Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 241. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Gert að fjarlægja hús án bóta
2. Sameinast flugfélögin fyrr en síðar?
3. Maðurinn fannst í nótt
4. Óttast að dyravörður sé mænuskaddaður
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tíundu og síðustu tónleikarnir í
sumartónleikaröð Schola cantorum,
kammerkórs Hallgrímskirkju, fara
fram í kirkjunni í dag kl. 12. Kórinn
mun syngja íslenskar og erlendar
kórperlur eftir Jón Ásgeirsson, Jón
Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Händel,
Byrd, Bruckner, Mendelssohn og
Hjálmar H. Ragnarsson. Stjórnandi er
Hörður Áskelsson.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Síðustu tónleikarnir
Sýning Báru
Bjarnadóttur, Það
er nóg af tíma í
sólarhringsopn-
un, var opnuð um
helgina í Harbing-
er-galleríinu á
Freyjugötu 1.
Stöðugar rann-
sóknir á efnivið
og flettingar í fræðiritum eru drif-
kraftur í verkum Báru og tvinnar hún
þessar rannsóknir við uppákomur í
daglegu lífi sínu og fréttir úr fjöl-
miðlum sem fanga athygli hennar.
Rannsakar og flettir
Lokuðum áheyrnarprufum sem Ís-
lenski dansflokkurinn hélt í Reykja-
vík lauk nú á sunnudaginn og fyrr í
sumar var dansflokkurinn með pruf-
ur í París. Alls sóttu 400 manns um
að taka þátt í þessum tveimur pruf-
um og bauð flokkurinn 100 áhuga-
sömum dönsurum að þreyta pruf-
urnar, 50 í París og 50 í Reykjavík.
Dansararnir komu víða að og voru
5% umsækjenda frá Ís-
landi. Fjögurra dans-
ara er leitað, bæði
karla og kvenna.
Erna Ómarsdóttir,
listdansstjóri ÍD,
mun velja dans-
arana.
400 manns sóttu um
Á fimmtudag Vaxandi sunnanátt og þykknar upp, 13-20 m/s
seinnipartinn með rigningu eða súld. Hiti 8 til 12 stig. Hægari vind-
ur og bjartviðri norðaustan- og austanlands með hita að 16 stigum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Minnkandi norðvestanátt og léttir víða til, en
strekkingur og rigning norðaustantil fram eftir degi. Hiti 6-15 stig,
hlýjast syðra. Víða hægir vindar í kvöld, léttskýjað og kólnar í veðri.
VEÐUR
Emil Hallfreðsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu,
skipti um lið á Ítalíu í sumar
þegar hann yfirgaf Udinese
og samdi við Frosinone sem
leikur í ítölsku A-deildinni,
en hann er afar spenntur
fyrir komandi leiktíð. Þá er
landsliðsmaðurinn vongóð-
ur um að ná landsleikjunum
gegn Sviss og Belgíu í
Þjóðadeildinni í september,
en hann fékk tak aftan í
lærið um síðustu helgi. »1
Bjartsýnn á að ná
landsleikjunum
„Þetta hvatti mig klárlega áfram í
vetur og í sumar, ég var að renna út á
samningi og þurfti að sýna að ég
verðskuldaði nýjan samning,“ segir
Daði Ólafsson. Þessi gríðarmikli Fylk-
ismaður missti sæti sitt í byrjunarlið-
inu á síðasta sumri en hefur unnið
sér það aftur og skoraði tvö mörk í
ákaflega mikilvægum sigri á Grinda-
vík í 18. umferð Pepsi-deildarinnar í
knattspyrnu. »4
Staðráðinn í að sanna
sig eftir síðustu leiktíð
„Ef litið er til árangurs yngri lands-
liða sýnist mér full snemmt að gefa
út dánarvottorð fyrir handbolta-
landsliðin. Sem betur fer,“ segir með-
al annars í viðhorfsgrein Kristjáns
Jónssonar í íþróttablaðinu í dag, en
nánast sléttur áratugur leið frá silfr-
inu á Ólympíuleikunum í Peking þar
til U18 ára landsliðið fékk silfur á EM
í Króatíu. »2-3
Enn er framleitt fram-
bærilegt handboltafólk
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Upprennandi tónlistarmenn í Árbæ
fengu í sumar nýjan vettvang til að
láta ljós sitt skína þegar tónlistar-
kennarar og tónlistarunnendur
komu saman til að stofna Tónlistar-
félag Árbæjar. Yfirlýst markmið fé-
lagsins er að efla ungt tónlistarfólk
í Árbæ og tónlistarlíf hverfisins al-
mennt.
Félagið hélt fyrsta viðburð sinn
síðastliðna helgi í samstarfi við
Íbúasamtök Árbæjar, Ártúns og
Seláss með tónleikunum Stíflunni
2018, þar sem ungir tónlistarmenn
komu fram og léku listir sínar
ásamt kunnum tónlistarmönnum.
Tónleikar á brennusvæðinu
„Við sem stöndum á bak við fé-
lagið erum allir að vinna í Árbæjar-
skóla eða Norðlingaskóla,“ sagði
Kristján Sturla Bjarnason um til-
urð félagsins í viðtali við Morg-
unblaðið. „Við fundum fyrir því að
það er mikill áhugi og margt hæfi-
leikafólk. Þess vegna langaði okkur
að taka skrefið lengra. Okkur
fannst vanta vettvang þar sem
þessir krakkar gætu fengið að
blómstra, sérstaklega þegar þeir
klára grunnskólann. Til að koma
fram og búa til tónlist og þjálfa sig
í því.“
Kristján segir krakkana sem
sæki í starfsemi félagsins vera á
öllum aldri og bæði vera í grunn-
skóla og gengnir í menntaskóla.
„Við viljum hvetja þá áfram og efla
þá í tónlistinni. Þetta er nýstofnað
og við erum enn að vinna í hug-
myndum um það hvernig við getum
náð markmiðum okkar. Fyrst um
sinn eru þetta aðallega viðburðir og
slíkt. Við finnum unga og efnilega
tónlistarmenn í bland við reyndari
tónlistarmenn. Við ætlum að bjóða
upp á námskeið, fræðslu og fleira
fyrir krakkana í samstarfi við
stofnanir í hverfinu og vera kannski
með húsnæði þar sem þeir geta
komið til að semja og æfa tónlist.“
Tónleikarnir félagsins fóru fram
á gamla brennusvæðinu fyrir ofan
Árbæjarlög. Fram komu flytjendur
á borð við Flona, Loga Pedro,
Sverri Bergmann og hljómsveit-
irnar Bandamenn og Ykkur.
Spiluðu þeir ásamt tónlistarmönn-
unum úr hverfinu sem félagið hafði
safnað saman. „Nú er bara að plana
fleiri viðburði og fleiri skemmti-
legar uppákomur í Árbænum,“ seg-
ir Kristján. „Ég held að það sé nýr
uppgangur í tónlist í Árbænum.
Það er fullt af mjög efnilegum
krökkum og ég held að það sé bara
tímaspursmál hvenær einhverjir
þeirra ná langt.“
Tónlistarlíf eflt í Árbænum
Fyrstu tón-
leikar Tónlistar-
félags Árbæjar
Helgartónleikar Tónlistarfélag Árbæjar hélt fyrstu tónleika sína um helgina og um 2.000 manns sóttu þá. Meðal
þeirra sem komu fram á tónleikunum voru Floni, Logi Pedro og Sverrir Bergmann.
Brennusvæði Kristján Sturla Bjarnason tónlistarkennari segir að Tón-
listarfélagið stefni að fleiri viðburðum og námskeiðum á næstunni.