Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Page 18
P atrekur Andrés Axelsson var 19 ára þegar hann missti sjónina, þá að ljúka námi á rafiðnaðarbraut og á fullu í fótbolta. Sjónin fór úr fullkominni hundrað prósenta sjón niður í fimm prósent á aðeins hálfu ári. Fyrir þremur árum byrjaði Patrekur að æfa frjálsar íþróttir og er slíkur spretthlaupari að þeir sem sjáandi eru halda ekki í við hann. Patrekur, sem er 24 ára í dag, er einn þeirra fjögurra íslensku íþróttamanna sem „stefna að hinu ómögulega“ með því að kom- ast á ólympíumót fatlaðra í Tókýó í Japan ár- ið 2020, en Morgunblaðið og mbl.is mun fylgja þessum íþróttamönnum eftir næstu ár- in fram að keppni. Patrekur og hinir íþrótta- mennirnir eru nýbyrjuð í herferð með Íþróttasambandi fatlaðra og Toyota sem ber yfirskriftina „Start your impossible“, en Pat- rekur á möguleika á að komast á ólympíumót fatlaðra eftir tvö ár. Það er stutt í húmorinn hjá Patreki Andr- ési Axelssyni þegar blaðamaður hringir í hann til að skipuleggja viðtalið. „Er nafnið þitt á bjöllu?“ spyr undirrituð til að rata á réttan stað. „Síðast þegar ég gáði,“ segir Patrekur kíminn. Hann segir húmorinn sér mikilvægan og jákvæðni, það hafi þó tekið hann smátíma að ná sér upp úr því og sætta sig við að hafa misst sjónina, enda var sá framgangur á þann hátt að á hverjum degi sá hann mun á sjóninni frá því deginum áð- ur. „Þetta var í raun áfall á hverjum degi í hálft ár. Á hverjum morgni vaknaði ég með „nýja“ sjón. Ég sá verr í dag en í gær og milli vikna var ótrúlega margt sem ég hafði getað séð en sá ekki lengur,“ segir Patrekur, en augnsjúkdómur þessi, sem kenndur er við Leber, er ættgengur. Móðir hans greindist með sjúkdóminn þegar Patrekur var 10 ára og þá fór sjón hennar líka svona hratt. Móð- urbræður hans fengu einnig sjúkdóminn og eldri bróðir Patreks greindist með sjúkdóm- inn ári eftir að Patrekur fór að missa sjón- ina. „Ég var 10 ára þegar ég vissi að þetta gæti gerst, þegar mamma greindist. Ef móð- ir er með þennan sjúkdóm eru 50 prósenta líkur á að synir fái hann líka, ég vissi líka að þá yrði líklegast að ég myndi greinast um tvítugsaldurinn. Ég hafði þetta á bak við eyr- að en pældi afskaplega lítið í þessu, sinnti bara mínu og hélt áfram með lífið.“ Hvað er fimm prósenta sjón? „Sjónin er svo lítil að hún er í raun ekki mælanleg, maður segir fimm prósent til að hafa eitthvað. Ég sé mun á degi og nótt, skuggum og útlínum, greini svart og hvítt og svo einn lit í viðbót, fánabláan.“ Patrekur er í fánablárri peysu og kann greinilega vel við sig í þeim lit. „Ég er ekki með neina miðju- sjón, er með örlitla jaðarsjón eða ratsjón, mikið meira er það ekki. En þegar ég hleyp er ég alveg blindur, því ég keppi í flokki þar sem fólk er nánast alveg blint eins og ég þótt það sé einhver smá munur á sjóninni milli einstaklinga, sumir með örlítið betri sjón en aðrir. Til að gera alla keppendur jafna erum við með bundið fyrir augun. Þar af leiðandi þarf ég að vera með aðstoðarmann sem hleypur með mér svo ég viti hvert ég er að hlaupa og við erum bundnir saman á úlnlið- um.“ Aðstoðarmenn Patreks þurfa augsjáanlega að vera afar fótfráir og tilbúnir að mæta með honum á æfingar og mót. Patrekur er farinn að hlaupa á slíkum hraða, þar sem metið hans í 100 metra hlaupi núna er 12,23, að að- eins þeir hraðskreiðustu ná að halda í við hann. Það hlýtur að vera smá vinna að finna að- stoðarmenn sem geta verið þér innan hand- ar? „Jú, það hefur verið smá vinna að leita að þeim. Bæði er það þannig að ekki getur hver sem er gert þetta og svo er ég alltaf að bæta mig. Ég hef verið með þrjá aðstoðarmenn sem hafa hlaupið með mér á mótum. Aðstoð- armaður númer tvö fór í hjartaaðgerð og þurfti að hætta en Andri Snær Ólafsson Lukeš, spretthlaupari og einn besti þrí- stökkvari landsins, hefur verið aðstoð- armaður minn í tvö ár en hann er núna í sér- námi í læknisfræði í Danmörk. Andri flýgur hins vegar og hittir mig á mótum og keppir með mér þó að við séum ekki lengur saman á æfingum og ég er því afar þakklátur. Hér heima er ég svo með góðan aðstoðarmann, Óskar Hlynsson, sem Toyota lánaði mér en hann er reyndar 56 ára.“ Jahá, og heldur hann í við þig? „Hann gerði það a.m.k. í byrjun, en við fórum að æfa saman í desember á síðasta ári. Hann var Evrópumeistari í 200 metra sprett- hlaupi öldunga innanhúss, þjálfari í frjálsum hjá Fjölni og Aftureldingu og er því ágæt- lega fljótur. Hann var skrefi á undan mér en í dag er ég svolítið kominn á undan honum.“ Tók mig ár að jarðtengjast Við sitjum á pallinum í íbúð sem Patrekur á í Breiðholti, sólin skín en það gustar, Patrekur finnur að blaðamaður er þrjóskur á að sitja þarna þrátt fyrir að það er svolítið kalt og finnur að ég skelf. Eftir að sjónin fór tóku önnur skynfæri yfir. Hann er afar næmur á raddir og rödd er eins og hjá sumum sem eru andlitsminnugir – hafi hann „hitt“ þessa rödd áður man hann nær alltaf hver viðkom- andi er út frá röddinni. Breiðholtið er æsku- stöðvar hans en hann bjó í Grafarvogi þegar hann greindist með sjúkdóminn. Hann ákvað að flytja aftur í Breiðholtið því þar þekkir hann hvern stokk og stein og öll þjónusta er aðgengileg sem hann kemst fótgangandi í; sundlaug, heilsugæsla, verslanir og stutt nið- ur í Mjódd í banka og slíkt. Patrekur missti fljótt bílprófið og fer nær allra sinna ferða fótgangandi, „mjög umhverfisvænn“ segir hann og brosir. Öðru hvoru berst afar hratt tal úr símanum hans, svo hratt að undirrituð nær ekki nema broti og broti. Þetta er tal- gervill sem les fyrir Patrek skilaboð á Face- book og það sem honum berst og Patrekur segist ekki hafa þolinmæði í að hafa þetta hæglesið svo að hraðinn er eins og Alvin og íkornarnir séu með partí. Í tölvunni er líka talgervill en Patrekur segir að eitt af því já- kvæða við að missa sjónina sé að nú sólundi hann ekki tíma sínum í að horfa á drasl í sjónvarpinu og spila tölvuleiki, þess í stað hlusti hann mikið á ýmiss konar þætti í út- varpinu og hlaðvörp. Hann segir að með stærri breytingum fyrir hann eftir að hann missti sjónina hafi verið að geta ekki spilað fótbolta, enda hafi íþróttin átt hug hans all- an. „Ég lék með Leikni í Breiðholti á þessum tíma sem ég fékk sjúkdóminn og það var inni í myndinni að vera áfram í fótboltanum. Ég stundaði einnig lyftingar, lyfti fjórum sinnum í viku, og íþróttir voru aðaláhugamál mitt. Þótt ég hafi vitað af því að mögulega myndi ég veikjast hugsaði ég alltaf, eins og margir; þetta kemur ekkert fyrir mig. Þegar ég var búinn að missa sjónina alveg tók það mig eiginlega eitt ár að komast upp úr þessu áfalli og jarðtengjast að nýju. Ég ákvað að klára rafvirkjann þrátt fyrir að ég væri að missa sjónina og kláraði vorið 2014. Mánuði eftir útskrift var sjónin orðin þannig að það var alveg ljóst að ég gæti ekki unnið við fag- ið. Mér fannst missirinn mikill, framtíð- arplönin myndu ekki ganga eftir, ég missti bílprófið, sem var mikið fyrir mann á þessum aldri og lífið var í rauninni komið á byrj- unarreit á svo margan hátt. Þetta er ekki bara að læra á umhverfi sitt upp á nýtt heldur að taka nýjar ákvarðanir, byrja á nýju upphafi.“ Stórt verkefni að læra á jafnvægisskynið Haustið 2014 ákvað Patrekur að klára stúd- entinn. „Ég hafði ekki mikið annað að gera, ég var hættur í vinnu og fótbolta. Ég hafði alltaf verið með fínar einkunnir en þarna fór ég að fá enn betri einkunnir, níur og tíur, og námsráðgjafi í skólanum benti mér fljótlega á að það væri afar ólíkt mér að vera ekki í neinni hreyfingu og með súpereinkunnir,“ segir Patrekur og hlær. „Þetta væri ekki ég og hann kom með þá uppástungu að ég skoð- aði að æfa spretthlaup og það gerði ég og setti mér fljótt það markmið að reyna að komast á Ólympíuleikana.“ Patrekur var byrjaður að æfa frjálsar íþróttir í nóvember 2014 og hefur æft núna í fjögur ár. Hann fann fljótt hvað það gaf hon- um mikið að æfa, ekki bara líkamlega, að fá útrás, heldur andlega, hann fann hvernig andlega hliðin og sjálfstraustið styrktist að nýju. „Eitt það erfiðasta líkamlega við að missa sjónina er að maður missir jafnvægisskynið svolítið um leið. Þú getur bara prófað að loka augunum og fundið hvað þú verður óörugg í jafnvæginu. Í dag eru íþróttirnar í raun og veru vinnan mín, ég æfi kvölds og morgna, sex daga vikunnar, fjóra og hálfan tíma alls yfir daginn, lyftingar á morgnana og sprett- hlaupsæfingar á kvöldin.“ Tíminn fer ekki í neina vitleysu Patrekur Andrés Axelsson spretthlaupari á eiginlega orðið í vandræðum með að finna fólk sem heldur í við hann í spretthlaupum sínum, en hann keppir í flokki alblindra þar sem hann hleypur með alsjáandi aðstoðarmann sér við hlið. Patrekur missti sjónina fyrir nokkrum árum en hann var mikill fótboltamaður áður. Hann geysist nú eins og vindurinn á hlaupabrautinni. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is ’ Þetta var í raun áfall áhverjum degi í hálft ár. Áhverjum morgni vaknaði égmeð „nýja“ sjón. Ég sá verr í dag en í gær og milli vikna var ótrúlega margt sem ég hafði getað séð en sá ekki lengur. „Ég er pottþétt að æfa meira og fara meira í sund og slíkt en ef ég væri með fulla sjón. En ég þarf að vera svolítið þolinmóður, auðvit- að tekur allt meiri tíma fyrir mig.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg „Ég er þetta heilbrigður í dag þrátt fyrir að sjónin hafi farið og ég hef margt annað í lífinu sem ég kann að meta.“ Ljósmynd/Grétar Guðmunds VIÐTAL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.