Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Veiðisport Selfossi
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Mosfellsbær og Vegagerðin hafa í
sameiningu staðið að gerð deiliskipu-
lags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal
og næsta umhverfi hans. Skipulagið
hefur verið auglýst og er athuga-
semdafrestur til 9. september n.k. Á
Þingvallavegi hafa orðið alvarleg
slys. Á dögunum varð banaslys á veg-
inum og í kjölfar þess kröfðust íbúar í
Mosfellsdal tafarlausra úrbóta.
Hraðakstur hefur verið mikið
vandamál á þessum vegakafla og með
þeim framkvæmdum sem stefnt er að
á að draga úr hraðakstri.
Fram kemur í greinargerð með til-
lögunni að hraðamælingar frá árinu
2009 gefi til kynna að 77% ökumanna
aki yfir leyfilegum hámarkshraða,
sem er 70 km/klst. Meðalhraði mæld-
ist 78 km/klst. Kaflinn sem deili-
skipulagið nær til er 3,8 kílómetra
langur og þar eru 17 vegtengingar.
Ein akrein er í hvora átt og er mal-
bikaður stígur fyrir hjólandi og gang-
andi sunnan megin við veginn.
Hið nýja deiliskipulag gerir ráð
fyrir byggingu tveggja hringtorga á
Þingvallaveginum, annars vegar við
gatnamót Helgadalsvegar, tenging
við Laxnes, og hins vegar við Æsu-
staðaveg og Mosfellsveg. Gert er ráð
fyrir að þessi framkvæmd muni leiða
til þess að meðalhraðinn muni lækka
og að í kjölfarið verði hægt að fækka
tengingum við Þingvallaveg á þess-
um vegarkafla. Ætla megi að með
lægri meðalhraða og færri vegteng-
ingum dragi úr slysahættu og hljóð-
mengun.
Byrjað verður á austara hringtorg-
inu, við Helgadalsveg sem er minna
en það vestara, vegna aðstæðna.
Stærðin er hefðbundin fyrir þessa
gerð vegar og gatnamóta.
Hringtorgin eru nógu stór til að
langferðabílar komist um og hentar
jafnframt vel til að draga úr
umferðarhraða.
Samkvæmt upplýsingum frá G.
Pétri Matthíassyni upplýsingafull-
trúa Vegagerðarinnar mun það skýr-
ast hvenær af framkvæmdum verð-
ur, þegar ný samgönguáætlun
verður afgreidd á Alþingi næsta vet-
ur. „Eftir er að verkhanna og tekur
það líklega nokkra mánuði og sam-
hliða verða samningar við landeig-
endur o.s.frv. eða allt það sem gera
þarf,“ segir G. Pétur.
Núverandi undirgöng við Suðurá
verða áfram og aðkoma að þeim
bætt. Gert er ráð fyrir undirgöngum
út frá Æsustaðavegi en endanleg
gerð og staðsetning verður ákveðin á
framkvæmdartíma. Undirgöng
verða staðsett vestan við hringtorgið
við Helgadalsveg. Gert er ráð fyrir
umferð gangandi, ríðandi og hjólandi
um undirgöngin.
Árið 2016 var meðalumferð bíla á
dag 2.941 á Þingvallavegi ofan
Helgafellsmela. Yfir sumartímann
var meðalumferð bíla 4.092 og yfir
veturinn 2.087. Umferð á Þingvalla-
vegi hefur vaxið síðustu ár sér-
staklega eftir að vegur yfir Lyng-
dalsheiði var opnaður haustið 2010.
Deiliskipulagstillagan verður til
sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar,
Þverholti 2, til og með 9. september
2018, svo að þeir sem þess óska geti
kynnt sér hana og gert við hana at-
hugasemd. Tillagan er einnig birt á
heimasíðu Mosfellsbæjar.
Tvö hringtorg í Mosfellsdal
Nýtt deiliskipulag auglýst Stefnt að því að draga úr hraðakstri 77% ökumanna aka yfir leyfi-
legum hámarkshraða Skýrist í nýrri samgönguáætlun hvenær af framkvæmdum getur orðið
Í Mosfellsdal er fjölbreytt starf-
semi og byggð. Íbúar í Dalnum
eru rúmlega 220 og býr meiri-
hluti þeirra, eða ¾, sunnan
Þingvallavegar. Byggðin þar er
aðallega í þremur klösum; við
Laugabólsveg, Æsustaðaveg og
Hraðastaðaveg, með opnum
svæðum á milli.
Af starfsemi sunnan vegar
ber mest á umfangsmikilli yl-
rækt og garðyrkju, og eru um
helgar á sumrum haldnir blóma-
og grænmetismarkaðir, sem
draga að sér fólk og umferð.
Einnig er þar nokkur ferða-
þjónusta, hestamennska og
annar frístundabúskapur.
Norðan vegar er byggðin
dreifðari og þar er meira um
hefðbundinn landbúnað.
Íbúar rúm-
lega 220
MOSFELLSDALUR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mosfellsdalur Hraðakstur hefur verið vandamál á þessum kafla. Gatnamótin fremst á myndinni eru við Æsustaðaveg.