Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018
✝ Andrés PéturEyjólfsson
fæddist 15. janúar
1942 á Eskifirði.
Hann andaðist á
Sjúkrahúsi Suður-
lands á Selfossi 26.
júlí 2018.
Foreldrar hans
voru Eyjólfur
Andrésson, f. 28.10.
1910, d. 25.4. 1987,
og Guðrún Stef-
ánsdóttir, f. 18.9. 1902, d. 28.1.
1990. Systur Andrésar eru Erla
Guðlaug Eyjólfsdóttir f. 16.8.
1937, d. 4.12. 2016, og Ólöf Stef-
anía Eyjólfsdóttir.f. 1.10. 1939.
Maki Andrésar var Rakel
Guðrún Aldís Benjamínsdóttir,
f. 26.1. 1947, d. 9.5. 2006. For-
eldrar hennar voru Sigurborg
Andrésdóttir, f. 18.11. 1915, d.
23.5. 1980, og Benjamín Guð-
mundsson, f. 1.8. 1925, d. 13.12.
1988. Börn Andrésar og Rakelar
eru fjögur og einn uppeldis-
sonur. 1) Sigurborg Sólveig
Andrésdóttir, f. 16.3. 1967, maki
Kristján Nielsen, f. 14.6. 1966.
Börn þeirra: a) Andrés Daníel
Kristjánsson, f. 22.5. 1986. Synir
Björnsson, f. 22.9. 1998. d) Aldís
Freyja Kristjánsdóttir, f. 30.3.
2004. Börn Kristjáns eru: a)
Agnar Freyr, f. 11.8. 1993, dótt-
ir Emelía Ósk, f. 8.10. 2012. b)
Eyþór Ingi, f. 22.11. 1994. Börn:
Tristan Leví, f. 27.8. 2012,
Aþena Rán Briem, f. 22.7. 2017
4) Eyjólfur Jóhann Andrésson, f.
24.11. 1983, d. 24.10. 1985. 5)
Uppeldissonur Örvar Harðar-
son, f. 28.12. 1977. Börn hans
eru: a) Díana Dögg, f. 8.11. 2001.
b) Áslaug Tanja f. 30.1. 2011. c)
Gabríel Emil f. 7.9. 2016, sam-
býliskona Andrésar er Rannveig
Harðardóttir f. 29.7. 1962. Börn
Rannveigar, a) Ósvald, b) Hilma
c) Jósep og d) Sóley Huldrún.
Barnabörn Rannveigar eru sex.
Andrés var fæddur og uppal-
inn á Eskifirði. Hann fór ungur
að vinna í fiski og við raflínu-
uppbyggingu. Hann kvæntist
Rakel 1966 og fluttist til Reykja-
víkur. Síðar bjó hann einnig í
Hafnarfirði, Keflavík, Sand-
gerði og Læk Holtum. Síðustu
árin var hann með aðsetur á Sel-
fossi.
Hann vann mest sjálfstætt og
var fjölhæfur, t.d. við sölu-
mennsku, húsaviðgerðir, körfu-
bílaleigu, trefjaplastþjónustu,
síldarvinnslu og útgerð og loks
sem bóndi á Læk Holtum.
Andrés verður jarðsunginn
frá Hagakirkju, Holtum, í dag,
4. ágúst 2018, klukkan 14.
hans Alexander
Freyr Andrésson, f.
11.5. 2006. Gabríel
Þór Andrésson f.
27.4. 2008. b) Eygló
Guðrún Kristjáns-
dóttir, f. 25.10.
1988, d. 7.4. 2009. c)
Ástrós Sóley Krist-
jánsdóttir, f. 29.10.
1997. d) Benjamín
Smári Kristjánsson,
f. 29.4. 2001. 2)
Guðrún Andrésdóttir, f. 5.3.
1969. Sambýlismaður hennar er
Sigurður J. Hallbjörnsson.f.
22.7. 1969. Dóttir Guðrúnar er
Rakel Ólöf Andrésdóttir, f. 2.2.
1992. Sambýlismaður Stefán
Þröstur Sigurjónsson f. 25.5.
1985. Sonur hennar er Gunnar
Andrés Andrason, f. 17.11. 2009,
börn Sigurðar eru: a) Gréta
Ingibjörg, f. 10.10. 1999. b)
Sveinbjörn Sævar f. 22.6. 2001.
3) Lilja Björk Andrésdóttir, f.
15.4. 1974, maki Kristján Ingi
Magnússon, f. 23.5. 1974. Börn
Lilju: a) Þórhildur Andrea
Björnsdóttir, f. 5.2. 1993. b) El-
ísabet María Björnsdóttir, f.
1.12. 1996. c) Guðni Elvar
Elsku pabbi, þetta var eins
og þruma úr heiðskíru lofti að
þú skyldir kveðja okkur svona
snögglega. Enn stækkar hóp-
urinn og saknaðarsárið í hjarta
mínu; mamma, Eygló og Eyjólf-
ur bróðir ásamt öllum hinum
nánu ættingjum okkar, sem
fóru á undan þér. Mín trú er sú
að þau hafi tekið vel á móti þér
og þið séuð öll saman kominn
og fylgist með okkur sem eftir
erum. Ég elskaði það þegar við
sátum við eldhúsborðið, hlógum
og sögðum sögur af mistökum
okkar og hvernig okkur tókst að
leysa úr þeim.
Þú kunnir líka óendanlega
mikið af skemmtilegum sögum,
bröndurum og gátum, sem allir
höfðu gaman að hlusta á. Sér-
staklega var mikið hlegið þegar
þú rifjaðir upp gamansögur um
Lása kokk. Þú varst alltaf svo
góður, sanngjarn og dæmdir
okkur ekki þó að okkur mistæk-
ist. Þú varst duglegur að hvetja
okkur áfram sama hvað okkur
datt í hug að prófa, þú lést okk-
ur bara reyna við þrautina, það
var ekkert sem hét vandamál.
Ég fann alltaf fyrir kærleika og
hvað þú varst alltaf stoltur af
mér þótt ég færi ekki alltaf að
ráðum þínum. Ég á eftir að
sakna þín óendanlega mikið og
allra símtalanna okkar en minn-
inguna um frábæran pabba,
tengdapabba, afa og langafa
munum við geyma í hjörtum
okkar.
Þín dóttir,
Sigurborg (Bogga).
Elsku tengdapabbi, þetta var
stórt högg þegar þú kvaddir
okkur 26. júlí síðastliðinn.
Þú varst mér ávallt sem faðir
og kær vinur þar sem þú komst
inn í líf mitt þegar ég var aðeins
14 ára gamall. Ég leit alltaf upp
til þín og þú leist upp til mín
seinni árin, þú hvattir mig
áfram og alltaf var gaman þeg-
ar við sátum við eldhúsborðið,
hlógum og sögðum sögur af
mistökum okkar og hvernig
okkur tókst að leysa úr þeim,við
brölluðum mikið saman, áttum
margar gæðastundir. Ég á eftir
að sakna þín og gæðastunda
okkar saman.
Þinn tengdasonur,
Kristján (Stjáni plast).
Elsku besti afi minn, það hef-
ur alltaf verið erfitt fyrir mig að
kveðja þá sem mér þykir vænt
um þar sem kveðjustundin
markar lokakafla þinn í mínu
lífi og fyrir mig er það mikill
missir. Þú varst alltaf svo hress,
skemmtilegur og glettinn, yfir-
leitt tilbúinn í að grínast og
hafa gaman. Þú varst líka mjög
hugrakkur, elsku afi, sterkur og
vissir svo margt. Þú varst alltaf
tilbúinn að bjarga þeim sem
þurfti að bjarga.
Það var æðislegt að fá að
vera hjá ykkur ömmu í ár, fá að
búa í sveitinni og fara í sveita-
skólann. Ég gleymi því seint
þegar ég var í 4. bekk í skól-
anum og nokkrir nemendur þar,
ég meðtalin, áttum að búa til
skemmtun fyrir hina nemend-
urna og bjuggum til ógeðsdrykk
sem innihélt meðal annars
áfengi. Þegar allt var orðið ró-
legt og amma búin að húð-
skamma mig fyrir þessa vit-
leysu eftir að skólastjórinn
hringdi í hana, sagðir þú mér að
koma til þín inn í símaherbergi
og spurðir mig útí þetta, blikk-
aðir mig svo og gafst mér 100
kall.
Það liggur einnig sterkt í
minningunni þegar við Tóta
vorum úti í fjárhúsum og príl-
uðum á bakið á hryssunni
Snældu sem á þeim tíma var
ótamin, þú læddist að okkur
mjög rólega og tókst okkur af
baki, við vorum skælbrosandi
og höfðum ekki hugmynd um að
við værum í hættu, síðan knús-
aðir þú Snældu fyrir það hvað
hún væri góð og stillt en
skammaðir okkur og útskýrðir
fyrir okkur hvað hefði getað
gerst.
Ég gleymi því heldur aldrei
þegar amma var veik og þú úti
að vinna, við Tóta vorum beðnar
um að taka til niðri en þess í
stað bónuðum við bara
glugganna svo ekki sást út um
þá og hlupum út að leika okkur,
þér var ekki skemmt.
Ég man ekki hversvegna en
þú sagðir alltaf við okkur Tótu
„og hann beið og beið og beið,
en aldrei komu stelpurnar“ og
við skemmtum okkur oft yfir
því. Nema núna er það öfugt því
ég mun bíða og bíða og bíða þar
til ég fæ að knúsa þig næst,
elsku besti afi súperönd.
Í dag á ég lítinn son sem
heitir Gunnar Andrés og er m.a.
skírður í höfuðið á þér, og ég
elska að deila þessum sögum
með honum. Takk fyrir allar
góðu minningarnar og öll ynd-
islegu ævintýrin.
Fallega sveitin við bjallann,
það er sveitin þín.
Hægt væri að leita um heiminn
allan
yfir hæstu fjallasýn
en best fannst mér þó að koma
til þín.
Rakel Ólöf Andrésdóttir.
Ástkær afi og langafi, nú
skilja leiðir okkar í þessu lífi og
erfitt er að hugsa sér lífið án
þín, en við getum þó hugsað til
þess að þó þú farir frá okkur á
annan stað þá ertu í góðum fé-
lagsskap í faðmi ömmu og
Eyglóar, þú skilur þó eftir þig
æðislegan tíma í þessu lífi sem
er uppfullur af góðum og
skemmtilegum minningum sem
munu lifa í hjörtum okkar allra
um ókomna tíð. Lífið í sveitinni
var draumur einn og eigum við
margar góðar minningar þaðan
þar sem sumarfríinu á unglings-
árunum var oft eytt þar við hey-
skap og önnur skemmtileg
störf. Margar voru raunirnar og
var ekkert sem gat stoppað
okkur nafnana, hlutunum var
bara reddað og ekkert kjaftæði,
einnig voru margar næturnar
sem lítið var sofið þar sem heyj-
að var fram eftir. Þú varst mér
mikil fyrirmynd og eyddi ég
miklum tíma hjá ykkur ömmu á
uppeldisárum, vegna veikinda
Eyglóar og er ég þakklátur fyr-
ir það. Þú hefur alltaf verið til
staðar, verið hress og skemmti-
legur og stutt var í stríðnispúk-
ann í þér, við feðgar munum
sakna þín um ókomna tíð og
minnast með sorg og gleði í
hjarta vegna þeirra góðu minn-
inga sem þú skilur eftir hjá
okkur, þakka þér fyrir allt sem
þú hefur veitt okkur.
Þinn afastrákur og nafni,
Andrés Daníel.
Elskulegur afi minn, ég kveð
þig með söknuð í hjarta en efst
í huga mínum er þakklæti.
Þakklæti fyrir hlýjar minningar
okkar úr sveitinni.
Sumarminningin mín um þig
lifir í hjarta mínu, þegar við
Beta komum til þín og ömmu og
áttum saman yndislegar stund-
ir. Þegar til baka er litið eru
það litlu hlutirnir sem skipta
mestu máli, eins og rúntur á
pallbílnum þínum.
Það er margt sem ósagt er,
en ég veit þú ert hjá mér.
Nú lýkur okkar stund um
sinn og kominn þú ert í faðminn
minn (ömmu minnar og Eyjólfs
sonar þíns og Eyglóar systur
minnar).
Takk fyrir allar þessar góðu
og fallegu stundir. Minning þín
lifir í hjarta mínu um ókomna
tíð.
Kveðju orðin mín til þín eru
þau sem ég sagði við þig í
hinsta sinn þegar komið var að
leiðarlokum.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Höndin þín, Drottinn, hlífi mér,
þá heims ég aðstoð missi,
en nær sem þú mig hirtir hér,
hönd þína eg glaður kyssi.
Dauðans stríð af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja,
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.
Minn Jesús, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta eg geymi,
sé það og líka síðast mitt,
þá sofna eg burt úr heimi.
(Hallgrímur Pétursson)
Hvíldu í friði.
Þín afastelpa,
Ástrós Sóley.
Elsku afi minn.
Þegar ég fékk fréttirnar að
þú værir farinn frá okkur vildi
ég ekki trúa því, raunveruleik-
inn virtist þó vera sár og erf-
iður. Ég á margar fallegar og
góðar minningar sem ég mun
aldrei gleyma.
Takk fyrir að vera til staðar
og takk fyrir að vera alltaf
besta fyrirmynd fyrir mig sem
ég get hugsað mér. Við vorum
mjög náin og áttum sérstakt
samband sem einkenndist af
fíflagang og húmor, við bjugg-
um saman og vorum við öll ein
heild.
Ég ber mikið þakklæti til þín.
Það verður erfitt og skrítið
að þú sért farinn yfir móðuna
miklu.
Ég kveð þig um sinn, þú
varst einstakur og allir þeir sem
þig þekktu eru heppnir að hafa
fengið að kynnast þér.
Ég var einstaklega heppin að
eiga þig sem afa. Minning þín
er ljós í hjarta mínu – hvíldu í
friði.
Þín afastelpa,
Aldís Freyja.
Þín verður sárt saknað, elsku
afi minn. Við áttum fullt af góð-
um og skemmtilegum minning-
um. Það var alltaf svo gaman að
koma upp í sveit til þín og
ömmu og fá að fara með þér á
traktorana, slá túnin, pakka inn
rúllunum, bera áburð á túnin og
bara að fá að vesenast með þér í
öllum þessum tækjum og vélum.
Og fullt, fullt af öðrum ógleym-
anlegum og góðum minningum.
Vona að þú hafir það gott eða
betra hjá ömmu og systur
minni. Ykkar er sárt saknað.
Þinn afastrákur,
Benjamín Smári.
Andrés Pétur
Eyjólfsson
HINSTA KVEÐJA
Ég sakna þín langafi, þú
varst sá eini sem fékk leyfi
til að kalla mig Alla, það var
gaman að koma og heim-
sækja þig í sveitina. þú
hafðir gaman af því þegar
við komum og sýndum þér
drónana okkar og vorum að
fljúga og taka myndir með
þeim af sveitinni.
Þinn,
Alexander Freyr.
Bæ, langafi, ég mun
sakna þín og að geta ekki
heimsótt þig í sveitina.
Þinn,
Gabríel Þór.
Bæ langafi, ég mun
sakna þín.
Þinn,
Gunnar Andrés.
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Emilía Jónsdóttir,
félagsráðgjafi
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HELGI HRÓBJARTSSON
prestur og kristniboði,
sem lést í Eþíópíu föstudaginn 6. júlí,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju
þriðjudaginn 7. ágúst klukkan 15.
Hjalti Helgason Elín J. Langdahl
Hanna María Helgadóttir
Ingibjörg Margrét Helgadóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
KRISTMUNDUR GUÐMUNDSSON,
vélsmiður,
Njarðarvöllum 6,
Reykjanesbæ,
lést mánudaginn 30. júlí á Hrafnistu í Reykjanesbæ.
Útför hans verður frá Fossvogskirkju mánudaginn
13. ágúst klukkan 15.
Elín Guðný Bóasdóttir
Guðmundur Karl Kristmundsson, Guðborg Eyjólfsdóttir
Anna Katrín Kristmundsdóttir, Bjarni Róbert Jónsson
Eyrún Elín, Kristrún María, Róbert Arnar,
Marinó Ingi og Nanna Ísold
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
ÁGÚST ÖNUNDARSON,
varð bráðkvaddur á Möltu þriðjudaginn
31. júlí.
Útför auglýst síðar.
Ester Ösp Guðjónsdóttir
Hrefna Ýr Ágústsdóttir