Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018 Niðurstaða í samkeppni um kórlag í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands var kynnt í gær í Listasafni Íslands og nefnist sig- urlagið „Landið mitt“ eftir Jóhann G. Jóhannsson en hann er bæði höf- undur ljóðs og lags. Í tilkynningu segir að lagið falli einkar vel að þeim skilyrðum sem komu fram í auglýst- um reglum samkeppninnar, þ.e. að það hæfi tilefninu og henti vel til söngs. Lagið er í fremur hefðbundn- um stíl og kallast þannig á við hefð ættjarðarlaga, er bjart og einlægt, en með áhugaverðri úrvinnslu í dekkri millikafla. Ljóðið er lofsöngur til Ís- lands og fangar vel sérstöðu landsins í öllum sínum fjölbreytileika og and- stæðum, en um leið er horft til fram- tíðar og í lokahendingunni rennur skáldið eða ljóðmælandinn saman við landið sjálft,“ segir í tilkynningunni. Jóhann hóf ungur píanónám hjá Carl Billich og stundaði síðar tónlist- arnám við Tónlistarskólann í Reykja- vík, Brandeis-háskólann í Boston og Uppsalaháskóla. Hann starfaði sem tónlistarstjóri hjá Leikfélagi Reykja- víkur í áratug og um langt árabil sem tónlistarstjóri Þjóðleikhússins. Hann hefur samið sönglög, kórverk, kamm- ertónlist og leikhústónlist af ýmsu tagi. Fjögur önnur lög þóttu einnig skara fram úr og ástæða þótti til að veita þeim sérstaka viðurkenningu. Það eru lögin „Bjargvættir“ eftir tón- skáldið Hjálmar H. Ragnarsson við ljóð Fríðu Ísberg, „Sumarnótt“ eftir Stefán Þorleifsson við ljóð Möggu S. Brynjólfsdóttir, „Vakna þú fold“ eftir Michael Jón Clarke við ljóð Sigurðar Ingólfssonar og „Þjóðvísa“ eftir Sig- urð Flosason við ljóð Aðalsteins Ás- bergs Sigurðssonar. Frumflutt 1. desember Afmælisnefnd aldarafmælis sjálf- stæðis og fullveldis Íslands, í sam- starfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, auglýsti í mars á þessu ári eftir til- lögum um nýtt kórlag í tilefni ald- arafmælis fullveldisins og var kallað eftir frumsömdu og óbirtu ljóði og lagi fyrir blandaðan kór og skyldi lagið hæfa tilefninu og henta vel til söngs, eins og segir í tilkynningu. Frestur til að skila tillögum var 20. júlí og bárust 60 tillögur. Dómnefnd skipuðu fulltrúar Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands sem fer með for- mennsku í dómnefndinni, Tónskálda- félags Íslands, Rithöfundasambands Íslands, Félags tónskálda og texta- höfunda, Félags íslenskra hljómlist- armanna og Ríkisútvarpsins en for- maður dómnefndar var Árni Heimir Ingólfsson, fulltrúi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. Sigurlagið verður frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og kórum á hátíðardagskrá í Hörpu 1. desember og verður hátíð- ardagskráin sýnd í beinni útsendingu á RÚV. 60 lög send inn Árni Heimir segir dómnefndina hafa litið svo á að verið væri að kalla eftir ættjarðarlagi og -ljóði fyrir 21. öldina sem speglaði bæði hefðina og samtímann og væri þess eðlis að það gæti sungið sig inn í hjörtu fólks. „Það komu 60 lög inn þannig að það var rosaleg þátttaka, miklu meiri en við bjuggumst við,“ segir Árni Heim- ir. Að fara í gegnum öll lög og ljóð hafi því verið heilmikil vinna en þó mjög ánægjuleg. „Standardinn var mjög hár og mjög ánægjulegt að þarna voru bæði metnaðarfull ljóð sem hafa ekki birst áður og svo lög og tónsmíðar við þau,“ segir Árni Heim- ir. Ljóðskáld og tónskáld hafi snúið bökum saman í þessu verkefni og fjölbreytnin áberandi, allt frá mjög einföldum lögum í hefðbundnum ætt- jarðarstíl yfir í meiri dægurtónlist og svo mjög metnaðarfullar og krefjandi tónsmíðar. Árni Heimir er spurður að því hvort valið hafi á endanum verið auð- velt. „Við fórum í nokkra hringi og sungum í gegnum töluverðan hluta af lögunum. Við byrjuðum á að kjósa þau lög sem okkur þóttu best og sungum okkur í gegnum þau lög sem voru efst í þeirri kosningu, til að finna hvernig þau lægju í söng. Við kom- umst að þessari niðurstöðu, það var eitt sem stóð nokkuð afgerandi upp úr, verðlaunalagið en síðan voru nokkur í viðbót sem við vorum mjög ánægð með en okkur þótti ekki alveg hæfa í þessu samhengi að væru sig- urlag. Okkur þótti þau samt svo áhugaverð og góð að við veitum þeim sérstaka viðurkenningu.“ helgisnaer@mbl.is Morgunblaðið/Valli Gleðistund Frá viðburðinum í Listasafni Íslands í gær þegar tilkynnt var hvaða lag og ljóð urðu fyrir valinu í samkeppni um kórlag. „Eitt sem stóð af- gerandi upp úr“  Úrslit samkeppni um fullveldislag Írski grínistinn Dylan Moran verður með uppistand í Háskólabíói 8. mars á næsta ári og hefst almenn miða- sala á það á fimmtudaginn, 6. sept- ember, klukkan 10 en forsala degi fyrr klukkan 10. Moran flytur nýja sýningu, Dr. Cosmos, og ætlar að koma við á um 50 stöðum í Bretlandi áður en hann heldur til annarra landa Evrópu. „Moran mun enn og aftur bjóða upp á sitt einstaka viðhorf til ástar, stjórnmála, eymdar og fáranleika daglega lífsins. Allt verður þetta framreitt af þeim skáldlega glæsi- brag sem hefur gert Dylan Moran að einum besta uppistandara heims,“ segir í tilkynn- ingu og að Moran hafi verið kall- aður Oscar Wilde grínsins. Moran kom fram á Reykjavík Comedy Festival grínhátíðinni í Hörpu fyrir tæp- um þremur árum. Auk þess að koma fram sem uppi- standari hefur hann leikið í kvik- myndum og sjónvarpsþáttum, m.a. gamanþáttunum Black Books og grínmyndunum Run, Fatboy, Run og Shaun of the Dead. Dylan Moran snýr aftur með Dr. Cosmos Dylan Moran Adrift 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 20.00 Kvíðakast Bíó Paradís 18.00, 22.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 22.00 Undir trénu 12 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 20.00 Hleyptu sól í hjartað 16 Bíó Paradís 18.00 Heima Heimildamynd um hljóm- sveitarferðalag Sigur Rósar um Ísland sumarið 2006. IMDb 8,6/10 Bíó Paradís 18.00 Alpha 12 Metacritic 63/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 17.30, 19.30, 20.00, 21.50, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.00 Crazy Rich Asians Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30, 22.10 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 The Happytime Murders 16 Laugarásbíó 18.00, 20.00, 22.00 Smárabíó 19.40, 22.10 Slender Man 16 Smárabíó 19.50, 22.10 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 21.40 Ant-Man and the Wasp 12 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 70/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Egilshöll 20.00 Mile 22 16 Laugarásbíó 22.15 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 22.00 Háskólabíó 20.30 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.30, 19.50 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30 Smárabíó 16.40, 17.10, 19.40 Háskólabíó 18.20, 21.10 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 The Spy Who Dumped Me 16 Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.25 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 18.30 Christopher Robin Christopher Robin hittir skyndilega gamlan vin sinn Bangsimon, og snýr með honum aftur í ævintýraheim bernskunnar. Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 17.20 Sambíóin Akureyri 17.15 Úlfhundurinn Frábær teiknimynd byggð á metsölubókinni White Fang efti Jack London. Ungur maður vingast við úlfhund og leitar að föður sínum sem er horfinn. Metacritic 61/100 IMDb 6,9/10 Smárabíó 15.10, 17.20 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 14.50 Draumur Smárabíó 15.20, 17.40 Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í neðansjávarrannsóknarstöð Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 17.30, 19.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.10 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 The Meg 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há- lendi Íslands þar til mun- aðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10 Bíó Paradís 22.00 Mission Impossible -Fallout 16 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verkefni misheppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.30, 22.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 21.55 Sambíóin Akureyri 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.