Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Qupperneq 29
„Það var smá skrítið að koma á áfangastað, svolítil tómleikatilfinn- ing. Í átján daga höfðum við mark- mið, að komast þangað, og allt í einu þurftum við ekki að hjóla leng- ur. Það var samt alveg tvímælalaust einn af hápunktum ferðarinnar,“ segir Jón Elvar. hanna. „Landslagið er rosalega fjöl- breytt, við upplifðum það mismun- andi á hverjum degi. Veðrið var gott allan tímann, sem kom mikið á óvart. Sveitirnar voru fjölbreyttar og fólkið var almennilegt. Svo var alveg magnað að koma á áfangastað á átjánda degi,“ heldur hún áfram. ’ Þetta var fyrsta frísem ég hef farið í semég hef borðað eins og svínog samt komið heim þremur kílóum léttari „mesti undirbúningurinn var að hittast og ákveða hvar við ætluðum að gista.“ „Fyrir tveimur árum fórum við í hjólaferð til Hollands, en það var aðeins einn þriðji af þessari leið,“ bætir Jón Elvar við, en end to end leiðin svokallaða er rúmlega 300 kílómetrum lengri en hringvegurinn um Ísland. „Við hittum marga Breta sem héldu að við værum rugluð þegar við sögðum þeim hvert við værum að hjóla, en okkur þótti þetta ekkert svo merkilegt,“ segir Aðalsteinn. „Það er örugglega vegna þess að við vissum ekki bet- ur,“ bætir Linda við. Greru við hjólið „Mesta áreynslan var fyrstu dag- ana. Dagur tvö var lengsti dag- urinn, þá hjóluðum við 120 kíló- metra yfir miklar hæðir, þannig að við vorum svolítið aum á degi þrjú. Síðan vandist þetta þegar leið á, maður hálfpartinn greri við hjólið,“ segir Jón Elvar. Fjórmenningarnir gistu á hinum ýmsu sveitakrám og gistiheimilum á leið sinni. „Ég veit ekki hvernig gistingu hefði mátt bjóða okkur til að við hefðum ekki verið mjög feg- in,“ segir Linda. „Þótt það sé kannski ákveðin hvíld fyrir sæmi- lega virkt fólk að hjóla í staðinn fyr- ir að beita sér í annars konar vinnu, þá brenndum við miklu,“ bætir hún við. Við borðuðum mjög mikið á morgnanna og á kvöldin, þetta var fyrsta frí sem ég hef farið í sem ég hef borðað eins og svín og samt komið heim þremur kílóum léttari,“ segir Aðalsteinn. Spennufall á áfangastað Jóhanna er hjúkrunarfræðingur, Linda þroskaþjálfi, Aðalsteinn raf- magnsiðnfræðingur og Jón Elvar kokkur og gítarleikari, en þau tók- ust á við ferðina af miklu æðruleysi. „Við vorum ekki í neinu kappi við tímann, við vorum bara að njóta. Það eina sem var skipulagt var áfangastaðurinn, en þar á milli varð margt á vegi okkar þar sem við stoppuðum og skoðuðum,“ segir Jó- Fjórmenningarnir við upphaf ferðarinnar. Frá vinstri: Aðalsteinn, Linda, Jóhanna og Jón. Vegirnir á leiðinni hentuðu misvel til hjólreiða. Hjólagarparnir hjóla í gegnum göng. Ferðalangarnir setjast að snæðingi með fallegt útsýni. Hópurinn gisti á ýmsum sveitakrám og gistiheimilum. 12.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 16:00 í Hörpu jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.