Morgunblaðið - 02.08.2018, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Óli Hrafn Jónas-
son, sem gengur undir listamanns-
nafninu Holy Hrafn, gaf nýverið út
fyrstu plötu sína, Þrettán stafir.
Platan samanstendur af þrettán lög-
um sem eru af óræðri tónlistar-
stefnu. Þar mætast fönk, rapp, raf-
tónlist, hipphopp og í raun bara þær
tónlistarstefnur sem Óla dettur í
hug að vinna með hverju sinni.
„The more, the merrier,“ segir
Óli. „Er ekki best að leyfa engum að
skilgreina sig, ekki einu sinni sjálf-
um sér? Ég geri alls konar og ef mér
finnst ég geta rappað yfir það þá
geri ég það.“
Á plötunni má finna glæný lög
ásamt lögum sem hann hefur flutt
áður. „Ég hef alveg verið að flytja
sum af þeim í þrjú ár, sum í eitt ár en
önnur eru glæný og hafa aldrei
heyrst áður. Þetta er svona ég að
segja bless við þessi lög sem hafa
sum fylgt mér lengi.“
Þrettán stafir er ekki plata þar
sem unnið er með eitt ákveðið þema,
að sögn Óla. „Textarnir verða alltaf
til út af einhverjum svona miðju-
punkti, svo bæti ég á hann eins og
leir. Annað hvort verður hann ein-
hver saga eða ég reyni bara að halda
mig við viðfangsefnið sem getur orð-
ið rosalega loðið. Það er einhvern
veginn þannig hjá mér að orð kallar
bara á næsta orð.“
Vísanir, rím og endurtekningar
Textarnir á plötunni eru mjög
ljóðrænir, í þeim er mikið um vís-
anir, til dæmis í Halldór Kiljan Lax-
ness og barnalagið „Sigga litla systir
mín“ eftir Sveinbjörn Egilsson. Það
er erfitt að botna fullkomlega í text-
unum en þeir eru smekkfullir af
rími, endurtekningum, stuðlum og
orðaleikjum. „Ég veit ekkert endi-
lega um hvað textinn fjallar, þetta er
bara eitthvað sem mér finnst passa
saman. Svona abstrakt,“ segir Óli.
Titill plötunnar er enn einn orða-
leikurinn. „Platan átti upphaflega að
heita Þrettán og það áttu að vera
þrettán lög og ég ætlaði að hafa tólf
aðila sem myndu hjálpa mér með
plötuna og vinna með einhvern
svona Jesú-komplex með 12 læri-
sveina. En svo fannst mér það bara
ekkert virka. Það eru þrettán stafir í
titlinum Þrettán stafir og mér fannst
það bara svolítið fyndið.“
Óli vinnur ekki einungis að text-
unum sínum heldur skapar einnig
flesta takta og tónlist sjálfur en
hann byrjaði að fikta við að búa til
takta þegar hann var þrettán ára.
„Það er eitt lag sem ég gerði ekki
taktinn í á þessari plötu en annars
geri ég allt sjálfur.“
Meira efni á leiðinni
Næsta plata frá Óla er strax í
vinnslu. „Ég eiginlega dreif mig í að
gefa þessa plötu loksins út því ég er
svo spenntur fyrir næstu plötu sem
verður eitthvert svona smá kons-
ept,“ segir hann. Heildarhugmyndin
virðist vera komin vel á veg og er Óli
greinilega spenntur fyrir að skapa
hana. „Hún á að heita 2039 og á að
gerast það ár. Ég á hliðarsjálf í tón-
listinni sem heitir Olo. Aðalkons-
eptið á næstu plötu á að vera að Olo
verði búinn að taka yfir heiminn,
eins og við erum alltaf að gera í
hausnum á okkur sjálf þegar við
ákveðum hvernig við vildum að hlut-
irnir væru. Hann er sem sagt búinn
að búa til sína eigin útópíu en það er
bara fantasía og það er alltaf hægt
að bora göt í fantasíur og gera þær
betri. Þá kemur Holy Hrafn og rífur
niður einveldið sem Olo er búinn að
skapa, enda hægt að rífa niður eða
byggja upp hvað sem er með réttum
rökstuðningi. Í bland við þetta verða
mínir eigin spádómar um árið 2039.“
Leyfir engum að
skilgreina sig
Holy Hrafn gaf nýverið út plötuna Þrettán stafir
Ljósmynd/Patrik Ontokovic
Vinnusamur Óli Hrafn er strax byrjaður að vinna að næstu plötu.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Systkinin Ösp og Örn Eldjárn halda
tónleika í Hannesarholti í kvöld kl.
20 með vinkonu sinni og samstarfs-
konu, hinni ítölsku Valeriu Pozzo.
Ösp og Örn eru frá Tjörn í Svarfað-
ardal þar sem tónlist hefur alltaf
verið ríkjandi partur af hversdeg-
inum, eins og segir í tilkynningu og
því komi ekki á óvart þau hafi gert
tónlistina að ævistarfi.
Ösp hóf tónlistarnám í London ár-
ið 2011 og kynntist þar Pozzo. Hafa
þær frá fyrstu kynnum starfað sam-
an að tónlist og lék Pozzo á fiðlu og
víólu á breiðskífu Aspar, Tales from
a Poplar Tree, sem kom út í fyrra og
var tilnefnd til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna 2018 sem besta platan
í flokki þjóðlagatónlistar. Örn, Ösp
og Pozzo munu í kvöld flytja eigin
lög, gömul og ný, auk þess að flytja
sín uppáhaldslög eftir aðra höfunda.
Ösp er nýflutt heim eftir sex ára
búsetu í London. Örn er gítarleikari
og tónskáld og starfar auk þess við
útsetningar og segir Ösp að þau séu
bæði flutt hálfpartinn norður í
Svarfaðardal og séu nú að vinna
saman að systkinaplötu. Örn lék, líkt
og Pozzo, á fyrrnefndri breiðskífu
Aspar sem lýsir tónlist sinni sem
draumkenndri þjóðlagatónlist. Hún
segir Pozzo líka semja tónlist og að
hún sé einhvers konar bræðingur af
djassi, þjóðlagatónlist og poppi. Í
kvöld verður því líklega komið víða
við í stílum og stefnum.
Uxu saman sem tónlistarkonur
Ösp segir þær Pozzo hafa búið
saman í London og fljótlega orðið af-
ar góðar vinkonur. „Við byrjuðum
báðar að semja tónlist í London, ég
var mikið í djasssöng og hún er
klassískur fiðluleikari en við fórum
báðar út til að vaxa sem tónlistar-
konur og gerðum það saman. Og það
er algjör snilld að geta ferðast með
vinkonu sinni, unnið með henni og
gert með henni tónlist. Það er bara
draumurinn!“ segir Ösp, létt í
bragði.
Ösp, Örn og Pozzo hafa verið á
stuttu tónleikaferðalagi um landið,
stungu síðast við stafni á Dalvík og
enda ferðalagið í Hannesarholti.
Spurð að því hver geri hvað í tríó-
inu segir Ösp að hún syngi og leiki á
hristur, Pozzo syngi og leiki á fiðlu
og gítar og Örn syngi sömuleiðis og
leiki á gítar. „Örn er að koma fram
núna í fyrsta sinn sem söngvari líka
með sín eigin lög. Hann er ekki leng-
ur bara þögli, svali gítarleikarinn í
bakgrunninum,“ segir Ösp kímin.
„Við skiptum þessu vel á milli okk-
ar,“ segir hún um efnisskrána. „Val
er með frumsamið efni, ég er með
frumsamið og Örn líka og við blönd-
um því dálítið saman þannig að þetta
verður skemmtilega fjölbreytt.
Þetta er algjört samyrkjubú.“
Tónleikarnir í kvöld eru á vegum
KÍTÓN, félags kvenna í tónlist.
Ljósmynd/Stefano Padoan
Sumargleði Örn, Pozzo og Ösp á Seyðisfirði að loknum tónleikum í Bláu kirkjunni 26. júlí síðastliðinn.
„Algjört samyrkjubú“
Ösp og Örn Eldjárn og Valeria
Pozzo halda tónleika í Hannesarholti