Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú verður þú að láta heilsu þína ganga fyrir öllu öðru. Notaðu tækifærið til að bæta sambandið við þá sem þér eru kærir. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú verður hugsanlega fyrir von- brigðum með skiptingu á tilteknum hlunnindum eða verkefnum og áttir kannski von á meiru. Taktu hlutskipti þínu af æðruleysi, það er hollt að draga stysta stráið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft ekkert að fara á taug- um þótt allt gangi ekki nákvæmlega eins og þú vilt. Um leið og þú færð verkefni sem vekur hjá þér áhuga fyllistu orku. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver vill gleðja þig svo þú skalt bara taka öllum freistandi tilboðum. En úthaldið má ekki bresta og þess þarft þú að gæta sérstaklega. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er sama hversu gróðavænlega ábendingu þú færð í dag, ekki veðja neinu. Ekki er allt gull sem glóir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er svo margt skemmtilegt í boði núna að þér reynist ófært að taka þátt í því öllu. Félagar þínir hvetja þig til dáða en forðastu að gera eitthvað á þeirra hlut. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er tími orða liðinn. Stattu við stjórnvölinn og reyndu því að skipuleggja daginn þannig að þér vinnist vel. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Yfirmenn þínir taka eftir þér í dag og þess vegna skaltu vanda verk þín. Biddu um hjálp jafnvel þegar þú þarfnast hennar ekki. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Leggðu þig fram um að ná stjórn á hlutunum. Renni þér eitthvað úr greipum verðurðu að trúa því fastlega að eitthvað nýtt komi í staðinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Eins og það er notalegt að búa að sínum gömlu og góðu vinum, þá er líka hollt að heyra hljóðið í nýjum fé- lögum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekkert vit í að láta reka á reiðanum lengur. Haltu höfði og sinntu þínu, þá getur ekkert ógnað velgengni þinni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ef þú heldur rétt á spöðunum ætti flest að ganga þér í haginn. Vertu þolin- móður því þú hefur allt með þér. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Jafnan má í seti sjá. Sungin bæði nú og þá. Mörg í köku minni sá. Menn þau hlutu fleins í þrá. „Svona lítur lausnin út í þetta sinn,“ skrifar Harpa á Hjarðarfelli: Víða má hér setlög sjá. Sungin lögin nú og þá. Mörg lög köku minńí sá. Menn sverðalög hlutu þá. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Sandur finnst í setlögum. Sönglög stundum snúin. Var lagkaka í Ljótssögum, en lag í skjöldinn? Búin. Þessi er lausn Helga Seljan: Setlög þau rannsaka nánar og rýna, svo raulum við lögin, hve gaman það er. Og frúrnar þær tertulög trúlega sýna, þá týndu menn lífi við spjótalög hér. Helgi R. Einarsson segir að lausnin vilji vera svona þessa vik- una: Allt er gott sem endar vel einnig nú í dag. Í heimsku minni helst ég tel að hér sé átt við lag. Þessi er skýring Guðmundar: Vel má lög í seti sjá. Sungin lög oft heyra má. Lög í köku líka sá. Lög menn hlutu fleins í þrá. Þá er limra: Einn náungi nautheimskur mjög neglurnar snyrtir með sög, en athæfi slíkt, sem engu er líkt, ætti að varða við lög. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Upp við dogg í dögun rís, döggum skýin gráta, heita kýs á heilladís, hér er spáný gáta: Hann er burðarbjálki sver. Bestur á hendi þykir mér. Býsna hratt í hringi fer Hæð, sem fremur lágreist er. Í lokin er þingvísa frá 1911 eftir Kjóa: Kóngur sagði Kristjáni Að koma og verða ráðgjafi yfir sínu Íslandi - en Alþingi því neitaði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lögin þarf til alls Í klípu TEITUR FÆR RÉTT. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HANN FÓR AÐ NÁ Í KIRSUBERJAÍS EN KEMUR FLJÓTLEGA AFTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... sönnun þess að það var ekki draumur. ROKK OG RÓL!!! MIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ TIL AÐ ÖSKRA ÞETTA ER ÞAÐ ÞÁ BÚIÐ? ÞAÐ VAR FALLEGT AF ÞÉR AÐ LÁTA OKKUR FÁ JÓLASOKKA FREKAR EN STRIGAPOKA! ÉG ER MIKIÐ JÓLABARN! HÁRRÉTT BÍP Sérfræðingar segja að besta lyktsem hugsast getur sé líkamslykt þeirra sem eru manni kærir. Þessu samsinnir Víkverji, allavega á meðan hreinlætis er gætt. Óskandi væri að fleiri meðtækju þennan sannleik. x x x Takmörkum er háð hversu vel dauð-legir menn geta ilmað. Ískyggi- lega margir hafa tröllatrú á gervi- efnum sem eiga að ilma svo vel að þau komi í stað fyrir sturtu. Áhrifin eru oft- ast öfug. Svona umvandanir ættu kannski betur heima í unglingablaði en þó sorglegt sé þarf að minna suma full- orðna (karl)menn á að baða sig. x x x Yfirleitt gera menn þetta í réttri röð:fara í sturtu og úða svo á sig „ilm“- vatninu, sem sjaldnast ber nafn með rentu. Þetta skal gert í einrúmi, án þess að stífla skilningarvit saklausra óbreyttra borgara. Víkverja greyinu er oft misþyrmt af vöðvastrákum í ræktarklefanum þegar þeir breyta honum í gasklefa með James Bond- rakspíranum sínum. x x x Betra, eða skárra, væri ef vöðva-strákarnir tækju sig til og veipuðu inni í klefanum. Gufa sú er allavega ekki svo sterk og yfirþyrmandi að Vík- verji þurfi að hrökklast út í horn með handklæði fyrir vitunum. Þeir gætu allt eins farið að reykja inni eins og í gamla daga. En það færi ekki vel á því í líkamsræktarstöð. x x x Baggið, eins og vöðvastrákarnirkalla það, íslenskt neftóbak, er að vísu aufúsugestur í íþróttahreyfing- unni. Enda byrjuðu menn að taka í vörina í skíðafélögunum norsku, að Víkverja minnir. Sá ósiður hefur þann kost að hann er ekki hættulegur öðr- um en sjálfum neytandanum, ólíkt ilm- vatni og reykingum. x x x Alltaf endar Víkverji á að messa yfiráhlýðendum sínum. Þeir hljóta að fara að mótmæla með hrífum fyrir ut- an húsið hans, enda upp til hópa hrein- látt fólk. Ætli Víkverji sé ekki bara ónæmur fyrir dauninum sem leggur af honum sjálfum. vikverji@mbl.is Víkverji Enginn er heilagur sem Drottinn, eng- inn er til nema þú, enginn er klettur sem Guð vor. (1Sam 2.2) Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.