Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Síða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Síða 31
er bannað, enda getur árekstur við önnur loftför verið stórhættulegur. Þyrluflugmaðurinn Jón K. Björnsson var á leið í útsýnisflug í morgun þegar hann sá með- alstóran dróna álengdar í um 800 fetum. Jón tilkynnti það til flugturnsins, sem tilkynnti svo lögreglu um málið. „Drónar eiga ekkert með að vera í lofthelgi flugvallar. Það er mikið um að vera á Reykjavíkur- flugvelli í góðu veðri og við getum ekki haft óboðna gesti inni á okkar svæði,“ segir Jón í samtali við mbl.is. Svo var Rafn Hilmar Guðmundsson, aðalvarð- stjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, spurður hvort náðst hefði í skottið á drónaþjösnanum. Hann sagði að sá sem stýri dróna geti verið hvar sem er: „Þeir drífa hátt í 10 km þannig að það er ekkert sem við gátum gert. Hann bara hvarf.““ Þarna eru óskráðar reglur Það er sjálfgefið og eins þótt að reglur séu ekki til um það allt, að drónar eru bannaðir á flugvallarsvæðum og öðrum sambærilegum svæðum. En það eru fleiri svið þar sem drónar geta verið til bölvunar, óþurftar eða leiðinda. Þeir geta birst sem uppivöðslusamir dónar þegar minnst varir og verst gegnir. Þá geta þeir verið litlu betri en myndavélar á tám sem öfug- uggar nota til að mynda undir pils kvenna, svo ótrú- legt sem það er. Það eru strangar reglur um það hvað menn geti haft háar girðingar eða gerefti í kringum sína litlu garða. Þær eru m.a. miðaðar við að tryggja persónulega friðsemd gegn óþörfum kíkjum náung- ans eða annarra. Þeir sem fara með dróna yfir slík svæði eða láta þá mynda inn um glugga þar sem fólk má ætla að það sé í friði, rétt eins og í heitum pottum í görðum sínum eru í fullkomnum órétti skráðum eða óskráðum. Komi drónar fljúgandi lágt yfir land annars sem hefur byssuleyfi þá leiðir það að sjálfu að hann skýtur fyrst og spyr síðar. Hann má skjóta hrafn og kjóa sem fljúga yfir land hans sem oftast er ekki minnsta ástæða til. En líflaust vélarskrifli sem kemur óboðið og viljandi af eigandans hálfu í erindum sem enginn getur vitað hver eru, er óvelkomið í öllum tilvikum, getur ekki tekið það nærri sér fái það varmar við- tökur. Erfitt ástand og hættulegt Svo örlítið sé skyggnst um gáttir heimsmála eru ýms- ar ástæður til að hafa áhyggjur. Tyrkir, sú merka þjóð, er í miklum erfiðleikum núna. Ýmsir leggja illt til Erdogans forseta og geta vissulega nefnt margt til. Á árum fyrr hittist svo á að bréfritari talaði oft við Er- dogan út undir vegg á fundum og smáboðum í tengslum við það. Eins hafði hann gjarnan þann hátt á þegar hann átti erindi vestur um haf, t.d. vegna funda SÞ að láta vita svo bréfritari gæti átt með honum spjall yfir léttum málsverði úti í Flugstöð á meðan vél hans var fyllt eldsneyti og öðru slíku og iðulega á ferð- um út og heimleiðis. Erdogan var þá forsætisráðherra en hafði áður ver- ið borgarstjóri í Istanbul og reyndar verið fangels- aður í tæpt ár fyrir að fara opinberlega með bann- færðan skáldskap. Var hann hinn vinsamlegast í öllum þessum samtölum hér heima sem annars stað- ar, var yfirvegaður og sagði áhugaverða hluti. Margt hefur á daga hans drifið síðar. Hann beitti sér fyrir því að styrkja vald forsetans verulega áður en hann sóttist eftir því sjálfur og jók svo við það eftir að hann hafði verið kosinn til þess embættis. Þetta gerði hann eftir gildandi reglum landsins og efndi til kosninga af þessum tilefnum. Eftir tilraun hersins, eða hluta hans, til valdaráns, sem engu mátti muna að tækist, hefur Erdogan hert mjög öll tök og gengið fastar gegn andstæðingum sín- um, meintum sem öðrum, en samræmist þeim reglum sem gilda í þeirri tilveru sem Tyrkland hefur marg- lýst yfir að vilji þess standi til að eiga samleið með. Erdogan var hársbreidd frá því að falla fyrir árás- um eigin flughers sem að sjálfsögðu hefur haft mikil og langvarandi áhrif á hann, án þess að það réttlæti alla framgöngu síðar. Gülen Fáir utan Tyrklands höfðu veitt Muhammed Fethul- lah Gülen athygli áður en að Erdogan beindi kastljós- inu að honum fljótlega eftir misheppnaða byltingartil- raun hersins. Gülen er ýmist sagður 77 ára og þá fæddur 27. apríl 1941 eða þá tæplega áttræður og þá fæddur 10. nóvember 1938. Síðari dagsetningin er táknræn því hún er dánar- dægur Mustafa Kemal Atatürk, landsföður Tyrk- lands nútímans. Fylgismenn Gülens eru taldir í millj- ónum og hann hefur verið þýðingarmeiri í tyrkneskum stjórnmálum lengi og sem prédikari í trúarlegum efnum en borist hefur út. En fréttaskýr- endur, sem taldir eru þekkja vel til málefna Tyrk- lands, efast þó margir um að áhrif hans séu jafnmikil og Erdogan vilji vera láta. Sumir orða það svo að Gü- len sé fyrir Erdogan það sem Leon Trotsky var fyrir Stalin. Grýla og réttlæting í senn. Tyrkland hefur krafist framsals á Gülen frá Banda- ríkjunum þar sem hann hefur búið lengi. Bandaríkin neita. Tyrkir hafa haldið bandarískum presti, Adrew Brunson, fangelsuðum og svo í stofufangelsi og talið er að það sé spil í deilunni um framsal Gülen. Trump forseti hefur tekið prestinn upp á sína arma og beitt verulegu afli gegn Tyrkland og m.a. hótað hörðum verndartollum, sem orðið hefur til þess að tyrkneska líran, sem átti undir högg að sækja, lenti í frjálsu falli. Efnahagslegar ógöngur eru mikið hættuspil fyrir Er- dogan þar sem þær bætast við önnur og sáraukafull átök í kjölfar byltingartilraunar hersins og hertar skrúfur að málfrelsi, stjórnmála- og félagafrelsi og óöryggi um persónulegt frelsi fjölda fólks. Það er sérlega vont í landi sem ræður fyrir stærsta her Nato-ríkis í Evrópu, landi sem gerir tilkall til að teljast evrópsk þjóð og í landi sem heldur 3 milljónum flóttamanna innan girðingar gegn greiðslum frá Brussel og hótar reglubundið, beint og óbeint, að ljúka upp hliðunum með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum fyrir tilveru ESB og evrunnar. Þar er ekki á bætandi. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’Það er sjálfgefið og eins þótt að reglurséu ekki til um það allt, að drónar erubannaðir á flugvallarsvæðum og öðrumsambærilegum svæðum. En það eru fleiri svið þar sem drónar geta verið til bölvunar, óþurftar eða leiðinda. Þeir geta birst sem uppivöðslusamir dónar þegar minnst varir og verst gegnir. 12.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.