Morgunblaðið - 24.08.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 24.08.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íborgarstjórner sú staðakomin upp að kjörnir fulltrúar minnihlutans þurfa ekki aðeins að tak- ast á við kjörna fulltrúa meiri- hlutans, heldur einnig ókjörna embættismenn. Hingað til hef- ur verið litið svo á að ókjörnir embættismenn þjóni bæði meirihluta og minnihluta og standi utan við pólitískt karp. Í borgarstjórn er ástandið orðið þannig að engin leið er lengur að sjá mun á kjörnum og ókjörnum fulltrúum meirihlut- ans. Morgunblaðið leitaði álits sérfræðinga í opinberri stjórn- sýslu á þessu ástandi. Í þeim samtölum kom meðal annars fram að það væru „ákveðnar hefðir, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, að embættis- menn eru að starfa fyrir póli- tíska fulltrúa og eru þjónar þeirra. Það felst í því að vera embættismaður að gera það sem manni er sagt. Embættis- maður hefur bara ekki sama tjáningarfrelsi og pólitískt kjörinn fulltrúi eða almenn- ingur úti í bæ“. Þá kom fram að það væri „mjög sérstakt að það eigi sér stað opinberlega átök á milli stjórnsýslunnar og kjörinna fulltrúa. Maður hlýtur að álykta að þarna séu einhver undirliggjandi átök sem eru að koma upp á yfirborðið“. Hjá sérfræðingunum kom einnig fram að furðulegt væri að borgarstjóri hefði ekki brugðist við. „Það hefði verið hið eðlilega ferli, vegna þess að þetta á ekki að vera samtal á milli emb- ættismanns borgarinnar og minnihlutans. Borgarstjóri ber ábyrgð á öllum sínum embætt- ismönnum og þessi framgangs- máti fer gegn öllum hefðum í stjórnskipan borgarinnar,“ sagði sérfræðingurinn. Í gær tjáði Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri sig svo um málið við Morgunblaðið og vís- aði þá gagnrýni sérfræðing- anna á bug og taldi ekkert óeðlilegt við framgöngu emb- ættismannanna. Ekki voru viðbrögð oddvita Viðreisnar síður undarleg. Þór- dís Lóa Þórhallsdóttir sagðist leggja „mikla áherslu á góða stjórnsýslu, gegnsæi og grein- argóða upplýsingagjöf“. Bætti svo við: „Ég bind vonir við að borgarfulltrúar sem og emb- ættismenn nái jafnvægi í þessu landslagi sem við erum í.“ Hvorugt þessara svara bend- ir til að meirihlutinn hyggist laga það sem aflaga hefur farið í stjórnsýslunni í borginni. Borgarstjóri virðist þvert á móti staðráðinn í að halda áfram á sömu braut og oddviti Viðreisnar virðist ekkert vita í hvorn fótinn hún á að stíga en talar með sama almenna og innihaldslausa hættinum og hún hefur gert frá því að hún fjallaði fyrst um framboð sitt í frægu sjónvarpsviðtali. Borgarbúar, sem kusu borg- arfulltrúa minnihlutans, eiga skilið betri vinnubrögð og betri viðbrögð frá borgarfulltrúum meirihlutans. Borgarstjóri og odd- viti Viðreisnar svara gagnrýni út í hött} Bæta þarf vinnubrögðin hjá Reykjavíkurborg V ið erum í miðju góðæri og erfiðu ár- in eru að baki … það er í sjálfu sér ekki nema bjart fram undan,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjár- málaráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, við flokksfélaga sína á lands- fundi síðastliðið vor. En hvernig birtist þetta góðæri okkur eftir stjórnartíð Sjálfstæðisflokks í fjármálaráðuneyti undanfarin ár? Heilbrigðiskerfinu blæðir hægt og rólega út, þrátt fyrir fögur fyrirheit heilbrigðisráðherra vinstri grænna, Svandísar Svavarsdóttur. Þetta sumar höfum við orðið vitni að algjöru neyðar- ástandi í málefnum geðsjúkra, í málefnum fæð- andi kvenna, neyðarástandi hjá heilabiluðum og fjölskyldum þeirra og síðast en ekki síst lífs- hættulegu neyðarástandi í málefnum ungra fíkla sem hvergi fá skjól. Lengi hefur því verið kennt um að ein- hugur sé ekki meðal ráðamanna um það hvort auka eigi við einkarekstur í heilbrigðisgeiranum og að því láti þeir sem aðhyllast einkarekstur hið opinbera kerfi lamast hægt og rólega svo það sé sjálfhætt. En heilbrigðiskerfinu einu blæðir ekki út undir fjár- málastjórn Bjarna Benediktssonar heldur má sjá hættu- merki víðar. Við fáum fregnir af algjöru ófremdarástandi í löggæslumálum um allt land. Þremur lögreglumönnum er gert að vakta 60 þúsund manna svæði í Kópavogi og Breið- holti að nóttu til. Lögregluembættin eru undirmönnuð og er ábendingum þess efnis svarað af hálfu dómsmálaráðherra með því að útgjöld hafi aukist stórlega til mála- flokksins. Fyrir liggur svart á hvítu að útgjöld til löggæslu og mannafla hafi ekkert verið aukin heldur megi rekja umtalsverða aukningu til kaupa á þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna. Í fjármálaáætlun kom fram að ætlunin væri að verja samtals 14 ma króna til kaupa á þyrlunum góðu, það er jú ekki mönnun lögreglu. Áfram þurfa lögreglumenn að þola niðurskurð, ofálag, undirmönnun og þá öryggisleysi fyrir borgara sem og mikinn hægagang í vinnslu og rannsókn mála. Varla er ætlun Sjálfstæðisflokksins að einkavæða löggæsluna, er það? Samgöngumannvirki um allt land eru að sama skapi á slíkum stað að verulegrar innspýt- ingar er þörf til að minnka hættuástand á þjóðvegum og um leið og fjármálaráðherra boð- ar okkur góðæri og bjarta tíma lætur hann launþega landsins vita að lítið svigrúm sé til launahækkana. Þegar reka á heimili þarf hvort tveggja að borga reikn- ingana sem og gefa börnunum nauðsynlega fæðu og klæði. Sama á við um ríkisreksturinn. Í þeim efnum hefur fjár- málaráðherra og flokki hans mistekist hrapallega á und- anförnum árum því grunnstoðirnar molna í sjálfu góðærinu. Við þurfum að gera betur í komandi fjárlagafrumvarpi því þetta er ekki dæmi um góða fjármálastjórnun heldur þvert á móti sveltistefnu sem verður að stöðva. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Sér er nú hver snilldin Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Tekist var á um samgöngumálí skipulags- og samgöngu-ráði Reykjavíkur í fyrra-dag, en umhverfismat til- lögu að samgönguáætlun árin 2019-2033 var þar til kynningar, skv. fundargerð, en þar er að finna bók- anir þess efnis, bæði frá fulltrúum meiri- og minnihlutans í borgar- stjórn. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins, Baldur Borgþórsson, sakaði meiri- hlutann um að hafa gamaldags sýn í samgöngumálum, t.d. með að taka ekki inn í áætlunina sjálfkeyrandi og rafmagnsbíla, sem og aðra nýja tækni sem væri væntanleg næstu ár. „Lítil áhersla er lögð á uppbygg- ingu vegakerfis innan borgarinnar, hvort sem um er að ræða götur á ábyrgð ríkis eða borgar, og enginn sjáanlegur vilji til að leggjast á árar með ríkinu að bæta úr. Unnið er markvisst að því að útrýma einkabíln- um úr borgarskipulaginu og ekki er tekið tillit til tilmæla Vegagerð- arinnar um uppbyggingu vegakerfis borgarinnar í skýrslunni „Vegir á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Vega- gerðarinnar Höfuðborgarsvæðið 2040 – Sýn Vegagerðarinnar – Júní 2018.““ Í umræddri skýrslu Vega- gerðarinnar hafi verið lýst yfir mikl- um áhyggjum af því að ekki sé gert ráð fyrir lagningu Sundabrautar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Ey- þór Laxdal Arnalds, Marta Guðjóns- dóttir og Valgerður Sigurðardóttir, létu bóka að á síðustu átta árum hefði umferð í borginni þyngst og ferðatími lengst verulega. Meira væri um lausagang bifreiða vegna tafa, en bif- reiðar gætu mengað meira við þær aðstæður. Þá hefði hlutfall almenn- ingssamgangna haldist óbreytt, þrátt fyrir skýr markmið um tvöföldun þess á tíu árum. Milljörðum króna hefði verið varið af vegafé til að tryggja að svo yrði, en þrátt fyrir það hefði hlutfall almenningssamgangna ekkert aukist. „Það er því morgunljóst, af fram- ansögðu, að framkvæmd stefnu Reykjavíkurborgar hefur ekki gengið upp. Þrátt fyrir fögur fyrirheit og skýr mælanleg markmið hefur um- ferð versnað með tilheyrandi nei- kvæðum umhverfisáhrifum að ótöld- um vandamálum vegna tafatíma í umferð. Svifryksmengun er enn ítrekað yfir heilsufarsmörkum og dagsgildi köfnunarefnistvíildis geta verið mjög há. Mikilvægt er að samn- ingi um framkvæmdastopp, sem gerð- ur var milli borgarinnar og ríkisins ár- ið 2012 verði sagt upp, enda eru forsendur hans brostnar“. Hjólreiðar hafi aukist verulega Fulltrúi Pírata, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, fulltrúar Samfylking- arinnar, Kristín Soffía Jónsdóttir og Hjálmar Sveinsson og fulltrúi Við- reisnar, Gunnlaugur Bragi Björnsson, létu bóka að meirihluti Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar tæki undir um- sögn samgöngustjóra vegna umhverf- ismats samgönguáætlunar 2019-2033. „Rétt er að árétta að frá því mark- mið um breyttar ferðavenjur voru sett fram í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, hafa hjólreiðar aukist veru- lega, og telja í dag um 7% allra ferða. Farþegum í Strætó hefur einnig fjölg- að mikið þrátt fyrir að markmið um hlutfall ferða hafi ekki náðst.“ Jafn- framt bókuðu þau að til að sett mark- mið um fjölbreyttar ferðavenjur næð- ust, yrði að bæta aðstæður fyrir notendur almenningssamgangna, auk gangandi og hjólandi. Það væru hags- munir allra að draga úr bílaumferð í borginni, m.a. sem mikilvægum þætti í baráttunni við svifryk og aðra nei- kvæða umhverfisþætti. Fólksfjölgun og uppbygging hefði valdið aukningu tafatíma um 3,3% árdegis og 13,5% síðdegis. „Hafa gamaldags sýn í samgöngumálum“ Morgunblaðið/Hari Umferðarteppa Borgarfulltrúar meiri- og minnihlutans eru ekki sammála um hvernig komið verði í veg fyrir vaxandi tafir og mengun í umferðinni. Samgönguráð Reykjavíkur- borgar auglýsti í byrjun júlí umhverfismat á tillögu að samgönguáætlun 2019-2033 til kynningar, skv. lögum um umhverfismat áætlana, en það kemur fram í fundargerð af fundi umhverfis- og skipu- lagsráðs borgarinnar frá í fyrradag. Í samgönguáætlun sé mörk- uð stefna fyrir allar greinar samgangna næstu fimmtán ár, eða frá árinu 2019-2033. Með umhverfismatinu hafi verið skilgreind helstu áhrif og aðgerðir til að dregið verði úr neikvæðum umhverfisáhrif- um. Í kjölfar kynningar í borgar- ráði hafi umhverfis- og skipu- lagssviði, ásamt samgöngu- stjóra, verið falið að undirbúa umsögn um umhverfismatið. Einnig hafi verið lögð fram og kynnt umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, Samgöngur 20. ágúst 2018. Samgöngur til framtíðar DRAGA Á ÚR NEIKVÆÐUM UMHVERFISÁHRIFUM Ein af helstufregnum síð- asta árs úr fjármálaheiminum var gríðarlegur uppgangur rafmyntarinnar Bitcoin, en verðgildi hennar náði á tímabili að skjótast upp í um 18.000 dollara á hverja einingu. Þessi óvænti áhugi á fyrirbærinu hafði jafnframt þau áhrif að aðrar slíkar „rafmyntir“ náðu einn- ig nokkru flugi, þó að engin þeirra slægi Bitcoin við. Nú er öldin önnur. Í ný- legri úttekt í Financial Times var greint frá því að heildar- verðgildi rafmynta á markaði, að Bitcoin meðtöldu, hefði skroppið saman úr um 800 milljörðum Bandaríkjadala niður í um 200 milljarða. Hver eining af Bitcoin er nú „einungis“ metin á um 6-8.000 dollara, og aðrar myntir hafa einnig fallið skarpt. Blaðamenn Fin- ancial Times gengu svo langt með að kveða upp úr með það að „bólan“ sem skapast hefði í kringum rafmyntir væri í raun sprungin, þar sem öll teikn bentu til þess að spá- kaupmenn og aðrir í leit að skjótfengnum gróða væru nú farnir að leita á önnur mið. Þó að ef til vill sé of snemmt að slá slíku föstu er vissulega ástæða til að fara afar varlega í umgengni við „gjaldmiðla“ á borð við raf- myntir, sem ekki hafa nein augljós verðmæti á bak við sig og eru vart nýtilegir til þess að greiða fyrir verslun og viðskiptum. Fjárfestingar í slíkum fyrirbærum hljóta allt- af að vera verulega áhættu- samar. Rafmyntir hafa gef- ið mikið eftir á árinu}Er bólan á enda?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.