Morgunblaðið - 13.08.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018 21
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opið hús, t.d. spil, pútt, boccia kl. 9-12. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Félagsvist með stjórnanda og vinningum kl. 13. Kaffisala
kl. 15-15.54. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá 14.30-
15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst. Úti
boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á Qigong á
Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega vel-
komin. Vitatorg sími: 411-9450.
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá kl. 14-15.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi
kl. 13.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, ganga kl. 10, handavinnu-
hornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir vel-
komnir óháð aldri, nánari upplýsingar í síma 411-2790
Korpúlfar Gönguhópar Korpúlfa starfandi í allt sumar, hressir, bætir,
kætir allir velkomnir kl. 10 alla mánudagsmorgna og miðvikudags-
morgna lagt af stað frá Borgum, með gleði í hjarta.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, gönguhópurinn kl. 14, bíó á 2. hæð kl. 15.30. Upplýsingar
í s.4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum klukkan kl. 10.30. Leikfimi í
salnum Skólabraut klukkan kl. 13.30. Vatnsleikfimi Sundlaug Seltj. kl.
18.30. Ath. miðvikudaginn 15. ágúst kl. 13.20 ætlum við á gæðastund
í Listasafni Íslands sem er í tilefni af 100 ára fullveldis afmæli Íslands.
Leiðsögn. Kaffi og bakkelsi á eftir. Skráningarblöð á Skólabraut og
Eiðismýri. Strætó og einkabílar. Förum frá Skólabraut.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 -15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær, heitir pottar
og jarðgerðarílát
Rotþrær – heildarlausnir með
leiðbeiningum um frágang.
Ódýrir heitir pottar – leiðbein-
ingar um frágang fylgjar.
Mjög vönduð jarðgerðarílát til
moltugerðar.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Ýmislegt
Bátar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
✝ Ragnheiður(Ragna) Þórey
Frímannsdóttir
fæddist 13. októ-
ber 1927 á Akra-
nesi og lést 18.
maí 2017. For-
eldrar hennar
voru Málfríður
Björnsdóttir og
Frímann Jónasson.
Systkini hennar
eru þau Birna
Sesselja, f. 4. janúar 1931 og
Jónas, fæddur 30. nóvember
1934. Ragna ólst upp á Akra-
nesi og Strönd á Rang-
árvöllum, lauk gagnfræðaprófi
á Ísafirði 1945 og hjúkr-
unarnámi 1952.
Ove Krebs fæddist þann 20.
maí 1922 á Vasebæksgård við
Køge í Danmörku og lést 25.
janúar 2018. Foreldrar hans
Ragna og Ove héldu bæði
til Bandaríkjanna til náms
og starfa þar sem leiðir
þeirra lágu saman. Þau
gengu í hjónaband í desem-
ber 1955 og bjuggu lengst
af í Fíladelfíuborg en síð-
ustu árin í Lancaster í
Pennsylvaniu. Þau eign-
uðust soninn Carl Frimann
(f. 27. ágúst 1959) sem er
arkitekt í New York borg
og dótturina Lisu Christine
(f. 29.12.1961), athafnakonu
í Homer í Alaska. Hún er gift
Mark Munro og eiga þau tvö
börn, Thorey Krebs Munro og
Frederik (Fritz) Stevenson
Munro.
Minningarhöfn um þau
hjónin Rögnu Frímannsdóttur
og Ove Krebs verður í Foss-
vogskapellu í dag, 13. ágúst
2018, klukkan 12.
voru Gerda Valentiner Krebs
og Carl I. Krebs læknir. Hálf-
systkini hans eru Axel Krebs í
Holte og Merete Stubbe-
Teglbjærg í Risskov í Dan-
mörku. Ove lauk gagnfræða-
prófi 1938 og lærði fyrst til
vélamanns en sneri sér svo að
skipaverkfræði og síðar vél-
tæknifræði og lauk því námi
1950.
Ragnheiður Þórey Frímanns-
dóttir eða Ragna eins og hún
var oftast kölluð fæddist á
Akranesi, fyrsta barn Málfríðar
Björnsdóttur frá Innstavogi við
Akranes og Frímanns Jónas-
sonar frá Fremrikotum í
Skagafirði en þau höfðu kynnst
í Kennaraskóla Íslands og bæði
lokið prófi þaðan. Þeim hjónum
fæddust síðar tvö börn í viðbót,
Birna Sesselja og Jónas. Árið
1933 héldu þau hjónin til starfa
við Strandaskóla í Rangárvalla-
sýslu og þar sleit Ragna barns-
skónum við gott atlæti. Hún
fékk snemma mikið dálæti á
teikningu og lestri og gekk
mjög vel í námi. Fimmtán ára
fór Ragna vestur á Ísafjörð til
föðursystur sinnar og nöfnu til
náms við Gagnfræðaskóla Ísa-
fjarðar og útskrifaðist þaðan
árið 1945.
Að því búnu hóf Ragna nám
við Menntaskólann í Reykjavík
en náði ekki að ljúka stúdents-
prófi vegna veikinda. Hún hafði
á æskuárum glímt við þráláta
sjúkdóma og lungnasýkingar og
þurfti að vera rúmliggjandi
löngum stundum. Þetta var fyr-
ir tíma sýklalyfja og meðferð-
arúrræði voru bæði fá og ófull-
komin. Ári eftir að seinna
heimsstríði lauk var Ragna svo
send til London í erfiða skurð-
aðgerð þar sem fjarlægja átti
hluta af öðru lunganu. Hún hélt
til Englands ein síns liðs og
dvaldi þar í marga mánuði hjá
íslenskri fjölskyldu til þess að
jafna sig eftir vel heppnaða að-
gerð áður en haldið var heim á
ný. – Jónas minnist þess enn
þegar hringt var á Strönd frá
símstöðinni á Hvolsvelli og lesið
upp skeyti frá London með
skilaboðunum: „Operation
completed successfully.“
Þessi lífsreynsla hefur líklega
mótað framtíðardrauma Rögnu
því hún einsetti sér að verða
hjúkrunarfræðingur. Hún lauk
námi við Hjúkrunarskóla Ís-
lands árið 1952 og hóf svo störf
á Landspítalanum við Hring-
braut. Árið 1954 bauðst henni
að taka þátt í áætlun á vegum
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins um þjálfun erlendra hjúkr-
unarfræðinga á bandarískum
sjúkrahúsum. Ragna vann þar á
sjúkrahúsum í Denver, Boston
og Fíladelfíu.
Ove Krebs fæddist á Vase-
bæksgård við Køge í Dan-
mörku, á heimili móðurafa síns.
Foreldrar hans voru þau Gerda
Valentiner Krebs og Carl I.
Krebs, sem lokið hafði lækn-
isprófi en hafði áður verið und-
irlautinant í Lífverði Danmerk-
urkonungs. Dr. Carl I. Krebs
starfaði sem læknir hjá Rauða
krossinum og hafði þá nýverið
snúið heim eftir sex ára þjón-
ustu í Rússlandi og Mongólíu í
þágu stríðsfanga og við hjálp-
arstörf í hungursneyð. Tveimur
árum síðar yfirgáfu Ove og
móðir hans Danmörku og héldu
til Mongólíu þar sem faðir hans
hafði sett á fót tilraunabúgarð.
Þar bjuggu þau í hálft annað ár
við mjög erfiðar aðstæður en þá
skildu foreldrar Ove og þau
mæðginin sneru aftur til Dan-
merkur. Ove hitti ekki föður
sinn á ný fyrr en um áratug síð-
ar.
Þegar móðir Ove giftist að
nýju, fluttu þau til Sorø þar
sem hann útskrifaðist sem
gagnfræðingur frá Sorø Privat
Mellem og Realskole árið 1938.
Árin 1938-43 bjó hann hjá afa
sínum og ömmu í Køge, hóf þar
nám sem vélamaður og tók þátt
í stofnun svifflugklúbbs en með
því var lagður grunnur að ævi-
löngum áhuga hans á flugi og
öllu sem því tengist.
Árið 1943 var Ove kallaður í
danska herinn. Þann 29. ágúst
1943 tók hann þátt í því að
sökkva flota danska sjóhersins
til að hindra að hann félli í
hendur Þjóðverjum og sat í
þýsku fangelsi fram í október
það ár. Hann hóf þá nám í
skipaverkfræði og starfaði með
dönsku andspyrnuhreyfingunni
til stríðsloka.
Árið 1947 hóf Ove nám við
Tækniháskólann í Kaupmanna-
höfn og lauk þar prófi í vél-
tæknifræði árið 1950. Að námi
loknu kom hann til starfa hjá
sænska fyrirtækinu SKF í
Kaupmannahöfn en ákvað svo
árið 1953 að halda til Banda-
ríkjanna og kanna hvaða at-
vinnumöguleikar væru þar í
boði.
Ragna og Ove kynntust fyrst
í Denver í Colorado-ríki árið
1954 þar sem hún vann við
hjúkrun á vegum bandarískrar
þjálfunaráætlunar. Hún hafnaði
þar bónorði hans og batt enda á
sambandið. Þannig vildi þó til
að þau höfðu bæði aðsetur í
borginni Fíladelfíu næsta ár og
þá gafst henni tækifæri til að
endurskoða fyrri ákvörðun.
Ragna og Ove voru gefin saman
í Kópavogi í desember 1955 en
bjuggu sér heimili í Fíladelfíu
þar sem Ove hélt áfram störf-
um fyrir SKF en Ragna vann
við Barnaspítalann í Fíladelfíu.
Fjórum árum síðar fæddist
þeim sonurinn Carl Frimann og
tveimur árum eftir það dóttirin
Lisa Christine.
Ragna og Ove héldu ætíð
góðum tengslum við ættingja
sína á Íslandi og í Danmörku og
heimsóttu bæði löndin reglu-
lega. Þau höfðu gaman af úti-
veru og nutu þess að ferðast,
hvort sem það var tjaldferðalag
á Íslandi, heimsóknir í náttúru-
þjóðgarða Bandaríkjanna og
Kanada, heimsóknir til Lisu í
Alaska eða siglingar á Chesa-
peake-flóa og Karíbahafi.
Ove kom árið 1955 til starfa
hjá rannsókna- og þróunardeild
SKF USA í Fíladelfíu og vann
þar uns hann fór á eftirlaun ár-
ið 1987. Þá stofnaði hann sitt
eigið fyrirtæki og vann við það
næstu 12 árin. Ragna sneri aft-
ur til starfa sem hjúkrunar-
fræðingur árið 1974 og vann um
6 ára skeið á American Oncolo-
gic Hospital þar sem hún tók
þátt í að móta starfsemi líkn-
ardeildar til aðstoðar dauðvona
sjúklingum og aðstandendum
þeirra.
Þau settust svo að í Lancas-
ter í Pennsylvania árið 2000 til
að njóta efri áranna. Árið 2008
heimsótti Ove æskuslóðir sínar
í Mongólíu en Ragna fór í sína í
síðustu ferð að heimsækja fjöl-
skylduna á Íslandi.
Ragnheiður Krebs lést 18.
maí 2017 af veikindum tengdum
Alzheimer-sjúkdómi en Ove
Krebs lést 25. janúar 2018 af
völdum hjartaáfalls. Systkini
Rögnu, þau Birna og Jónas, eru
bæði búsett á Íslandi og lifa
systur sína, auk þess sem hálf-
systkini Ove, Axel Krebs í
Holte í Danmörku og Merete
Stubbe-Teglbjærg í Risskov í
Danmörku, lifa bróður sinn.
Afkomendur Rögnu og Ove
eru Carl Frimann Krebs, arki-
tekt í New York borg og Lisa
Christine Krebs athafnakona í
Homer í Alaska ásamt þeim
Thorey Krebs Munro og Fre-
derik (Fritz) Stevenson Munro
sem Lisa á með eiginmanni sín-
um Mark Munro.
Carl F. Krebs,
Matthías Kristiansen.
Ragnheiður (Ragna) Þórey
Frímannsdóttir og Ove Krebs
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
EDDA ÖNFJÖRÐ MAGNÚSDÓTTIR,
Hólavangi 24, Hellu,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
miðvikudaginn 8. ágúst.
Hjalti Oddsson
Anna Sigríður Hjaltadóttir
Helga Oddný Hjalltadóttir Ingvi Reynir Berndsen
Oddur Smári, Davíð Steinn, Bríet, Hulda og Eiríkur