Morgunblaðið - 24.08.2018, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018 25
Lóðir
Til sölu sumarbústaðalönd
Í Áshildarmýri, í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi
75 km frá Reykjavík.
Stærð á lóðum 5.000 fm - 15.800 fm.
Rafmagn, heitt og kalt vatn.
Upplýsingar veitir Hlynur í síma 824 3040.
Sölusýning laugardag og sunnudag.
Heitt á könnunni.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar. Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-
16. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir inni- og útipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Bíó "Lífið er
núna" kl. 13. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
S. 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi
kl. 10-10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 14-15.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist
FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30,
og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl 13, að þessu sinni sýnum við Mamma
mia, kostar ekkert að horfa, allir velkomnir.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids kl. 13, bingó kl. 13.15 og eftirmiðdags-
kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, botsía kl.10.15, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdótt-
ur kl. 12.30. Zumba dansleikfimi kl. 13, allir velkomnir óháð aldri.
Haust hátíð Hæðargarðs verður fimmtudaginn 6. september, nánari
upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, opin lista-
smiðja kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bingó kl. 14,
ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, leikfimi í salnum
Skólabraut kl. 11, spilað í króknum kl. 13.30, brids í Eiðismýri kl. 13.30.
VÖFFLUKAFFI verður í Félagsheimili Seltjarnarness fimmtudaginn 30.
ágúst kl. 14.30, boðið verður uppá vöfflur og kaffi og farið verður yfir
dagskráliði félags- og tómstundastarfs eldri bæjarbúa fyrir næstu
mánuði. Skráning verður á náskeið. Allir velkomnir!
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23, Hljómsveit
hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær, heitir pottar
og jarðgerðarílát
Rotþrær – heildarlausnir með
leiðbeiningum um frágang.
Ódýrir heitir pottar – leiðbein-
ingar um frágang fylgjar.
Mjög vönduð jarðgerðarílát til
moltugerðar.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Smá- og raðauglýsingar
er hægt að vera án í leikskóla-
kennaraskorti.
Það er vegna fólks eins og
hennar sem hægt er að halda uppi
góðu leikskólastarfi, fólksins sem
velur þennan starfsvettvang og
öðlast mjög mikla þekkingu og
reynslu.
Björk veiktist skyndilega fyrir
tveimur árum og átti því miður
ekki afturkvæmt til starfa. Þegar
ég heyrði af andláti Bjarkar voru
barnabörn hjá mér sem höfðu ver-
ið hjá Björk í Nóaborg. Sá elsti,
tæplega 12 ára, sagði: „Ég man
eftir Björk, hún var mjög
skemmtileg.“ Þar var henni rétt
lýst. Björk var nefnilega mjög
skemmtileg. Enginn var betri í að
segja börnunum sögur og fór
Björk létt með að vera með stóran
hóp sem sat eins og límdur við
gólfið þegar hún fór á flug. Björk
kom fram við börnin af virðingu
og spjallaði við þau á jafnréttis-
grundvelli og það fundu börnin.
Hún tók líka að fullu þátt í leik
barnanna og það var ekki óal-
gengt að sjá hana með teygjur og
spennur í hárinu en hún var
gjarnan módel í hárgreiðsluleik.
Björk var draumastarfsmaður
hvers yfirmanns. Þau rúmu 20 ár
sem hún var í Nóaborg var hægt
að telja á fingrum annarrar hand-
ar þau skipti sem hún var of sein,
hún var sjaldan frá vegna vinnu,
var samviskusöm og hafði áhuga
og metnað fyrir því sem hún var
að gera.
Nóaborg tók þátt í nokkrum
evrópskum þróunarverkefnum og
Björk fór með á nokkra fundi. Ég
var svo heppin að ferðast með
henni og betri ferðafélagi er vand-
fundinn. Á leið heim úr einni ferð-
inni gistum við eina nótt í Amst-
erdam.
Við vorum þrjár og vorum sam-
an í herbergi. Þegar við komum í
herbergið var eitt stórt rúm og
dýna á gólfinu.
Við Björk ákváðum að deila
rúminu. Þegar við fórum í háttinn
kom í ljós að það var ein stór sæng
í rúminu. Við vorum þreyttar og
ákváðum að láta þetta duga og
skriðum undir sæng. Það hefur ef-
laust heyrst um ganga hótelsins
þegar við hlógum okkur í svefn.
Í námsferðum leikskólans var
Björk gjarnan herbergisfélagi
Eddu Kristinsdóttur en þær voru
ekki bara vinnufélagar heldur
góðar vinkonur. Þær voru í her-
bergi við hliðina á mér í einni ferð-
inni og voru búnar að biðja mig
um að banka hjá þeim þegar ég
færi í morgunmat. Þær komu til
dyra, löngu tilbúnar og ég tók eft-
ir því að það var búið að búa um
rúmið.
Ég spurði hvort það væri búið
að þrífa herbergið svona snemma
en var sagt að maður færi nú ekki
út á morgnana án þess að búa um.
Ótal minningar koma upp við
þessi skrif sem gott er að ylja sér
við. Björk kíkti inn í Nóaborg fyr-
ir sumarlokun og plönuð var
formleg kveðjuveisla fyrir hana
sem því miður verður ekki.
Það er hins vegar klárt að í
næstu starfsmannagleði verður
Björk í huga okkar og við munum
skála fyrir henni og þakka henni
fyrir ómetalega samveru í öll
þessi ár.
Við sem vorum svo heppin að
eiga Björk fyrir vinnufélaga send-
um fjölskyldu hennar okkar inni-
legustu samúðarkveðjur um leið
og við þökkum Björk fyrir að hafa
verið það sem hún var, skemmti-
leg.
Fyrir hönd starfsfólks Nóa-
borgar,
Anna Margrét Ólafsdóttir
leikskólastjóri.
Elsku besta mamma. Það er
svo innilega óraunverulegt að
vera í þeim sporum sem við erum
núna að skrifa minningargrein
um þig, kornunga mömmu okkar.
Það eru sterkar tilfinningar sem
fylgja svona tíma, frábærar minn-
ingar um allar gleðistundirnar allt
frá því við vorum börn og fylgt
hafa okkur í gegnum lífið. Það er
líka djúpt þakklæti sem fylgir því
að hugsa til baka. Þakklæti fyrir
að hafa átt mömmu sem var
heimavinnandi fyrstu átta og tíu
ár okkar systkinanna. Að koma
heim úr skóla á föstudögum og
finna ilminn af nýbökuðum sultu-
og súkkulaðikökum. Að búa við
þann lúxus að hafa hlýjan faðm til
að koma heim til, mömmu sem
alltaf nennti að spjalla við okkur
um heima og geima.
Til í ævintýri eða horfa á spólu
einstaka sinnum.
Við erum þakklát fyrir þig
elsku mamma, sem studdir okkur
í gegnum allt, súrt og sætt, fyrstu
ástarsorgina, fyrsta ástvinamiss-
inn, erfiðleika í vinskap eða skóla
– þú stóðst á bak við okkur eins og
klettur, varðir okkur þegar þess
þurfti en kenndir okkur um leið að
axla ábyrgð, sýna samkennd og
hafa réttlætiskennd. Gladdist
með okkur þegar vel gekk og
hvattir okkur áfram.
Ein af okkar skemmtilegustu
minningum er ævintýrasvaðilför í
Húsafell, líklegast 1982 eða svo.
Við systkinin, þú, amma, Magga
frænka og stelpurnar. Öllum
stappað og troðið í Lödu station-
bílaleigubíl og af stað. Við létum
ekki sprungið dekk eða smáskein-
ur stoppa okkur. Það var grillað,
tréhús byggt og gripið í spil. Svo
ótrúlega skemmtilegir dagar sem
enn ylja okkur.
Það er þyngra en tárum taki að
hugsa til þess að geta ekki hringt
á hverjum degi til að spjalla eða
kíkt í kaffi. Við reiknuðum alltaf
með meiri tíma, en ekki reyndist
það svo og við það brestur hjarta
okkar allra. Við munum tala við
þig með öðrum hætti, hugsa til
þín þegar Bjöggi kemur í útvarp-
ið eða þegar við horfum á góða og
hjartahlýja mynd eins og þú elsk-
aðir.
Ekkert nema mögulega tíminn
mun milda sorgina sem í brjósti
okkar býr. Móðurástin er einstök
og það er það besta sem við eig-
um til að halda í.
Elskum þig til eilífðar alltaf og
kveðjum með texta Vilhjálms Vil-
hjálmssonar, Söknuður:
Mér finnst ég varla heill né hálfur
maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur með blómunum.
Er rökkvar ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Þín einlæg
Hjalti og Brynhildur (Binna).
Ég kveð þig, elsku besta Björk,
með brosdögg niður kinnar.
Því engin voru endamörk,
ástar og gleði þinnar.
Þú lýstir upp öll herbergi,
allt húsið gleði fylltir.
Þinn yndishlátur fer hvergi,
með honum öll tár stilltir.
Ég man þig hlæja, ég man það vel.
Bros þitt vermdi hjörtu.
Ástarkveðju þér ég fel,
til þeirra heima björtu.
(Hulda Vigdísardóttir)
Þín
Hulda.
upp. Meitluð tilsvör Jóseps á Hjall-
andi og ljúfar stökur Ásgríms á
Brekkunni yljuðu manni þá um
stund. En nú er þessu gestaboði
lokið og ég þakka frænda sam-
fylgdina á liðnum árum. Hann var
orðinn ellimóður nokkuð enda ald-
urinn hár – vantaði fáa mánuði upp
á að árin yrðu hundrað. „Þetta er að
verða gott,“ var eitt hið síðasta sem
hann sagði við mig. Börnum hans
votta ég innilega samúð.
Gunnar Sveinn
Skarphéðinsson.
Sá ég samhljóðan
í sögu þinni
skörungsskapar
og skyldurækni,
skaps og stillingar,
styrks og blíðu,
vilja og varúðar,
vits og dáðar.
(Matthías Jochumson)
Með einlægri þökk fyrir allt og
allt, elsku frændi. Góða ferð í
Sumarlandið og berðu þeim kveðju
mína sem þar taka þér opnum örm-
um.
Þín
Ingibjörg Rósa
Auðunsdóttir (Inga).
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.