Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Deila um ummæli forsætisráðherra  Sagði að launaþróun kjararáðshópa væri sambærileg við aðra  Villandi orðalag, segir lögfræðingur ASÍ Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra svaraði í gær yfirlýsingu ASÍ vegna orða hennar í Kastljósi í fyrradag um að meðaltalslaunaþró- un þeirra sem heyrðu undir kjara- ráð yrði sambærileg við aðra hópa svo fremi sem þau væru fryst út árið. Segir Katrín að ummælin hafi verið í samræmi við niðurstöður skýrslu sem unnin var í samráði stjórnvalda og aðila vinnumarkað- arins og kom út í febrúar á þessu ári. Í skýrslunni segir orðrétt: „Ef ekki verður um frekari endurskoðanir að ræða á árinu 2018, þ.e. laun haldist óbreytt frá síðustu úrskurðum kjararáðs til ársloka 2018, yrði launaþróun kjararáðshópsins að meðaltali við þau mörk sem rammasamkomulag- ið setti og að framan hafa verið metin á bilinu 43-48%. Eins og fram kemur í skýrslunni er launaþróun innan hópsins mjög ólík. Til dæmis hafa héraðsdómarar fengið 35% hækkun en ráðherrar 64% hækkun á sama tímabili. Ef litið er til lengri tíma, t.d. starfs- tíma kjararáðs frá árinu 2006, blas- ir við önnur mynd en á því tímabili hafa laun þessara starfsgreina þróast með svipuðum hætti.“ Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, sat í hópnum og lagði til að ráðherrar, þingmenn, forseti Ís- lands, ráðuneytisstjórar og skrif- stofustjórar yrðu lækkaðir í laun- um. Þessi kostur væri líklegastur til að stuðla að sátt á vinnumark- aði. Gat fylgt minnihlutanum Magnús segir að orð Katrínar í Kastljósi hafi verið mjög villandi. „Það mátti skilja á Katrínu að þetta væri ekki svo stórt mál og að „ákveðið samræmi“ yrði komið á í árslok 2018. Það er einfaldlega rangt,“ segir hann. „Þetta orðalag var mjög villandi, sérstaklega vegna þess að reiðin snýr ekki síst að stjórnmálamönn- unum sjálfum. Hún þurfti ekki að fylgja niðurstöðu meirihlutans og gat fylgt minnihlutanum. Það er tekið fram í bókuninni sem við lét- um frá okkur að við teldum að það væri viðleitni til þess að stuðla að friði á vinnumarkaði. Hún greip ekki þann bolta,“ segir hann. „Hún getur ekki skotið sér á bak við það að laun hennar séu komin í takt við laun almennings í lok árs 2018. Það eru þrjú ár sem þurfa að líða í við- bót fram að því.“ Katrín Jakobsdóttir Magnús Norðdahl Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Við vorum að reyna að átta okkur á krafti og stærð skýstrókanna,“ sagði Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræð- ingur á Veðurstofu Íslands, sem heimsótti Norðurhjáleigu í gær ásamt veðurfræðingnum Guðrúnu Nínu Petersen. Þær ræddu við ábú- endur þar, sem urðu fyrir því óláni á föstudagað þrír skýstrókar gengu yfir býlið þeirra og skildu eftir sig talsverðar skemmdir, en einnig ræddu þær við nágranna þeirra, bændur á Þykkvabæjarklaustri, sem urðu vitni að atburðinum, og náðu m.a. mynd af einum ský- stróknum. Kristbjörg Hilmarsdóttir, bóndi á Kirkjubæjarklaustri, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að fyrri tveir strókarnir hefðu verið „ósýnilegir,“ en sá síðasti fór yfir vatn og var því hvítur að sjá af rakanum og sést greinilega á myndinni með fréttinni, en hinir tveir hefðu virst meira eins og „hillingar eða ókyrrð“ í loftinu. Elín Björk hafði enga bráða- birgðaniðurstöðu til reiðu en kvað þó allmikinn kraft þurfa til að feykja þakplötum af byggingum á þessu jafnan vindasama svæði. „Stóri pallbíllinn sem fór á hvolf ofan í skurðinn rann ekki þangað, hann lyftist upp,“ sagði Elín Björk, sem sagðist vonast til að hægt yrði að meta augnabliksvindhraðann út frá þessum upplýsingum ásamt dreifingu á brakinu sem þær könn- uðu einnig. Aðstæður sem þessar séu sjald- gæfar á Íslandi, stöku sinnum frétt- ist af svona súlum yfir vatni eða í heyi og gamlir annálar segi t.d. frá „síldarregni“ þar sem strókar hafi rifið upp fiskitorfur og flutt þær upp á land. Niðurstöðu vettvangskönn- unarinnar sé að vænta í vikulokin. Veðurfræðingar í vettvangskönnun  Heimsóttu bæinn Norðurhjáleigu í gær Ljósmynd/Kristbjörg Hilmarsdóttir Sjaldgæf sjón Skýstrókur gengur yfir bæinn Norðurhjáleigu. Verið er að gera við Safnahúsið við Hverfisgötu 15 að utan, en byggingin, sem stendur við hlið Þjóðleikhúss- ins, þykir með þeim fegurri í Reykjavík. Upphaflega var húsið byggt sem landsbóka- og þjóð- skjalasafn en fyrst þegar það var opnað árið 1909 var þar þjóðminja- og náttúrugripasafn. Í húsinu voru því um árabil undir einu þaki allir helstu dýrgripir íslensku þjóðarinnar. Það er nú hluti af Þjóðminjasafni Íslands. Safnahúsið fær andlitslyftingu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Áður voru þar Landsbókasafn, Þjóðskjalasafn og síðar Þjóðmenningarhús Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hugmyndir eru uppi í tveimur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð- inu, í Reykjavík og í Hafnarfirði, um að bólusetningar barna verði gerðar að skilyrði fyrir leikskólaplássum. Sjálfstæðismenn í Reykjavík eru samstiga um tillögu Hildar Björns- dóttur, borgarfulltrúa flokksins, í þessa veru, sem hún greindi frá í gær og mun leggja fyrir borgar- stjórn. Sagði hún margar Evrópu- þjóðir hafa brugðið á sama ráð. Virki sem hvati fyrir foreldra „Það verður spennandi að sjá hvernig aðrir flokkar taka í tillög- una,“ segir Hildur, sem kveðst hafa fengið góð viðbrögð frá fólki al- mennt. „Það eru auðvitað alltaf ein- hverjir sem eru á móti eins og gengur, en þeir eru mjög fáir í raun,“ segir hún. „Ég held að ástæða þess að óbólu- settum börnum er að fjölga sé ekki að þeim sem vilji ekki láta bólusetja börnin sín fari fjölgandi, heldur frekar að fólk til dæmis gleymi sér. Heilsugæslustöðvar hafa reynt að auka utanumhald, eftirfylgni og fræðslu en foreldrar hafa ekki tekið við sér samt sem áður. Það þarf meira til,“ segir hún. Spurð um framkvæmd hug- myndarinnar segist hún vona að út- færslan geti orðið rafræn og einföld í sniðum. Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði, kvaðst í gær telja rétt að skoða hvort bærinn gerði bólu- setningar að skilyrði við inntöku í leikskóla bæjarins. „Ég tel skynsam- legt að við skoðum að fara þessa leið. Þetta gæti líka virkað sem hvati. Í skýrslu sóttvarnalæknis segir að fólk sé ekki vísvitandi að sleppa þessum bólusetningum, heldur hafi þær frekar gleymst af einhverjum ástæðum,“ segir hann. „Ég vildi hefja umræðu um þetta. Mér finnst viðbrögðin hafa verið góð og hef bæði fengið skilaboð og sím- töl. Þetta á samt eftir að fá eðlilega umræðu í bæjarfélaginu,“ segir Ágúst Bjarni, en hann segir að- spurður að Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokkur séu jákvæðir fyrir því að ræða þessi mál. Borgarfulltrúar rökræddu Umræður spunnust undir þræði Hildar á Facebook í gær, en Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, gagnrýndi hugmyndina og spurði m.a. hvort Hildi fyndist ekki rétt að sóttvarnalæknir gæfi út til- mæli áður en hlaupið yrði af stað. Hann hefði sjálfur ekki lagt þessa hugmynd til. Hildur sagði sóttvarnalækni hafa komið fram í fjölmiðlum og lýst áhyggjum af fjölgun óbólusettra barna, útbreiðslu mislinga m.a. Hann hefði ekki lagt til útfærslur en ýmislegt mætti gera. Þessi hugmynd gæti tryggt að foreldrar sem gleymdu sér tryggðu börnum sínum almennar bólusetningar. Bólusetning barna verði að skilyrði  Bólusetning sem skilyrði inntöku á leikskóla til umræðu  Hafa fengið góð viðbrögð við hugmyndinni  Gæti virkað sem hvati til bólusetninga, segir bæjarfulltrúi  Framkvæmdin verði rafræn og einföld Morgunblaðið/Ómar Leikskólabörn Tveir kjörnir fulltrúar vilja ný skilyrði fyrir inntöku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.