Morgunblaðið - 13.08.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Svampþvottastöð
Afkastamikil sjálfvirk
þvottastöð sem getur þvegið
allt að 50 bíla á klukkustund.
Opið virka daga kl. 8 -19
helgar kl. 10 – 18.
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Mig langaði alltaf að prófaeitthvað nýtt og krefj-andi. Ég hef lengi haftáhuga á fatahönnun og
langaði að prófa að fara utan til þess
að læra. Að mínu mati er London
besti staðurinn fyrir slíkt,“ segir
Guðbjörg Þóra
Stefánsdóttir,
23ja ára gamall
Akureyringur.
Hún gekk í Verk-
menntaskólann á
Akureyrar en þar
var hún á hönn-
unar- og text-
ílbraut. Hún
brautskráðist frá
VMA vorið 2014
og þaðan lá leið
hennar til London þar sem hún
stundar nú nám í fatahönnun í Cent-
ral Saint Martins, þekktum breskum
hönnunarskóla.
Innsýn í hönnunarheim
Guðbjörg Þóra kann ákaflega
vel við sig í Bretlandi, og það leið
ekki á löngu þangað til að henni var
boðið að koma í starfsnám hjá fata-
hönnunarfyrirtækinu Richard Nicoll.
„Ég fékk boð um að koma í starfs-
nám hjá Richard Nicoll í þrjá mán-
uði, það var alveg rosalega góð
reynsla. Mér fannst frábært að fá
innsýn í hönnunarheiminn áður en ég
byrjaði í háskóla.
Eftir að hafa búið í London í sex
mánuði hóf Guðbjörg Þóra svokallað
fornám sem er einskonar undirbún-
ingur fyrir B.A. nám í fatahönnun.
„Fatahönnun hefur átt hug
minn lengi. Þetta er bæði ótrúlega
krefjandi og skemmtileg nám, og það
er endalaust hægt að læra nýjar hlið-
ar á þessu. Námið krefst mikillar
hörku og þrjósku, en er á sama tíma
mjög gefandi og fjölbreytt,“ segir
Guðbjörg Þóra sem líkar vel við skól-
ann.
„Ég reyni að vakna snemma, þó
að það takist nú ekki alltaf. Á virkum
dögum er ég yfirleitt komin í skólann
um níuleytið. Kennararnir koma ekki
fyrr en um tíu, mér finnst gott að
vera aðeins á undan þeim, fá mér
kaffi og slappa aðeins af áður en dag-
urinn hefst. Þetta er frekar sjálfstætt
nám, ég hitti kennarana yfirleitt bara
einu sinni í viku og hina dagana er ég
að fara á mínum hraða og vinna eins
og vel og ég get. Ég er í fatahönnun
með áherslu á prent og eyði því mikl-
um tíma í að þrykkja og þróa textíl og
digital prent. Helst myndi ég vilja
geta verið á fimm stöðum í einu.“
Mikil mengun
Aðspurð hver stefnan til fram-
tíðar sé þá stendur ekki á svörum,
hjá Guðbjörgu Þóru. „Á þessu ári fer
ég í starfsnám og byrja í Mílanó á
Ítalíu í september. Ég er ekki viss
um hvort ég fer beint í mastersnám
eftir útskrift eða strax að vinna. Ég
ætla að sjá hvernig mér líkar starfs-
námið og eftir það mun ég vonandi
hafa töluvert betri sýn á það hvað ég
vil gera í framtíðinni og hvar ég vil
búa. Ég vil geta unnið í fyrirtæki sem
hugsar til framtíðar, og er einnig
annt um umhverfið,“ segir Guðbjörg
Þóra.
„Mér finnst gríðarlega mik-
ilvægt að tískubransinn, og neyt-
endur allir, hugsi um hvaðan fötin
koma og að fatnaður sé siðlega fram-
leiddur. Ég tel það vera mjög mik-
ilvægt að ungir fatahönnuðir byrji
snemma á því að hugsa um umhverf-
isvænar lausnir og reyni sitt besta til
þess að koma í veg fyrir þá gríð-
arlegu mengun sem tískubransinn
hefur nú þegar valdið.“
Fatahönnun framtíðar
Tískubransinn er spennandi og London er besti staðurinn fyrir nám í þeirri list.
Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir starfar hjá Richard Nicoll og þar hefur henni gefist
kostur á að kynnast ýmsu spennandi og vinna við áhugaverð efni.
Hönnun Þrykktur jakki sem er höfundarverk Guðbjargar Þóru.
Ferðafélag Íslands heldur úti nokkrum
fjalla- og hreyfihópum þar sem inn-
takið er reglulegar fjallgöngur, heilsu-
bót og góður félagsskapur. Nú er hægt
að skrá sig í verkefni sem bryddað
verður upp á nú á haustdögum. Má þar
nefna Alla leið, verkefni sem er öllum
opið, svo sem þeim sem hafa verið
með í fyrri fjallaverkefnum FÍ. Einnig
fólki sem vill hreyfa sig, stunda útivist
og kynnast skemmtilegu fólki.
Haustið í verkefninu Alla leið sam-
anstendur af nítján fjallgöngum, sjö
kvöldgöngum á mánudögum og átta
dagsferðum um helgar. Að auki eru
þrekæfingar alla þriðjudaga kl. 17.45 í
Öskjuhlíð eða í Himnastiganum í
Kópavogi. Verkefnið, sem Hjalti
Björnsson hefur umsjón með, hefst
með kynningu í höfuðstöðvum FÍ í
Mörkinni 6 í Reykjavík 22. ágúst kl. 20
en eftir það taka við vikulegar ferðir.
Úlfarsfell á fimmtudögum
Þann 30. ágúst er verkefnið Næsta
skrefið kynnt. Þar eru í pakka fjall-
göngur um helgar allt haustið auk
þess sem Úlfarsfellið er tekið á hverj-
um fimmtudegi. Alls eru þetta um 40
ferðir og er verkefni þetta sjálfstætt
framhald af Fyrsta skrefinu. Umsjón-
armenn eru Reynir Traustason og
Ólafur Sveinsson og göngurnar við
hæfi flestra. - Fyrsta fimmtudags-
gangan á Úlfarsfell er 6. september og
svo vikulega út árið. Helgargöngurnar
eru um ýmsa áhugaverða staði, svo
sem á Helgafell við Hafnarfjörð, í
Þórsmörk, um Sveifluháls, á Heklu,
Vífilsfell og Lambafell í Þrengslum.
Alla leið í alls nítján fjallgöngum
Fjallaverkefni eru að hefjast
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Úlfarsfell Upplagt er að fara á fjöll, gangandi eða þá á reiðhjóli.
Ég fór í sjósund í síðustu viku.Við vorum þrjú sem fórumsaman í Nauthólsvíkina og
tókum sundsprett. Höfðum ekki far-
ið lengi í sjóinn og það tók smá tíma
að koma sér í gírinn. Hita sig upp
líkamlega og andlega. En síðan var
þetta bara hressandi enda sjórinn
tæplega 12 gráða heitur sem þykir
gott á Íslandi. Aðstaðan fyrir sjó-
sund í Nauthólsvík er frábær, bún-
ingsklefar, heitur pottur og gufab-
að. Og vinalegt afgreiðslufólk.
Ég er með sérstaka tengingu við
Nauthólsvík eftir að við í Kettle-
bells Iceland vorum, fyrir nokkrum
árum, með daglegar styrktaræf-
ingar þar í vel á annað ár. Notuðum
ketilbjöllur, kaðla og ýmis önnur tól
og tæki til að þjálfa hóp af skemmti-
legu fólki. Við fengum góðan vin
okkar til að smíða apastiga, klif-
urgrind sem við settum upp á gras-
bala við hliðina á ströndinni. Við
notuðum hann fyrir okkar æfingar
og svo gátu gestir og gangandi nýtt
sér hann þar fyrir utan.
Í síðustu viku kíkti ég á staðinn
þar sem við höfðum verið með apa-
stigann. Þar var ekkert nema ill-
gresi og gamall trjábútur sem
gægðist upp úr því. Mér fannst það
synd. Við höfðum á sínum tíma þeg-
ar við hættum með æfingarnar í
Nauthólsvík boðið staðarhöldurum
að halda stiganum, en þeir höfðu
ekki áhuga á því þannig að við flutt-
um hann með okkur upp í Mosfells-
sveit þar sem hann er aldeilis vel
nýttur. En ég hefði samt viljað hafa
hann áfram í Nauthólsvíkinni. Hann
var hreyfihvetjandi fyrir fólk á öll-
um aldri og mikið notaður af þeim
sem áttu leið hjá.
Málið er nefnilega að fólk vill
hreyfa sig, æfa sig og leika sér en
stundum þarf að hvetja það til dáða.
Til dæmis með því að stilla upp apa-
stigum, klifurgrindum og annars
konar æfinga- og hreyfitækjum hér
og þar um borgir og bæi. Sumar
borgir eru mjög framarlega í þessu.
Í Moskvu, til að nefna eina, er til
þannig mikið af stærri og smærri
almenningsgörðum og í þeim ein-
hvers konar útiæfingatæki. Þessi
tæki þurfa hvorki að vera flókin né
dýr.
Nauthólsvíkin er upplagður stað-
ur fyrir útiæfingatæki. Það eru
reyndar þrjú tæki uppi á grasflöt-
inni, en ég myndi vilja sjá miklu
fleiri og fjölbreyttari. Útiæfinga-
garð hreinlega sem hlauparar, hjól-
reiðamenn og aðrir útivistarunn-
endur gætu nýtt sér til þess að
styrkja sig og efla.
Njótum ferðalagsins!
Hressandi sjósund
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi sem heldur úti bloggsíð-
unni njottuferdalagsins.is
Morgunblaðið/Eggert
Njóttu ferðalagsins!
Guðjón Svansson
guðjon@njottuferdalagsins.is
Guðbjörg Þóra
Stefánsdóttir