Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018 Til að gleðin gangi sem best Hápunktur Hinsegin daga, árleg Gleði-ganga fer fram í dag, laugardaginn11. ágúst, en í henni minna hinsegin einstaklingar á baráttumál sín, sýnilega og tilveru með gleðina í forgrunni. Líkt og fyrri ár hefur umfangsmikil gangan talsverð áhrif á samgöngur innan borgarkjarnans og því vert að kynna sér hvar gleðin verður við völd á götum úti, svo enginn þurfi að verða argur yfir að komast ekki heim til sín fastur í um- ferðinni. Hafist verður handa við að stilla göngunni upp kl. 12 á hádegi á Sæbraut, austan Faxa- götu, í nágrenni tónlistarhússins Hörpu. Tveimur tímum síðar, kl. 14. leggur gangan af stað og verður gengið eftir Kalkofnsvegi, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og Sóleyjargötu en þá taka við útitónleikar í Hljómskálagarð- inum. Þó að gangan hefjist ekki fyrr en 14.00 verður götum lokað mun fyrr eða kl. 10 og verður lokað til 18.00. Sæbraut er lokuð frá gatnamótum Sæ- brautar og Snorrabrautar og sem leið liggur í vestur að Lækjargötu sem einnig er lokuð og verur lokuð út Fríkirkjuveg og Sóleyjar- götu, að hringtorginu við gatnamót Sóleyjar- götu og Njarðargötu. Einnig er Geirsgata lokuð þar sem hún tekur við af Sæbraut og upp að Ægisgötu. Rétt er að geta að þótt al- mennt gildi að götur sé lokaðar til kl. 18 þennan dag er opnað fyrir umferð á Geirs- götu og Sæbraut klukkan 15. Aðrar götur sem lokaðar eru þennan dag er kafli Skothúsvegar, eða frá Bjarkargötu að Fjólugötu. Skálholtsstígur er lokaður á kaflanum milli Fríkirkjuvegar og Laufás- vegar og neðsti partur Bragagötu sömuleiðis, eða frá Fjólugötu. Neðri hlutar Laugavegar og Hverfisgötu eru lokaðir, Hverfisgata upp að Ingólfsstræti og Laugavegur er með hefðbundna sum- arlokun upp eftir Ingólfsstræti og einnig neðsti hluti Skólavörðustígs. Amtmannsstígur er lokaður sem og Þing- holtsstræti sem er lokað að Bókhlöðustíg. Síðustu ár hafa allt að 90 þúsund manns mætt í Gleðigönguna en auk þess sem skipuleggjendur benda á að þennan dag er strætó góður samgöngumáti hafa bíla- stæðahús verið illa nýtt þessa daga og bílum verið lagt ólöglega þess í stað. Þegar Druslugangan var farin fyrir um tveimur vikum vakti athygli að hópur manna nýtti gönguna til að steggja einn þeirra en gangan er farin til að mótmæla kynferðisof- beldi og orðræðunni í kringum það. For- svarsmenn Gleðigöngunnar hafa því séð sér- stakt tilefni til að gefa það út að steggja- og gæsapartíhópar séu ekki velkomnir í göng- una enda sé gangan í þágu mannréttinda og mannvirðingar og eru ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir beðin að virða það og finna sér annan vettvang. Einnig eru gestir sem ekki eru með sérstök atriði beðnir um að leyfa vögnunum að fara fyrstir og slást ekki í för með göngunni fyrr en síðasti vagn- inn hefur farið framhjá. Morgunblaðið/Eggert Margir bíða með óþreyju eftir Gleðigöngu helgarinnar sem hefur verið gengin frá árinu 2000 hérlendis. Hátt í 100.000 manns sækja miðbæinn á þessum degi og því að mörgu að huga til að allt gangi sem best fyrir sig. Gleðigangan og lokaðar götur Gleðigangan Götur lokaðar frá kl. 10 til 18 Geirsgata opnuð kl. 15 Sæbraut opnuð kl. 15 Upphaf göngu kl. 14 HJljómskálagarður – ganga endar ’ Ég vil ekki giftast fyrr en hinsegin fólk öðlast alls staðar þann rétt líka. Lena Dunham, leikkona og leikstjóri INNLENT JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR julia@mbl.is Reykjavík • Hallarmúla 2 | Akureyri • Undirhlíð 2 SKÓLA VEIS LA Þú fær ð skóla tölvuna hjá okk ur, opið alla helgina og ís í boði NÝR BÆKLINGUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.