíða, þornar hey, þvílíkt indælisveður! Sér í lagi mína mey mikið sólin gleður. Eftir lestur þessa hljómþýða smá- ljóðs skilur maður betur að Ing- ólfur Ómar skuli þann sama dag bera fram þessa frómu spurningu: „Skyldi loksins vera hætt að rigna?“: Veröld ljómar drungi dvín daga rómum langa. Söngvar óma sólin skín sumarblómin anga. Eggert J. Levy hefur orð á því að mikið hafi rignt í sumar: Blessuð vætan voða fín virðist kæti laga, einnig bætir okkar sýn alla mæta daga. Skömmu eftir lát Einars Bene- diktssonar mætti maður nokkur Tómasi Guðmundssyni og spurði: „Ertu búinn að yrkja eftir Einar? Ég er búinn að því!“ Tómas svaraði: Þegar strengir stærsta skáldsins brustu sem stoltast kvað og söng af mestum krafti öllum nema landsins lélegustu leirskáldum fannst rétt að halda kjafti! Ludvig Kemp var í Breiðdal 11 eða 12 ára gamall. Hann hefur sagt frá því að þar voru mörg leirskáld: – „Antoníus var maður nefndur. Sá fékkst nokkuð við yrkingar og orti um náttúruna og fleira fallegt. Í Breiðdal er fjallið Slöttur. Og nú kvað Antoníus: Slötturinn er afar hár, er á honum hvíta. Enginn má með ógreitt hár upp á þennan líta. Þetta fannst mér góður skáld- skapur, en fannst samt ástæða til snúnings: Slötturinn er slikjublár slæðu ber hann hvíta. Enginn má með ógreitt hár uppi á honum – dríta.“ Steingrímur í Nesi orti í gamni um Baldur á Ófeigsstöðum: Baldri er létt um ljóðakvak lætur hann sína gesti hól að framan, háð á bak hafa í veganesti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Skyldi loksins hætt að rigna? „ÞANNIG AÐ ÞÉR FINNST ÞÚ VERA LEGUBEKKUR INNRA MEÐ ÞÉR?“ „ÞÚ ERT AÐ DRULLA ÚT MOTTUNA!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera umhugað um hana en ekki bílinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann BÍÐIÐ EFTIR SÆTI BÍÐIÐ EFTIR SÆTI SITTU KLÁRAÐIRÐU HREÐKURNAR OG SIGNA HVÍTKÁLIÐ? JÁ, ELSKAN. GOTT! ÞAÐ VERÐUR KANNSKI FLJÓTLEGA AFTUR Á BORÐUM! KANNSKI FYRR EN ÞIG GRUNAR! Víkjverji hefur sótt sveitaböll fráunga aldri. Allajafna hefur hann sótt Ögurball sem fram fer í Ísafjarð- ardjúpi í júlí ár hvert. Í ár var hann þó vant við látinn og komst ekki í gleðina í djúpinu. Þó mátti sjá að gleðin var þar við völd líkt og áður, ef marka má myndir og myndbönd sem honum bárust með hjálp nútímatækninnar. x x x Ögurball fer fram í samkomuhús-inu á staðnum. Ef horft er á hús- ið að utan virðist það rúma u.þ.b. eina kjarnafjölskyldu. Þegar gengið er inn í húsið upplifir sá hinn sami álíka töfra og Stuðmenn upplifðu þegar þeir gengu inn í tónleikahús eitt í stórmyndinni Með allt á hreinu. Hús- ið tekur léttilega tugi ef ekki hundruð dansandi einstaklinga. x x x Margir bruna fram hjá Ögri á leiðsinni um djúpið og gefa Ög- urvíkinni ekki gaum. Staðurinn er merkilegur fyrir margra hluta sakir. Ögur er fornfrægt stórbýli. Þar bjuggu mikilmenni í margar aldir á því sem þá þótti ein besta jörð djúps- ins. Á 19. öld var þar byggt stærsta íbúðarhús sem til þess tíma hafði ver- ið byggt í sveit á Íslandi. Þessi sam- antekt er rétt til að minna á mikilvægi Ögurs í sögulegu samhengi. Víkverji telur að mikilvægi Ögurs í dag felist í títtnefndu sveitaballi. x x x En hvað fer þarna fram? Hvar liggjatöfrarnir? Liggja þeir í brothættu trégólfinu? Sem breytist í hálfgert trampólín, þegar stuðið er sem mest. Liggja þeir í danspásunni? Þegar mannskapurinn gæðir sér á rab- arbaragraut með rjóma. Eða liggja þeir í þeirri staðreynd að þeir sem eru þarna komnir eru komnir til að skemmta sér saman? Ásetningurinn er skýr, ekki er hægt að fara yfir göt- una á næsta bar. Athyglisbresturinn sigraður. x x x Öllum ætti að vera dagljóst aðsveitaböll hafa fært ótal Íslend- inga saman og fært öðrum fágætar minningar. Við skulum ekki vanmeta töfra íslensku sveitaballanna. Megi þau lengi lifa. vikverji@mbl.is Víkverji Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. (Sálmarnir 106.1)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.