Morgunblaðið - 13.08.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Trausti Magnússon og Hulda
Jónsdóttir eru elstu núlifandi hjón
á Íslandi, en Trausti fagnar hundr-
að ára afmæli sínu í dag. Hulda er
97 ára gömul og eru hjónin því
samanlagt 197 ára.
Dóttir hjónanna, Vilborg, segir
æðruleysi og reglulegar máltíðir
líklegar ástæður fyrir háum aldri
foreldra sinna.
„Þau hafa lifað á þessum ís-
lenska mat alla ævi og borðað
reglulega. Þau hafa samt ekki ver-
ið neitt miklar reglumanneskjur,
lifðu bara venjulegu lífi. Pabbi
reykti mikið, oft þrjá pakka á dag,
en hætti því snögglega um fertugt.
Mamma reykti hins vegar alveg
þar til hún fór í hjartalokuaðgerð,
þá 93 ára. Þá var hún inni á spítala
í fimm daga og fannst ekki taka
því að byrja aftur þegar hún hafði
ekki reykt í fimm daga.“
Trausti ólst upp í Gjögri og hóf
þar sjóróðra með föður sínum átta
ára gamall. Hann flutti svo til
Djúpuvíkur átján ára gamall og
var sjómaður og skipstjóri þar á
ýmsum skipum. Sem skipstjóri á
flóabátnum Hörpu bjargaði hann
mönnum úr sjávarháska.
„Þá fór bátur upp á skerið í
arfavitlausu veðri. Pabbi var kall-
aður út og fór innar við skerið þar
sem hann tók á móti mönnunum
þegar þeir komu yfir það. Það var
engin leið að ná þeim hinum megin
frá vegna veðra. Sem betur fer
björguðust allir,“ segir Vilborg.
Vitaverðir í 39 ár
Fyrir þrekvirkið átti Trausti að
fá fálkaorðuna. „Þá fór breskur
togari upp í einhvers staðar og
þeir sem björguðu áhöfninni fengu
orðuna í staðinn. Hann var samt
alveg sáttur við það fyrst þeim
tókst að bjarga áhöfn togarans.“
Trausti og Hulda fluttu að
Sauðanesi við Siglufjörð árið 1959
og gerðust vitaverðir í Sauðanes-
vita. Þar voru þau vitaverðir í 39
ár. Fyrstu átta ár þeirra á Sauða-
nesi var staðurinn ekki í vega-
sambandi. Þá var gengið eftir tæp-
um götum fyrir Strákafjall til að
komast til Siglufjarðar. Einnig var
hægt að fara sjóleiðina, en lending
var erfið.
Vilborg segir foreldra sína helst
vilja vera á Djúpuvík en þau fluttu
til Reykjavíkur árið 1998.
„Þau ætluðu að vera lengur á
Sauðanesi en það gekk ekki upp.
Hann stefnir að því að fara til
Djúpuvíkur og halda upp á afmæl-
ið sitt á næstu dögum.“
Heldur sér í formi
Trausti er mikill útivistarmaður
og þau Vilborg fara gjarnan í
göngur.
„Við höfum gengið saman
undanfarin ár, af og til í sumar
líka þegar færi hefur gefist. Hann
heldur sér í formi eins og hann
getur. Honum finnst jafnvel stund-
um að hann fái ekki að hreyfa sig
nóg.“
Aðspurð hvort Trausti hafi í há-
vegum einhver heilræði segir Vil-
borg: „Hafa skal það sem hendi er
næst og hugsa ekki um það sem
ekki fæst. – Hann er ekkert að
velta sér upp úr því sem er ekki
heldur bara hafa það sem er.“
Samanlagður aldur elstu hjóna 197 ár
Trausti verður hundrað ára í dag
Ætlar að fara til Djúpuvíkur
Morgunblaðið/Golli
Vinnusöm Hér eru Trausti og Hulda fyrir nokkrum árum að gera garðinn
hjá sér kláran fyrir veturinn. Þau eru vön mikilli útiveru enda gengu þau
gjarnan á milli Sauðaness og Siglufjarðar áður en jarðgöng voru lögð.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er auðvitað mjög dapurlegt
að sú neikvæða þróun sem við höf-
um horft upp á á undanförnum ár-
um skuli halda áfram og að enn
virðist bóksala dragast saman.
Fyrir ári síðan sagði ég íslensku
bókaútgáfuna komna að þolmörk-
um og það er auðvitað augljóst að
sú staða hefur í engu skánað,“ seg-
ir Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins og fyrr-
um formaður Félags íslenskra
bókaútgefanda.
Morgunblaðið greindi frá því
fyrir ári síðan að hrun hefði orðið í
bóksölu hér á landi síðustu ár. Þá
kom fram að bóksala hafði dregist
saman um 11% á einu ári, 2016, og
alls um ríflega 31% frá 2008 til
2016. Ljóst er að þessi þróun hefur
haldið áfram síðan.
Tölur fyrir árið 2017 leiða í ljós
að tæplega 5%
samdráttur varð
í bóksölu hér á
landi. Samtals
nemur samdrátt-
urinn á þessum
tíu árum um 36
prósentustigum.
Salan fyrstu
fjóra mánuði árs-
ins, gefur ekki
góð fyrirheit,
samdráttur nem-
ur 5% frá fyrra ári. Þetta má lesa
út úr tölum sem Félag íslenskra
bókaútgefenda hefur unnið upp úr
gögnum Hagstofunnar.
Afnáms virðisaukaskatts beðið
Mikið hefur verið fjallað um af-
nám virðisaukaskatts af bókum og
kveðst Egill vona að það hjálpi til
við að snúa þessari þróun. „Vonar-
glætan er kannski ekki síst sú að
stjórnvöld hafa lofað afnámi virð-
isaukaskatts af bókum um næst-
komandi áramót. Ég er þeirrar
skoðunar að það geti orðið sú við-
spyrna sem greinin þarf á að
halda. Auðvitað leysir afnám virð-
isaukaskatts eitt og sér ekki vand-
ann en það gæti orðið eitt stærsta
skrefið í þá átt. Ég tel hins vegar
að fleiri skref muni þurfa að stíga
til þess að snúa þessari vondu þró-
un við.“
Binda vonir við nýja kynslóð
Hann segist þó binda vonir við
að bjartari tímar renni upp, ekki
síst með nýjum kynslóðum. „Það er
þó ákaflega jákvætt fyrir okkur
sem störfum að íslenskri bókaút-
gáfu að sjá að barna- og unglinga-
bækur hafa átt góðu gengi að
fagna á undanförnum misserum. Í
því felst stærsta og mesta sókn-
arfæri bókaútgáfunnar, að fylgja
því eftir. Þannig sjáum við suma
barna- og unglingabókahöfunda
selja bækur sínar í bílförmum á ári
hverju. Maður er óneitanlega
bjartsýnni á framhaldið þegar
unga kynslóðin virðist vera, ef eitt-
hvað er, að taka vel við sér í lestri.
Það lofar góðu.“
Samdráttur nemur 36% á áratug
Áframhaldandi samdráttur í bóksölu Velta bókaútgáfu hefur dregist saman um 36% á liðnum ára-
tug 5% samdráttur í fyrra og þróunin heldur áfram í ár Binda vonir við nýjar kynslóðir lesenda
Morgunblaðið/Hari
Bóksala Velta bókaútgefenda hefur dregist verulega saman síðasta áratug.
Egill Örn
Jóhannsson
Verð á seldri röð í talnagetrauninnni
Vikinglotto, eða Víkingalottó, gæti
hækkað úr 90 krónum í 100 krónur
um miðjan september ef drög að
breytingu á reglugerð fyrir talnaget-
raunir öðlast gildi en drögin voru
lögð fram fyrir helgi. Er hækkunin
lögð til vegna þess að gengi íslensku
krónunnar gagnvart evru hefur
veikst.
„Við lækkuðum síðastliðinn vetur
úr 100 krónum í 90 og nú hefur geng-
ið veikst og þess vegna höfum við
óskað eftir því að fá að hækka röðina
um tíu krónur um miðjan septem-
ber,“ segir Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri Íslenskrar get-
spár, í samtali við Morgunblaðið.
Ísland og Litháen eru þau lönd
sem eru jafnan með ódýrustu röðina
af þeim löndum sem taka þátt í Vik-
inglotto-samstarfinu. „Flestir eru
með röðina á bilinu 103-110 krónur
en við viljum ekki fara yfir 100 krón-
ur,“ segir Stefán um verð á seldri röð
í Vikinglotto hjá öðrum þjóðum. „Nú
ef gengið styrkist á nýjan leik þá ein-
faldlega lækkum við aftur. Við höf-
um sett okkur það markmið að vera
sem ódýrastir,“ segir Stefán.
Lottóröðin
hækkar
Afgerandi ákvarðanir verða ekki
teknar hér á landi um lögmæti ill-
gresiseyða sem innihalda glýfosfat
fyrr en niðurstöður viðeigandi stofn-
ana í Evrópu liggja fyrir um svokall-
að Roundup-mál. Þetta segir Kristín
Linda Árnadóttir, forstjóri Um-
hverfisstofnunar, í samtali við mbl.is.
Monsanto, stærsti framleiðandi
efna til landbúnaðar í Bandaríkjun-
um, hefur verið dæmdur til að greiða
manni rúma 30 milljarða króna í
skaðabætur vegna plöntueyðisins
Roundup sem innihélt efnið. Maður-
inn er dauðvona vegna krabbameins,
en hann heldur því fram að efnið sé
krabbameinsvaldandi.
Á síðasta ári leyfði Evrópusam-
bandið notkun efnisins innan sam-
bandsins næstu fimm árin.
Umhverfisstofnun hvetur fólk líkt
og áður til að draga úr eða hætta
notkun illgresiseyðis að nauðsynja-
lausu.
Ákvörðun
ekki tekin
á Íslandi
Fylgja Evrópu
Ferðafólk greiðir fyrir aðgang að salerni í Hörpu og
starfsmaður sem rukkar stendur sposkur hjá. Slíkt er
einungis gert yfir sumartímann svo bráðlega mun
gjaldtakan taka enda. Tilgangur gjaldtökunnar er að
mæta kostnaði við að taka á móti miklum fjölda ferða-
fólks sem kemur í Hörpu á sumrin.
Morgunblaðið/Hari
Gjaldtöku lýkur bráðlega