Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 28
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri. RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja.        atvinna@mbl.is • Sölufulltrúar: Kristján Aðalsteinsson, ka@mbl.is, 569 1246 • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 Sölustarf – Framtíðarstarf Innflutningsfyrirtæki á heilbrigðissviði leitar að hjúkrunarfræðingi í starf sem felur í sér sölu og kynningu á vörum fyrir skurðstofu- svið og aðrar hjúkrunarvörur. Umsækjendur verða að hafa góða ensku- kunnáttu og almenna tölvukunnáttu. Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg. Vinsamlegast sendið umsóknir og ferilskrá á box@mbl.is, merktar: ,,S - 26425”. Austurbæjarskóli er rótgróinn grunnskóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru 450 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn. Framtíðarsýn skólans er: Framsækinn skóli fyrir alla. Skólinn leggur sig fram um að vera í fararbroddi hvað varðar fjöl- breytta náms- og kennsluhætti þar sem allir hafa jafnan aðgang að lærdómsferlinu. Lögð er áhersla á að varða leið nemenda í námi, vinna með reynslu- heim, hvetja til samvinnu og auka metnað og árang- ur. Austurbæjarskóli er vinnustaður fyrir hugmynda- ríkt og skapandi fagfólk sem sýnir metnað í starfi, ber hag nemenda fyrir brjósti og leggur sig fram um að sinna þörfum barna og unglinga. Á komandi skólaári eru eftirfarandi störf laus til umsóknar: • Starf íþróttakennara • Starf stuðningsfulltrúa, hlutastarf Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endur- spegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Allar nánari upplýsingar um störfin veitir Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri s. 411 7200. Sótt er um á www.rvk.is Íþróttakennari Leikskólabörnum fjölgar á Seltjarnarnesi og við stækkum leikskólann okkar. Við þurfum því á góðu fólki að halda til liðs við okkar frábæra hóp. Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum viðbótarkjörum og tilboði um námssamninga. Í leikskólastarfinu er lögð sérstök áhersla á tónlist og umhverfismennt. Við óskum að ráða í eftirfarandi störf: • Deildarstjórar, fullt starf. • Leikskólakennarar, fullt starf. • Leikskólaleiðbeinendur, fullt starf. Hafðu samband og heyrðu hvað við höfum upp á að bjóða! Hringið í Margréti eða Sonju (5959280 / 5959290) eða sendu tölvupóst á netföngin mandy@nesid.is eða sonja@nesid.is Umsókn ásamt fylgiskjölum er skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar – undir www.seltjarnarnes.is – Störf í boði. Umsóknarfrestur er til 12. ágúst næstkomandi. Leikskóli Seltjarnarness Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga og samþykktum Seltjarnar- nesbæjar um launakjör starfsfólks Leikskóla Seltjarnarness.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.