Morgunblaðið - 24.08.2018, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is
gítarleikari en ótrúlega athyglis-
sjúkur, þannig að ég lem eins fast og
ég get á trommurnar, og öll reynum
við að láta heyrast í Hjalta.
Hlátur.
Örn: Nema Hjalti, hann reynir að
fela sig og við að ýta honum framar.
Urður: Það er satt að við
ákváðum aldrei að vera ótrúlega
feminísk og hafa andkapitalískar
skoðanir. En við erum fimm ung-
menni sem höfum miklar skoðanir á
því sem er í gangi, og það var allt að
gerast þegar við vorum að semja
lögin okkar; #metoo-byltingin,
#höfumhátt, Panamaskjölin.
Örn: Sigmundur Davíð sagði af
sér næstum sama dag og við unnum
Músíktilraunir.
Katrín: Við erum öll þannig að við
segjum það sem við erum að hugsa,
og þegar þrjár ungar konur mæta á
æfingu eftir djamm síðustu helgi
eða samskipti við fullorðna karl-
menn eru þær hellings frústreraðar.
Það er fullt að þessu samfélagi.
Brynhildur: Svo erum við líka
filterslausar. Lagið „Kynsvelt“ er
til dæmis bara mjög nákvæm lýsing
á því hvernig er að vera graður sem
kvenmaður.
Urður: Karlar hafa lýst því í
hundrað ár og engin kona mátt það.
Brynhildur: Árið 2018 er ennþá
pólitískt þegar kona segir frá sínum
upplifunum.
Frábærir áhorfendur
Katrín: Í kvöld flytjum við lögin á
plötunni í heild sinni og þau hafa öll
heyrst áður.
Urður: Það getur verið að við
tökum tvö ný lög, fer eftir stemn-
ingu. Áhorfendur okkar eru reynd-
ar frábærir og það er alltaf mikil
stemning.
Katrín: Já, og sumir sem koma
syngja með textunum.
Hjalti: Ég var mjög hissa fyrst
þegar ég sá varir hreyfast.
Brynhildur: Við höfum líka fengið
geðveikt mikinn stuðning frá þeim.
Þegar ég var í rangri tóntegund
hrópaði einhver: Þú varst ekki fölsk!
Hlátur.
Urður: Ég er alltaf að búast við
að við höldum tónleika og enginn
mæti.
Hjalti: Já, það er stærsti óttinn.
Urður: En það gerist aldrei, það
er alltaf gaman.
Örn: Já, eiginlega erum við að
bíða eftir því að einhver komi og
spyrji: Megum við fá Músíktilrauna-
bikarinn til baka!
- Hvað er svo fram undan?
Urður: Sko, það sem er að gerast
er að í dag gefum við út plötuna á
geisladisk og á Spotify, og svo höld-
um við útgáfutónleika í kvöld. Í dag
erum við líka að starta Karolína-
fund-söfnun til að gefa plötuna út á
vínyl, sem er draumurinn okkar.
Síðan er ekkert planað.
Katrín: Jú, Airwaves!
Morgunblaðið/Eggert
Á æfingu Hljómsveitin Hórmónar undirbýr sig fyrir að leika nýju plötuna sína eins og hún leggur sig í kvöld.
Myndlistarmennirnir kunnu Theaster Gates og Ragnar
Kjartansson ræddu í gærkvöldi saman í Listasafni
Reykjavíkur, frammi fyrir fjölda áhugasamra áheyr-
enda. Gates er í hópi virtustu myndlistarmanna Banda-
ríkjanna og tengdist þetta opinbera samtal þeirra Ragn-
ars því að hann er í ár styrkþegi Nasher-skúlptúr-
miðstöðvarinnar í Bandaríkjunum. Yfirskrift samtalsins
var Gjörningur sem skúlptúr og ræddu þeir sérstaklega
um listsköpun sína í tengslum við gjörninga. Báðir eru
listamennirnir þekktir fyrir margbrotin verk þar sem
mörg listform blandast saman, ekki síst gjörningar sem
tímabundin inngrip í rými eða samfélag.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listsköpun rædd Ragnar Kjartansson og Theaster Gates ræddu saman í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi.
Ræddu um gjörninga sem skúlptúra
George Clooney var tekjuhæsti leik-
ari heims frá júní 2017 til júní 2018,
skv. úttekt tímaritsins Forbes, en
árstekjur hans fyrir skatt námu um
239 milljónum dala, jafnvirði tæpra
26 milljarða króna. Er það fyrst og
fremst að þakka sölu á Casamigos
Tequila, fyrirtæki sem Clooney
stofnaði með vini sínum Rande Ger-
ber og framleiðir tekíla í hæsta
gæðaflokki. Næstir á lista yfir tekju-
hæstu leikarana eru Dwayne John-
son með 124 milljónir dollara og Ro-
bert Downey Jr. með 81 milljón
dollara. Þá var Chris Hemsworth
með 64,5 milljónir dollara í árstekj-
ur, Jackie Chan með 45,5 og Will
Smith með 42 milljónir. Tveir Bol-
lywood-leikarar eru á lista yfir þá tíu
tekjuhæstu, Akshay Kumar og
Salman Khan. Þrír leikarar á lista
yfir þá tíu tekjuhæstu hafa leikið of-
urhetjur í Marvel-myndum, þ.e.
Downy Jr., Hemsworth og Chris
Evans.
Tíu launahæstu leikarar heims
voru samanlagt með 748,5 milljónir
dollara í árstekjur, jafnvirði um 81
milljarðs króna sem er um fjórfalt
hærri upphæð en samanlagðar
tekjur launahæstu leikkvenna
heims, 186 milljónir dollara. Scarlett
Johansson er leikkvenna tekjuhæst,
með árstekjur upp á 40,5 milljónir
dollara, um 4,4 milljarða króna fyrir
skatt. Næstar henni eru Angelina
Jolie með 28 milljónir dollara, Jenni-
fer Aniston með 19,5 milljónir,
Jennifer Lawrence með 18 milljónir
og Reese Witherspoon með 16,5.
Engar Bollywood-leikkonur á lista
yfir tíu tekjuhæstu leikkonur heims.
AFP
Tekjuhæstur George Clooney.
AFP
Tekjuhæst Scarlett Johansson.
Clooney og Johansson
með hæstu árstekjurnar