Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 69
MENNING 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Íslenska sönglagið er afmælisþema
Berjadaga í ár, en íslensk sönglög
hafa glætt hátíðina lífi allt frá því að
leikar hófust,“ segir Ólöf Sigur-
sveinsdóttir, sellóleikari, fram-
kvæmdastjóri og listrænn stjórn-
andi Berjadaga sem hefjast á
morgun og standa til sunnudags.
Þetta er í 20. sinn sem tónlistarhá-
tíðin Berjadagar er haldin í Ólafs-
firði í Fjallabyggð.
Innt eftir því hvort eitthvað ein-
kenni íslenska sönglagið bendir Ólöf
á að íslenska sönglagið sé nátengt
náttúrunni. „Skynjun á náttúrunni
endurspeglast sterkt í íslenskum
ljóðum, sem ratar oftar en ekki inn í
lagasmíðarnar. Þjóðsögurnar og
sögur af huldufólki rata líka inn í ís-
lensku sönglögin,“ segir Ólöf og tek-
ur fram að sum íslensk sönglög
mætti flokka sem söngaríur að formi
til. „Þó að Gígjan
eftir Sigfús
Einarsson sé skil-
greind sem söng-
lag minnir upp-
bygging lagsins á
kraftmikla aríu,“
segir Ólöf, sem
hlakkar til að
heyra Kristján
Jóhannsson tenór
flytja lagið við
undirleik Bjarna
Frímanns Bjarnasonar annað kvöld.
Og ekki síður að heyra tónleika
Hunds í óskilum á laugardag.
Verk eftir Bartók og Kreisler
Sem fyrr segir hefjast Berjadagar
í dag, en á upphafstónleikunum í
Ólafsfjarðarkirkju í kvöld kl. 20
koma fram fiðluleikararnir Páll
Palomares og Eva Panitch. „Eitt af
markmiðum hátíðarinnar er að
kynna ungt og efnilegt tónlistarfólk
hérlendis. Palli og Eva eru í þeim
flokki og sinna bæði leiðandi stöðum
hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands,“
segir Ólöf og rifjar upp að Páll og
Vera hafi leikið heillandi barokkverk
í Ríkisútvarpinu á aðfanga-
dagskvöld. „Þau endurtaka samleik-
inn í kvöld. Í þetta skiptið er það
margslungið tónmál Béla Bartók og
sjaldheyrð lög eftir Shostakovitsj.
sem þau leika ásamt Evu Þyri Hilm-
arsdóttir píanóleikara. Á tónleik-
unum hljómar hin stóra Chaconna
eftir Bach auk einleiksverka eftir
Fritz Kreisler og Manuel de Falla og
fleiri verka fyrir fiðlu og píanó.“
Miklir gimsteinar
Á morgun, föstudag, kl. 15.30
heimsækir listafólk Berjadaga
Dvalarheimilið Hornbrekku og gleð-
ur heimilisfólk með tónum, en allir
eru velkomnir á meðan húsrúm leyf-
ir. Annað kvöld, föstudag, kl. 20
verða hátíðartónleikar í Ólafsfjarð-
arkirkju þar sem Bjarni Frímann
kemur fram ásamt Kristjáni, Eyjólfi
Eyjólfssyni tenór, Veru Panitch
fiðluleikara og Ólöfu. „Kristján flyt-
ur meðal annars hina frægu aríu
„Vesti la giubba“ eftir Leoncavallo,“
segir Ólöf, sem sjálf flytur
Arpeggione-sónötuna eftir Schubert
við píanóundirleik Bjarna Frímanns.
„Eyjólfur syngur sjaldheyrð þjóðlög
úr ranni Haydn og Beethoven við
undirleik okkar Veru og Bjarna Frí-
manns,“ segir Ólöf og tekur fram að
einn af hápunktum kvöldsins verði
vafalaust þegar Bjarni Frímann
leikur einleik á slaghörpuna í Ólafs-
fjarðarkirkju.
„Það er ekki á hverjum degi sem
áheyrendum gefst tækifæri til að
heyra Bjarna Frímann í hlutverki
einleikara, en hann mun flytja eina
af Etýðum-Tableaux eftir
Rachmaninoff,“ segir Ólöf og tekur
fram að Bjarni Frímann hafi að-
stoðað sig við listræna stjórnun
Berjadaga bæði í ár og í fyrra.
Að hátíðartónleikum loknum
skemmta Edda Björk Jónsdóttir
sópransöngkona, Ave Kara Sillaots
harmóníkuleikari og Sigrún Val-
gerður Gestsdóttir gestum og gang-
andi á Kaffi Klöru frá kl. 22.15. „Á
laugardag leiðir Ólafsfirðingurinn
María Bjarney gesti inn í leyndar-
dóma hinnar töfrandi flóru lands-
ins,“ segir Ólöf, en lagt er af stað frá
Kaffi Klöru við Aðalgötu kl. 12.
„Þetta verður létt tveggja tíma
ganga upp grösugan Árdalinn eftir
kindagötu til að skoða berjalandið,
en á leiðinni leynast bæði sveppir og
fjallagrös,“ segir Ólöf og tekur fram
að gott sá að skrá þátttöku sína með
því að senda póst á netfangið: berja-
dagar.artfest@gmail.com. „Gangan
er hugsuð til að hrista saman tón-
listarflytjendur og tónleikagesti,“
segir Ólöf og bendir á að þegar heim
á Kleifar verði komið bíði gesta dýr-
indis kjötsúpa og ómótstæðilegir
ólafsfirskir ástarpungar.
Hljómsveitin Hundur í óskilum
fer sínum höndum um íslenska söng-
lagið í öllu sínu veldi á tónleikum í
Tjarnarborg á laugardag kl. 20.
Sveitina skipa Hjörleifur Hjartarson
og Eiríkur G. Stephensen. „Þeir eru
miklir gimsteinar og hafa gert
íslenskri menningu skil með eftir-
minnilegum hætti í tónlistarsýn-
ingum sínum.“
Hátíðinni lýkur á sunnudag með
berjamessu í Ólafsfjarðarkirkju kl.
11, þar sem Sigrún Valgerður Gests-
dóttir og Jón Þorsteinsson syngja
sönglög við píanóundirleik Sigur-
sveins Magnússonar, og berjadög-
urði á Kaffi Klöru kl. 10.30 þar sem
Marína Ósk Þórólfsdóttir og Mikael
Máni Ásmundsson djassa fyrir
morgunverðargesti.
Allar nánari upplýsingar eru á
vefnum: berjadagar-artfest.com.
Miðasala fer fram á tix.is og midi.is,
og við innganginn. Frítt er fyrir
börn og unglinga 18 ára og yngri.
Íslenska sönglagið afmælisþema
Berjadagar í Ólafsfirði haldnir í 20. sinn Markmið að kynna ungt og efnilegt tónlistarfólk
Boðið upp á hátíðartónleika, djass yfir morgunmatnum og göngu til að kynnast flóru landsins
Morgunblaðið/Eggert
Tilþrif Bjarni
Frímann Bjarna-
son og Kristján
Jóhannsson við
flygilinn. Þeir
koma fram á
hátíðartónleikum
annað kvöld.
Ólöf
Sigursveinsdóttir
Morgunblaðið/Ómar
Hundur í óskilum Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen.
ICQC 2018-20
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is