Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Page 2
Í vikunni bárust fréttir af því að breski gamanleikarinn Jack Whitehallmyndi leika fyrstu opinberlega samkynhneigðu persónuna í veigamikluhlutverki í Disney-kvikmynd. Í aðalhlutverkum í Jungle Cruise eru
Dwayne Johnson og Emily Blunt (sem er einmitt í prófíl í þessu blaði á blaðsíðu
8) en Whitehall leikur bróður Blunt. Í stað þess að netið sameinaðist í lofi til
Disney yfir að koma loksins með samkynhneigða persónu (þótt hann sé því
miður ekki prins) hefur gagnrýnin verið mikil á leikaravalið; Whitehall er
nefnilega ekki samkynhneigður og óttast sumir að persónan verði einhvers
konar „týpískur hress hommi“. En það ætti ekki að vera þannig að aðeins sam-
kynhneigðir leikarar geti leikið samkynhneigt fólk á skjánum. Það sem þarf að
breytast er að samkynhneigðir leik-
arar geti verið opnir með kynhneigð
sína og fái jafn fjölbreytt hlutverk og
aðrir en saga Hollywood hefur hingað
til ekki verið þannig. Leiklist er jú
LIST og ætti að fá að vera til á for-
sendum listarinnar. Leikarar mennta
sig í sínu fagi og eru góðir leikarar
hæfir til að takast á við fjölbreytt
hlutverk. Samkynhneigðir leikarar
ættu ekki að festast í því að leika
samkynhneigða persónu.
Nýverið þurfti Scarlett Johansson
að hætta við að taka að sér hlutverk
transkarls í kvikmyndinni Rub & Tug
en hún er ekki trans. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu á miðvikudag
þykir ástralska leikkonan Ruby Rose
hins vegar ekki nógu lesbísk til að
leika Leðurblökukonuna; hún kom út úr skápnum þegar hún var 12 ára en
sagði frá því í viðtali við Cosmo að hún væri „gender-fluid“ eða kynsegin.
Fólk er greinilega ekki sammála um hvar mörkin liggja en það er hins vegar
alveg ljóst að þau eru þarna. Ein uppáhaldsmynd mín er Breakfast at Tiffany’s
(1961) og hef ég horft á hana margoft en það er alltaf óþægilegt að horfa á Mic-
key Rooney leika hinn ýkta Japana herra Yunioshi, en húmor með rasískum
undirtón þótti mörgum vera í lagi á þessum tíma. Hilary Swank lék transkarl í
Boys Don’t Cry (1999) og hlaut mikið lof fyrir á sínum tíma en það getur vel
verið að þetta leikaraval verði jafn vandræðalegt og Rooney með tímanum.
Hópar innan transsamfélagsins eru nú ósáttir við þessa mynd og það er mik-
ilvægt að hlusta á þær raddir.
Óháð leikaravali hlýtur það allra mikilvægasta að vera að það séu sagðar fjöl-
breyttar sögur í kvikmyndum og sjónvarpi sem fólk af mismunandi bakgrunni,
kynþáttum og kynhneigð getur speglað sig í. Og að allskonar fólk fái tækifæri
til að takast á við þessi hlutverk. Kvikmyndir geta veitt mikinn innblástur og
ættu að gera það en ekki breytast í veruleikasjónvarp.
Undirrituð vill ekki fá
annan Yunioshi eins og
Mickey Rooney lék í
Breakfast at Tiffany’s.
Að leika eða leika
ekki homma
Pistill
Inga Rún
Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
’Óháð leikaravalihlýtur það allra mik-ilvægasta að vera að þaðséu sagðar fjölbreyttar
sögur í kvikmyndum og
sjónvarpi sem fólk af mis-
munandi bakgrunni,
kynþáttum og kynhneigð
getur speglað sig í.
Hvernig kviknaði
þessi hugmynd að
láta lúðrasveitir
berjast?
Það hefur verið ára-
tugalangur rígur á
milli lúðrasveita. Í
„den“ gat fólk úr mis-
munandi lúðrasveitum
ekki verið saman í
strætó. Það var stundum
verið að stela hljóðfæraleik-
urum úr einni sveit í aðra og ríg-
urinn hefur verið falinn í köldu stríði.
Það var kominn tími til að útkljá þetta. Þetta
er eins og þegar götugengin í Ameríku hittast og
gera upp sín mál, nema við erum vopnuð trommum
og lúðrum. Svo verða allir með leynivopn en það er
ekkert gagnsæi í þessu og ekkert gefið upp. Það er
búið að gera farandgrip sem er keppt um og honum
fylgja ótakmörkuð montréttindi í heilt ár á kostnað
hinna sveitanna.
Hver dæmir í þessum bardaga?
Það er þriggja manna dómnefnd. Það eru mjög stífar
reglur, en þær eru af sama toga og kosningaloforð
Besta flokksins; fyrsta reglan er að það eru engar regl-
ur. Svo koma fleiri reglur. Við þurfum að mæta með tvö
lög sem dómnefnd dæmir og svo spilum við eitt lag sam-
an. Á eftir verða grillaðar pulsur og bulsur fyrir gesti og
gangandi.
Hvað býstu við mörgum lúðrasveitar-
meðlimum?
Ég hef reynt að fá það upp úr hinum sveitunum hvað þau
verða mörg en þau neita að gefa það upp. Ég býst við sextíu
til hundrað manns.
Hvað geta áhorfendur búist við að upplifa?
Þeir geta búist við sjónarspili. Ég held að allir verði með
leynivopn. Ég get ekki sagt þér hvað við verðum með því það
er leyndarmál, en það verður stórkostlegt. Svo þegar við spil-
um saman lag á það eftir að glymja alveg upp í Breiðholt, það
verða læti. Svo yrði ég ekkert hissa ef einhver lúðrasveit-
armeðlimur mynda enda úti í tjörninni.
Morgnblaðið/Ásdís
ÞORKELL HARÐARSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Götubardagi
lúðrasveita
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Diljá Erna Eyjólfsdóttir
Nei, ég er að fara í brúðkaup.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú í
bæinn á
Menning-
arnótt?
Hafþór Ernir Vilhjálmsson
Að sjálfsögðu. Ég ætla að fara að
upplifa stemninguna með kærust-
unni minni.
Kara Líf Halldórsdóttir
Ég held það já, ég ætla að rölta um,
hitta fólk og fara á tónleika.
Birkir Þór Elmarsson
Nei, ekki í þetta sinn, ég er að fara í
brúðkaup fyrir utan bæinn.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Valgarður Gíslason
Þorkell Harðarson, varaformaður lúðrasveitarinnar Svans, hvetur
fólk til þess að mæta í Hljómskálagarðinn klukkan fimm á Menn-
ingarnótt. Lúðrasveitin Svanur, Lúðrasveit Reykjavíkur og Lúðra-
sveit verkalýðsins útkljá áratugalangan ríg vopnaðar hljóðfærum.