Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018 Meira til skiptanna Skaftárhlaup hófst á þriðjudaginn var. GPS-mælingar í eystri Skaftárkatli sýndu þá að íshellan var farin að lækka og rennsli var hafið úr lóni við jökulbotn. Hlaupið kom undan jökli upp úr hádegi í gær, mun fyrr en áður hafði verið reiknað með. Jökulhlaup undan Skaftárkötlum geta verið snögg og önnur hæg. Venjulega vex rennsli hratt frá eystri katlinum og lækkar hægt; hámarksrennsli, 200-1.500 m3/s, næst á 1-3 dögum, og síðan lýkur hlaupinu á 1-2 vikum. Hið hraða ris bendir til þess, að hiti í vatninu í lóninu sé yfir bræðslumarki. Íssjármælingar Jarðvísindastofnun- ar Háskólans sýna einnig að minna vatn er í lóninu nú en var í upphafi hlaups 2015. En þó búist sé við því að rennsli í hlaupinu nú verði minna en í hlaupinu 2015 er hugsanlegt að hlaup brjótist hraðar fram nú en þá. Þar eru tvö jarðhitasvæði sem bræða jökulinn án afláts en vatnið sleppur ekki burt vegna þess að þar er lægð í yfirborð jökulsins. Þessar lægðir, eða ketilsig, eru kallaðar Skaftárkatlar. Sigin eru nær hringlaga, 1-3 km í þvermál, og yfir miðjum þeirra er 300-400 m þykkur jökull. Jökulhlaup í Skaftá eiga uppruna sinn undir Vatnajökli norðvestur af Grímsvötnum. Tvö ár eru nú liðin frá síðasta Skaftárhlaupi. Þá var hlaupið minniháttar en árið áður, 2015, var stórt hlaup og olli það miklu tjóni og röskun, meðal annars á umferð- armannvirkjum og beitilandi. 1-3 km 300-400 m 2015 MÝRDALS- JÖKULL VATNAJÖKULL Sk af tá Skaftárkatlar 2005 Fyrir hlaupið 2015 höfðu liðið rúm fimm ár frá síðasta hlaupi þar á undan en nú eru liðin tæp þrjú ár frá síðasta stóra hlaupi. Það þýðir að líklega verður um minna hlaup að ræða en árið 2015. Hlaup í Skaftá 0 0 1 5 0 0 MW Vatnasvið eystri ketilsins hefur verið metið 29 km2 og hins vestari 20 km2. Samanlagt afl jarðhita er um 1.500 MW. 40 hlaup að minnsta kosti hafa frá árinu 1955 fallið undan sigkötlun-um, 30 kílómetra leið undir jökli austan við Fögrufjallahrygg til Skaftár. Um 8 km austan við Tungnaárbotna fer hluti af hlaupvatninu vestur um skarð í hryggnum. 500 m. Skarðiðnær niður í 500 metra hæð, en farg meginjökulsins þrýstir vatninu engu að síður upp í 650 metra, svo að það kemur undan Tungnaárjökli norðan við Langasjó og fellur þaðan austur með jökulröndinni yfir í Skaftá. Einnig eru dæmi þess að runnið hafi í Tungnaá. Tvö til þrjú ár hafa liðið á milli hlaupa í hvorum katlanna, þeim eystri og þeim vestari. 60 km. Þegar hleypur úr jarðkötlunum rennur vatnið fyrst um 40 km undir jökl- inum og síðan 20 km eftir farvegi Skaftár áður en það kemur að fyrsta vatnshæðarmæli, sem er viðvörunarmælir við Sveinstind. Söfnunarhraði í katlana er nokkuð jafn, því er langur tími á milli flóða jafnan ávísun á stór flóð. Hlaup úr eystri katlinum eru jafnan stærri en þau sem koma úr vestari katlinum. 40 km 20 km Úr hvorum katli hleypur að jafnaði á tveggja ára fresti en hlé milli hlaupa úr eystri katlinum var óvenju langt fyrir hlaupið 2015. 3.000 m3/s hefur hámarksrennsli í hlaupum orðiðúr eystri katlinum. Miðja eystri ketilsins sígur um 100-150 metra í hverju jökulhlaupi og frá katlinum renna 200-350 milljónir rúmmetra af vatni, vestari ketillinn sígur 50-100 metra, og undan honum falla 50-150 rúmmetrar. Heimildir: Vísindavefur HÍ, vefur Orkustofnunar, Veður.is, Morgunblaðið og Mbl.is Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Skaftárhlaup hófst síðdegis í gær. Í kjölfarið lýsti ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suð- urlandi, yfir óvissustigi almanna- varna. „ Þetta er neðsta þrepið. Ef ástandið magnast upp förum við á næsta þrep og er fólk í viðbragðs- stöðu á öllum vígstöðvum,“ segir Hjálmar Björgvinsson, deildarstjóri hjá almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra. Hlaupið fór fyrr af stað en áætlað var og kom veðurfræðing- um á óvart, að sögn náttúruvársér- fræðings hjá Veðurstofunni. Þá bendir allt til þess að rennsl- isaukning sé meiri en í stóra Skaftár- hlaupinu 2015 og fari það hraðar nið- ur en von var á. Veðurstofan hefur varað við mannaferðum á þessum slóðum m.a. vegna losunar eitraðra gastegunda úr hlaupvatninu. Í gær vann hópur björgunarsveitarmanna við rýmingu á nærliggjandi svæðum þar sem gönguhópa var að finna. Telur Veðurstofan líklegt að rennslið nái hámarki við Ása og Kirkjubæjar- klaustur í dag. Mun hámarkið líkleg- ast standa í nokkrar klukkustundir og eftir það mun draga hægt úr hlaupinu. Þá lýsti fjarskiptafyrirtækið Míla yfir óvissustigi á Suðurlandi vegna hlaupsins en strengjakerfi Mílu liggja um vatnasvæði Skaftár og er því viðbúið að hlaupið geti haft áhrif á fjarskiptasambönd á svæðinu. Rennur fyrr og hraðar niður en áætlað var  Skaftárhlaup hófst í gær af krafti Náttúruvá Skaftárhlaupið 2015 var það stærsta í manna minnum. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.