Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 60
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 214. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Íslandsvinir drepnir í Tadsjikistan
2. Myndarleg lægð gerir atlögu
3. Strætókort á 720.000 krónur
4. Allir sáttir í Herjólfsdal
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Myndlistarsýning Ragnhildar Jó-
hanns, Rómönsur, verður opnuð í dag
kl. 17 í sýningarsal SÍM, Hafnarstræti
16. Ragnhildur sýnir ný málverk af ís-
lenskum femínistum að lesa ástar-
sögur, þeim Fríðu Rós Valdimars-
dóttur, Hildi Lilliendahl Viggósdóttur,
Maríu Lilju Þrastardóttur og Sóleyju
Tómasdóttur. Auður Jónsdóttir rit-
höfundur skrifar í sýningarskrá og
segir m.a. að allar konurnar á mynd-
um Ragnhildar hafi subbað sig út í
opinberri umræðu. „Þannig hafa þær
allar dæmt sig til að vera fláráð
kvendi í rauðu ástarsögunum. Og í at-
hugasemdum dagsins í dag á netinu.
Þær eru konurnar sem karldólgar
fullyrða að séu svona ákveðnar í
skoðunum sínum af því að þær séu
ekki nógu kvenlegar,“ skrifar Auður
meðal annars.
Kvenréttindasinnar
lesa ástarsögur
Farsinn Sýningin sem klikkar, sem
sýndur var á Nýja sviði Borgarleik-
hússins í vor, verður settur upp á
Stóra sviði leikhússins næsta vor. Í
verkinu segir af leikhópi sem er að
setja upp morðgátu og fer allt úr-
skeiðis sem úrskeiðis getur farið.
Halldóra Geirharðsdóttir var leik-
stjóri sýningarinnar og verða tvær
breytingar gerðar á leikhópnum,
Halldór Gylfason tekur við af
Hilmari Guðjóns-
syni og Þórunn
Arna Kristjáns-
dóttir af Kristínu
Þóru Haralds-
dóttur. Fyrsta
sýning á Stóra
sviðinu verður 6.
apríl 2019.
Sýningin heldur
áfram að klikka
Á föstudag Hægviðri og skýjað framan af degi, en suðaustan 5-10
m/s og fer að rigna sunnan- og vestanlands síðdegis og stöku
skúrir norðaustan til. Hiti víða 8-16 stig. Á laugardag Norðlæg eða
breytileg átt, 3-8 m/s, og víða skýjað með köflum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestlæg átt, 3-10 m/s, og víða skúrir,
einkum síðdegis. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.
VEÐUR
Valdís Þóra Jónsdóttir, úr
Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi, mun í dag hefja leik á
opna breska meistaramótinu
á Lytham and St. Annes-
vellinum á Englandi.
Þetta er annað risamót Val-
dísar á ferlinum en hún tók
þátt á opna bandaríska meist-
aramótinu í fyrra þar sem hún
komst ekki í gegnum nið-
urskurðinn. Valdís er tilbúin
og klár í slaginn og spennt
fyrir komandi verkefni. » 1
Valdís Þóra hefur
leik á opna breska
„Ég var að fá mjög mikið svæði á
vinstri kantinum í fyrirgjafastöðu og
ég veit ekki hvað ég átti mikið af fyr-
irgjöfum í þessum leik, það hlaut ein-
hver að enda með marki,“ segir Agla
María Albertsdóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, í samtali við Morg-
unblaðið í dag en hún lagði upp fjög-
ur mörk í stórsigri Breiðabliks á HK/
Víkingi. »4
Fékk mikið svæði og
lagði upp fjögur mörk
Heldur betur óvænt úrslit litu dags-
ins ljós í kvöldsólinni í Vesturbæ
Reykjavíkur í gær þegar KR lagði
Þór/KA að velli 2:1 í Pepsi-deild
kvenna í knattspyrnu. Akureyringar
eru núverandi meistarar og voru
ósigraðar eftir fyrstu tólf leikina í
deildinni. KR var hins vegar í 8. sæti
og hefur verið í botnbaráttu til þessa
í sumar. »2
Fyrsta tap meistaranna
á Íslandsmótinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Bræðurnir Jóhann og Jón Bjarnasynir hafa verið
baðaðir í kirkju- og kóratónlist frá blautu barns-
beini og lærðu báðir á píanó í Tónlistarskóla
Skagafjarðarsýslu, voru í Mótettukór Hallgríms-
kirkju og lærðu síðar á orgel við Tónskóla Þjóð-
kirkjunnar. Í dag eru þeir báðir starfandi org-
anistar, hvor við sinn biskupsstólinn, Jón í
Skálholti og Jóhann við Hóladómkirkju.
Kórar á heimilinu
„Um leið og Jón gat teygt sig upp í hljómborðið
þá byrjaði hann að spila laglínuna með mér á
meðan ég var að æfa. Það liggur við að hann hafi
byrjað að spila áður en hann byrjaði að tala.
Hann lærði bara með móðurmjólkinni nánast,“
segir Jóhann kíminn um litla bróður sinn en níu
ár eru á milli bræðranna.
„Mamma og pabbi voru bæði í kirkjukórnum
svo maður er alinn upp við að fara í allar messur
sem voru í boði. Við vorum sjaldan skilin eftir
heima. Svo byrjaði ég sjálfur í kirkjukórnum
skömmu eftir fermingu svo maður er meira og
minna tengdur þessu öllu saman,“ segir Jóhann.
Jón hefur sömu sögu að segja og bætir við:
„Það voru kórar eiginlega bara heima, eða á
næsta bæ.“
Báðir nefna þeir móðursystur sína, Önnu Krist-
ínu Jónsdóttur, sem áhrifavald í tónlistinni en
hún var bæði tónlistarkennari og organisti til
fjölda ára.
„Þegar ég var fjögurra ára, árið 1983, kom pí-
anó á heimilið. Það var reyndar til gamalt harm-
onium sem ég hafði byrjað að fikta við áður,“ seg-
ir Jón og nefnir Jóhann að sjálfur hafi hann þurft
að láta sér nægja gamla harmonium-orgelið til að
æfa píanólögin sem barn.
Fetaði í fótspor stóra bróður
Eftir fjölbrautaskóla lá leið Jóhanns til Reykja-
víkur þar sem hann sótti nám við Kennaraháskóla
Íslands hvaðan hann lauk prófi 1993. Samhliða
námi lærði hann á orgel við Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar. Segja má að Jón hafi fetað í fótspor stóra
bróður því tæpum áratug síðar kom hann til
Reykjavíkur og lærði á píanó við Tónlistarskóla
Reykjavíkur þar til hann útskrifaðist með píanó-
kennarapróf 2003. Líkt og bróðir hans lærði hann
samhliða náminu á orgel við Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar.
Bræðurnir segja að hvort tveggja, kirkju-
tónlistin og orgelhljóðfærið, hafi dregið þá að org-
anistastarfinu og bætir Jóhann við: „Fjölbreyti-
leikinn í orgelinu og allt sem þú getur gert með
það er náttúrulega magnað. Svo er maður tengd-
ur kirkjustarfi þannig að ég féll mjög vel að því.
Kirkjutónlistin er eitthvað sem maður er alinn
upp við og ég nýt mikið.“
Sjálfur segir Jón sig ekki alltaf hafa stefnt að
því að verða orgainsti en orgelið hafi þó alltaf
heillað hann. „Ég er mjög hrifinn af orgel- og pí-
anótónlist. Þetta er allt mjög skemmtilegt í
bland,“ segir Jón en ásamt því að vera organisti í
Skálholti leikur hann á píanó víða, t.a.m. með
karlakór Selfoss.
Bræðurnir hafa báðir sungið og leikið með kór-
um og nefnir Jón að sér finnist kórtónlist sér-
staklega heillandi.„Ég var í Mótettukór Hall-
grímskirkju í um fimm ár. Jóhann var þar líka en
reyndar á öðrum tíma.“
Spurður hvort hann hafi meðvitað elt bróður
sinn út um allt, í píanó- og orgelnám og síðar
kóra, hlær Jón og svarar: „Tja, hann var alla vega
á undan.“
Bræðurnir í biskupsdæmunum
Jóhann og Jón Bjarna-
synir eru organistar á
Hólum og í Skálholti
Fjórhent Ungir efnilegir tónlistarbræður nýttu
alltaf stofupíanóið til hins ýtrasta.
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Orgelbræður Jón og Jóhann á góðri stundu við uppáhaldshljóðfæri Jóns, orgelið í Skálholti.