Morgunblaðið - 29.08.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.08.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018 Sigþór Ari Sigþórsson, verkfræðingur í Noregi, á 50 ára afmæli ídag. Hann býr í bænum Valen sem er rétt hjá Husnes, mitt ámilli Stavangurs og Björgvinjar. „Það er merkilegt við þennan bæ að Alusuisse byggði álver þar á sama tíma og það byggði álverið í Hafnarfirði,“ segir Sigþór Ari en hann er Hafnfirðingur. „Maður reynir alltaf að finna tengingar við sinn heimabæ og lætur sér líða vel með það. Það er með okkur eyja- skeggjana að við erum alltaf á leiðinni heim þótt það verði jafnvel ekki fyrr en í jarðarförinni. Í Noregi er gott að vera og lúxuslíf að ala upp börn. Við komum hingað í lok árs 2011, en þá stóð valið milli þess að gerast bankamaður eða flytja úr landi, en það voru engar fram- kvæmdir í gangi þá á Íslandi. Ég er einn af eigendum verktakafyr- irtækis hérna og sé um að bjóða í verk og stýra verkframkvæmdum.“ Sigþór Ari er núna staddur á Ródos ásamt stórfjölskyldu sinni. „Mér finnst gaman að ferðast og svo horfi ég mikið á fótbolta, fer á 5. deildar leiki í heimabænum í Noregi. Svo er ég farinn að spila aftur brids en ég gerði töluvert af því á menntaskólaárunum og spila mikið á netinu til gamans. Svo hef ég alltaf gaman af því að ræða um pólitík Sú baktería er ekki farin. Maður er Liverpool- og FH-maður og krati hvar sem þeir eru staddir og er skráður í norska Verkamannaflokk- inn.“ Eiginkona Sigþórs Ara er Hólmfríður Jóna Aðalsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og vinnur á heilsugæslunni í heimabænum. Börn þeirra eru Þórhildur Guðný, f. 1993, Andri Þórir og Aðalheiður Sæunn. Stjúpsonur Sigþórs Ara er Stefán Þórsson. Hjónin Hólmfríður og Sigþór á góðri stundu. Eyjaskeggjar eru alltaf á leiðinni heim Sigþór Ari Sigþórsson er fimmtugur í dag G uðrún Helga Lárusdóttir fæddist í Reykjavík, 29.8. 1933 og ólst þar upp á Grímsstaðaholtinu. Hún missti móður sína þegar hún var á fjórða aldursári og föður- ömmu sína, Guðrúnu Lárusdóttur al- þingiskonu og rithöfund, ári síðar. Báðir þessir atburðir höfðu mikil áhrif á líf hennar. Hennar stoð og stytta upp frá því var Sigurbjörn föðurafi hennar. Guðrún var send í sveit í æsku til stjúpömmu sinnar, Guðríðar Jónsótt- ur, í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð, sem reyndist henni afar vel. Þar naut hún sveitalífsins og bústarfanna.. Guðrún var aðeins 16 ára eru hún kynntist Ágústi G. Sigurðssyni lífs- förunauti, samstarfsmanni og félaga. Hann var þá 18 ára en þau trúlofuðust 1951, giftust 1953 og hafa alla tíð verið mjög samhent í öllu sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Guðrún Helga var í Skildinganes- skóla til 12 ára aldurs, var einn vetur í Melaskóla, lauk landsprófi frá Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar 1949, stund- aði nám við MR í einn vetur og sinnti síðan skrifstofustörfum hjá Blindra- vinafélaginu 1951-53. Guðrún og Ágúst fluttu til Dan- merkur árið 1956 með unga dóttur sína þar sem hann lagði stund á, og lauk, skipatæknifræði. Þau komu heim árið 1959 og Guðrún sá um heimilið og dætur þeirra og sinnti meðfram hluta- starfi í Árbæjarsafni. Árið 1970 keyptu þau Ágúst togar- ann Boston Wellvale sem hafði strand- að við Arnarnes í Ísafjarðardjúpi, gerðu hann upp og hófu útgerð frá Hafnarfirði árið 1971. Togarinn fékk nafnið Rán og Guðrún var ráðin fram- kvæmdastjóri Stálskips, eins og út- gerðin var nefnd. Síðan hefur hún stýrt Stálskipi af stakri röggsemi ásamt Ágústi manni sínum. Guðrún sat í stjórn Útvegsmanna- félags Hafnarfjarðar frá 1983, lengst af sem formaður, og var fyrsta konan í því félagi, sat í stjórn Fiskmarkaðar Hafnarfjarðar 1987-94, var kjörin í stjórn Landssambands íslenskra út- vegsmanna 1983, fyrst kvenna, og hætti setu þar árið 2013 þegar þau hjón hættu útgerð. Hún sat í Útflutn- ingsráði og ýmsum nefndum fyrir hönd LÍÚ, sat einnig í varastjórn Jafn- réttisráðs fyrir Vinnuveitenda- samband Íslands, í varastjórn Olíufé- lagsins hf. 1995-2004 og í bankaráði Íslandsbanka 2003 og í sjóðsstjórn Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum 2003- 2010. Guðrún hlaut Riddarakross hinnar Íslensku Fálkaorðu fyrir sjávar- útvegsstörf 17. júní 1991, var kjörin maður ársins, ásamt eiginmanni sínum Guðrún Helga Lárusdóttir, framkv.stj. og útgerðarm. – 85 ára Fjölskyldan Guðrún Helga og Ágúst Guðmundur, með dætrum sínum, tengdasonum og barnabörnum. Afburða kvennafrum- kvöðull í útvegsmálum Nöfnurnar Guðrún Helga með ömmu sinni, Guðrúnu Lárusdóttur, alþingiskonu og rithöfundi. Skógarbraut, Reykjanesbæ Arnar Nökkvi Sæþórsson fæddist 11. október 2017 kl. 11.12. Hann vó 3.994 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Helga Rós Gísladóttir og Sæþór Atli Gíslason. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.