Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 12
Björg í bú Berglind kemur alsæl í land með feng sinn, fulla poka af sölvum. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Sumir borða söl með harð-fiski, aðrir segja söl ogsmjör vera gott að borðasaman, og einnig eru söl og súkkulaði sérdeilis góð blanda. En ég borða söl aðallega sem nasl og öllum í fjölskyldunni finnst þau góð bara ein og sér. Ég ólst samt ekki upp við að borða söl eða tína söl, þó ég hafi stundað sölvatekju nokkur undanfarin ár. Þegar ég var að læra torfhleðslu hjá Hannesi Lárussyni sem er með Íslenska bæinn í Flóa- hreppi, þá kynntist ég þessu fyrst og bað um að fá að fara með honum í sölvatínslu. Ég fór í fyrsta sinn að tína söl með honum þar sem heitir Skipafjara, við bæinn Skipar sem er í nágrenni við Baugstaðavita rétt ut- an við Stokkseyri. Ég er reyndar ættuð þaðan, því amma mín bjó þar,“ segir Berglind Björgúlfsdóttir þar sem hún ásamt nokkrum vin- konum stikar rösklega í átt til hafs, þær mega engan tíma missa því brátt flæðir að. „Á morgun er stórstreymisfjara og þess vegna veljum við að fara núna, það eru ákjósanlegustu að- stæðurnar því þá er hægt að vaða lengra út í sjó þar sem meira er af sölvum.“ Valkyrjurnar kippa upp um sig kjólunum og vaða beint út til hafs og taka þegar til við að rífa upp söl í poka sína, en það er heldur betur sleipt og illfært, sést ekki til botns fyrir gróðri og mikið af steinum, stórum og smáum. Enda hrasa þær og renna til, en láta það ekkert á sig fá, halda ótrauðar áfram. Þetta eru engir aukvisar. „Þetta eru eins og sleipar þúfur og ekki gott að fóta sig, en hér áður fyrr var fólk með sín ráð við því, það fór í lopasokka utanyfir skóna til að forðast að renna og detta við sölva- tekju. Fólk var líka með prik eða staf til að styðja sig. Eitt sinn áður en ég fór að tína söl dreymdi mig ömmu mína þar sem hún sagði mér að taka með mér prik til að styðjast við í minni fjöruferð svo ég gæti fót- að mig betur. Hún var alltaf með smalaprik með sér þegar hún ung stúlka var látin passa kindurnar á Skipum sem fóru í fjörubeit. En fjörufé sem gæddi sér á hafgróðr- inum átti það til að fara sér að voða, verða eftir á skerjum og flúðum þeg- ar flæddi að. Þetta þurfti að vakta og passa, og einnig þurfti að passa að þær ætu ekki of mikið af fjöru- fóðri, því þá fóru þær að skjögra. Amma sagði að fjöruféð hefði stund- um átt það til að synda út til hafs og drukkna þegar flæddi að, ærnar gátu þannig orðið áttavilltar, svo amma þurfti að reka þær tímanlega í land áður en þær urðu ringlaðar. En svo gerðist það að skera þurfti niður allt féð á Skipum og þau voru félaus í nokkur ár, en þegar þau fengu nýjar kindur þá kunni það fé ekkert á fjöruna og sótti ekkert þangað. Lömbin þurfa greinilega að læra fjörubeitina af fullorðnu ánum og þannig viðhelst þetta milli kyn- slóða. Rétt eins og hjá okkur mann- fólkinu þá lærir fé af því sem fyrir því er haft,“ segir Berglind og tekur til við að syngja fyrir sel sem syndir í átt til hennar. Það er fagur sela- söngur sem hljómar með hafhljóð- unum líkt og frá öðrum heimi, og vekur forvitni selsins, því forvitnin er óttanum yfirsterkari og hana langaði að halda selnum sem lengst hjá sér. Almúgi á eftir landeigendum Berglind segir að hér áður fyrr hafi fólk verið miklu duglegra að nýta sölin en nú er. „Þá skipti máli að nýta það sem náttúran gaf og all- ir sem vettlingi gátu valdið tíndu söl til að bæta mannanna fæðu. Þá var sá háttur hafðu á að landeigendur höfðu forgang, þeir fóru fyrst út í sjó og tíndu söl að vild, en settu svo upp „Ég er svo þakklát fyrir hafið“ Nokkrar valkyrjur fóru saman að tína söl um helgina og óðu sumar upp á mið læri til að sækja gómsæti hafsins. Berglind Björgúlfsdóttir söng fyrir selinn sem kom til hennar þar sem hún bograði við sölvatínslu. Galvaskar Berglind og Guðrún fylla poka sína af gómsætum sjávargróðri. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018 Söl teljast til rauðþörunga. Þau vaxa vel eins og kartaflan þegar dimma tek- ur að nóttu. Ef fólk tínir 100 kíló af blautum sölum fást úr því 20 kíló af þurrum sölum. Sölin rýrna því um 80 prósent. Söl þarf ekki að skola og þau vaxa þar sem ferskvatn blandast í sjó. Þau skal þurrka við vægan hita, inni eða úti, í um 14 klukkustundir, síðan setja í poka og undir farg, til dæmis í tunnu, því þá verða þau mýkri. Gott er að leyfa lofti að leika um þau. Í grein Ingibjargar Sigfúsdóttur á vefsíðunni Heilsuhringurinn.is kemur eftirfarandi fram: Rannsóknir hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins sem gerðar voru á sölvum í janúar 1996 leiddu í ljós að söl innihalda mikið af næringarefnum, t.d. kalsíum, magnesíum, kalíum, sinki, járni og joði. Af sæþörungum hafa söl haft meiri þýðingu fyrir Íslendinga til manneldis en nokkur annar fjöru- gróður. Þau eru talin vaxa alls staðar við strendur Íslands, en þó virðist vera verulegur munur á hve mikið er af þeim eftir hinum ýmsu landshlutum. Sölva er fyrst getið í íslenskum heimildum um miðja 13. öld, en í Grágás á 12. öld. Þess er getið um miðja 14. öld að maður í Saurbæ í Gilsfirði hafi gef- ið brúði sinni á brúðkaupsdaginn hálfa sölvafjöru og var gjöfin metin til mik- ils fjár. Sagt er frá því að árið 1552 hafi Páll Hvítfeldt hirðstjóri gefið út til- skipun um skóla hér á landi, þar sem gert var ráð fyrir að piltar hafi söl til matar. Heimildir eru um að söl hafi verið notuð til manneldis hér á landi á 17., 18. og 19. öld og hafi verið á borðum sumra allt til 1950. Í heimild frá 18. öld er greint frá því að sumir eti söl með hvannarót og ól- seigum harðfiski. Fleiri heimildir segja að fyrrnefnt hafi verið notað í stað brauðs. Getið er, að dregið hafi úr sölvanotkun á Kjalarnesi á 18. öld vegna þess að á þeim tíma hafi verið lítið um sýru og hafi sölin þótt fara illa í maga ef drukkið væri vatn með þeim. Betra þótti að nota sýru. Það var trú al- mennings að sýrublanda og þó einkum mjólk væri nauðsynleg með sölvum og öðrum fjörujurtum, einkum ef þær voru etnar sem einmeti viðbitslausar. Hjá Páli í Arnardrangi í Landbroti voru söl skömmtuð einu sinni á dag og þá alltaf með harðmeti. Magnús Stephensen dómstjóri segir að sölin komi í stað brauðs og fisks. Söl sem notuð voru í grauta voru söxuð og var þá not- að jafnt af sölvum og mjöli, ýmist bankabyggi eða haframjöli. Gott er að borða söl eftir ofdrykkju og þau auka einnig frjósemi SÖL ERU BRÁÐHOLL OG VORU NÝTT SEM LÆKNINGAJURT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.