Morgunblaðið - 13.08.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Páll Bergþórsson veðurfræðingur er 95 ára í dag. Þegar blaða-maður hafði samband var hann nýkominn inn úr daglegagöngutúrnum, sem að þessu sinni tók 33 mínútur. Hann seg-
ist aldrei hafa verið hraustari en einmitt nú. Í dag heldur hann
uppteknum hætti við rútínuna og býst við að afkomendur komi í
heimsókn. Þeir skipta tugum.
Páll virðist ekkert eldast. Hann gerir morgunleikfimi á morgn-
ana í tíu mínútur, gengur í hálftíma á dag og borðar alltaf sömu
stöppu í hádegismat. „Mataræðið mitt er svolítið skrýtið. Aðal-
máltíðin er hádegismaturinn sem er einhver jarðargróður, kart-
öflur og rófur, og svo 100 g af þorski eða laxi,“ segir Páll. „Það
sem sannar kannski gildi matarins er að ég hef aldrei fengið leið á
honum öll þessi ár.“
Páll flutti veðurfréttir áratugum saman og var veðurstofustjóri
1989-1993. Hann er enn að og birtir daglega veðurspá á Fasbók-
inni, eins og hann segir: „Ég hef gert þetta í nokkur ár og aðallega
fyrir sjálfan mig. Ég spái tíu daga fram í tímann á meðan veð-
urstofan spáir bara í sjö. Það eru kannski merkilegheit í mér að
þykjast geta það,“ viðurkennir Páll og hlær við.
Hans merkasta framlag á sviði veðurfræðinnar segir hann hafa
verið á námsárum sínum, þegar hann þróaði tölvukerfi fyrir pró-
fessorinn sinn í Svíþjóð, kerfi sem er, þótt í breyttri mynd sé, enn
við lýði í dag. „Mitt merkasta verk var sem sagt fyrir 63 árum.“
Hann virðist þó hvergi nærri hættur. „Ég held þessu áfram á
meðan mér er leyft. Ég get ekki annað en verið þakklátur fyrir
gjafmildi forsjónarinnar.“
Páll var kvæntur Huldu Baldursdóttur. Börn þeirra eru þrjú,
barnabörnin níu og barnabarnabörnin ótalmörg.
Í morgunkaffi Feðgarnir í Breiðdal á Austfjörðum fyrr í sumar ásamt
Albert Eiríkssyni, eiginmanni Bergþórs söngvara, sonar Páls.
Þakklátur fyrir gjaf-
mildi forsjónarinnar
Páll Bergþórsson er 95 ára í dag
Þ
órey Eyþórsdóttir fædd-
ist Reykjavík 13.8. 1943
og ólst þar upp, fyrst við
Rauðarárstíginn til sjö
ára aldurs, síðan í
Kleppsholtinu og loks við Vest-
urgötu. Hún var auk þess í sveit á
Fossá á Barðaströnd í sex sumur.
Þórey lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1960,
prófi frá Fana Folkehojskole í Berg-
en 1962, prófi frá Verslunarháskól-
anum í Bergen 1963, prófi frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum í
Reykjavík 1965, prófi frá Kenn-
araskólanum, almennri deild og
handavinnudeild, 1969, lokaprófi í
talkennslu frá Kennaraháskólanum í
Bergen 1977 og embættisprófi í upp-
eldis- og sálfræðiráðgjöf frá Statens
spesiallærerhøgskole í Ósló 1989.
Síðar á ævinni lauk hún prófi í sál-
fræði frá Danmarks Pædagogiska
Universitet í Kaupmannahöfn.
Þórey var við störf hjá Lands-
virkjun 1963-65, kennari við Hús-
mæðraskólann að Staðarfelli í Dölum
1965-67, kennari við grunnskóla Gar-
nes í Noregi 1971-79 og var skóla-
stjóri við Þjálfunarskóla ríkisins á
Akureyri 1979-81.
Þórey sinnti ýmsum störfum við
talkennslu og uppeldisráðgjöf á Ak-
ureyri 1979-81 og 1984-93. Hún starf-
rækti eigin talmeinastofu á Akureyri
1987-93 og sinnti hlutastarfi við
Greiningarstöð norska ríkisins í Suð-
ur-Noregi 1992-93. Þá var hún gis-
tiprófessor og við rannsóknarstörf
við University of Madison, Wisconsin
í Bandaríkjunum, 1989.
Þórey Eyþórsdóttir, sálfræðingur og listakona – 75 ára
Fjölskyldan árið 1989 Þórey og Kristján með dætrunum þegar Þórey var við rannsóknarstörf í Bandaríkjunum.
Listræn, iðin og fjölhæf
Úti í náttúrunni Þórey og Kristján í afar dæmigerðu íslensku umhverfi.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
ota, Hyundai, Nissan,
, og fleiri gerðir bíla
ER BÍLLINN ÞINN
ÖRUGGUR
Í UMFERÐINNI?
Varahlutir í...
Trausti Breiðfjörð Magnússon fæddist á
Kúvíkum á Ströndum og ólst upp á Gjögri.
Hann kvæntist Huldu Jónsdóttur og hófu
þau búskap í Djúpavík, fluttu að Sauða-
nesvita og bjuggu þar til 1998 er þau
fluttu til Reykjavíkur.
Trausti hyggst fara til Djúpavíkur á næstu
dögum og fagna þessum merka áfanga.
Árnað heilla
100 ára
Fæðingardeild LSH í Reykja-
vík. Ernir Snær Haraldsson
fæddist sunnudaginn 3. sept-
ember 2017, kl. 18:30. Hann
var 3.970 g og 53 cm. langur.
Foreldrar hans eru Birna Pét-
ursdóttir og Haraldur Karls-
son,
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.