Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Qupperneq 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Qupperneq 35
„Raunverulegt eðli veruleiksins“ Ég var búinn að vera meðákveðna hugmynd í kollinumí u.þ.b. tvö ár. Það var mjög mikill texti. Svo tókst mér að gera hann voða lítinn,“ segir Ólafur Stef- ánsson, fyrrverandi handboltakappi og núverandi rithöfundur, um fyrstu bók sína, Gleymnu óskina. Bókin kom út í dag, laugardag, og er lítil saga um hreina ósk sem finn- ur sniðuga leið til að finna „hinn“. Bullorðinssaga Spurður í hvaða hillu bókasalar landsins muni geta raðað bókinni svarar Ólafur: „Við köllum hana nú í gríni bara bullorðinssögu, þ.e. sögu um yndislegheit og hugsanlega raunverulegt eðli veruleiksins sem fullorðnir stimpla oft sem bull.“ Kári Gunnarsson teiknari mynd- skreytti bókina og fer engu minna fyrir myndum hans en textanum í bókinni. „Ég átti í fórum mínum, eftir að hafa smækkað textann, 23-24 mynd- ir, svona frekar grófar. Ég vissi að þessar myndir voru Óskinni ekki al- veg samboðnar. Því bauð ég sam- starf þeim besta og þægilegasta grafíska teiknara sem til er á land- inu, þ.e. Kára. Honum leist vel á þetta og sló til. Við fórum upp í bú- stað nokkrum sinnum, gerðum til- raunir, sköpuðum, hentum og fíness- eruðum. Hægt og hægt varð allt skýrt og fallegt,“ segir Ólafur um samstarfsferli þeirra Kára. „Allt í þínum höndum“ Eins og áður segir er Gleymna óskin fyrsta bókin sem Ólafur semur og gefur út. Hann segir það þó hafa gengið nokkuð áreynslulaust fyrir sig að skrifa bókina, enda hafi hann verið kominn með meira en nóg efni þegar hann settist niður til að setja bókina saman. „Eins og svo oft þegar ég geri eitt- hvað var lítið sem ekkert takmark í þessu. Allt var til staðar í KeyWe, forriti sem ég hef verið að vinna að í fjögur ár og er hægt og rólega að finna sér leið inn í skóla landsins, Ég tók bara hratt út það sem ég þurfti út frá lykilorðum. Þetta snerist í rauninni meira um að smækka og raða saman en að bæta við.“ Spurður um hugmyndina að „gleymnu óskinni“, aðalpersónunni sem titill bókarinnar sækir nafn sitt í, segir Ólafur: „Hún er í raun bara samlagning goðsagna, ævintýra og minna eigin upplifana. Það er bara ein ósk að leika kómískan alvarleik. Þessi ósk er það eina sem er í gangi, magnaður tímalaus hrekkjalómur. Og til að skýra aðeins betur að hverju bókin er að ýja; hvíldu hugs- anir og lógík, finndu töfralampann og vittu hversu stór þú ert. Komdu svo aftur, hlæðu að þessu öllu sam- an, njóttu augnabliksins og töfranna og dreifðu fegurð í kringum þig – í tónum, orðum eða verkum.“ Aftan á kápu bókarinnar segir að Óli Stefáns bjóði upp á óvenjulega bjarta sýn á „veruleikinn“ svokall- aða. Spurður um þetta, og hvort ein- hver sérstök hugmynd ráði för við lestur bókarinnar, svarar Ólafur: „Bara að þetta er allt í þínum hönd- um. Bara allt saman. Veruleikurinn eins og ég kalla hann, eða „alvar- leikurinn“. Meira „við“ en við höldum „Kjarninn í sögunni er hinn svokall- aði tvísöngur hins eina. Óskin er allt og getur allt, nema að upplifa annað en sig sjálfa. Og ef enginn annar er, þá eru heldur engar óvæntar uppá- komur, faðmlög eða húmor.“ Hann nefnir í þessu dæmi kvik- myndina Cast Away. Í kvikmyndinni lék Tom Hanks strandaglóp á eyði- eyju sem býr sér til vin úr blakbolta og kallar Wilson. „Það er ein leið til að lýsa þessu ástandi. Þegar þú ert búinn að vera einn of lengi ferðu að búa þér til ýmislegt. Það er það sem óskin gerir. Þetta er kannski ekki svo alvarlegt eftir allt saman. Í rauninni er heimurinn kannski miklu meira „við“ en við höldum.“ Ólafur Stefánsson sendir frá sér sína fyrstu bók í dag og nefnir hana Gleymnu óskina. Hann segir að kjarni sögunnar sé tvísöngur hins eina. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Ólafur Stefánsson og Kári Gunnarsson settu Gleymnu óskina saman. Morgunblaðið/Hari 19.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 BÓKSALA 8.-14. ÁGÚST Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 SyndaflóðKristina Ohlsson 2 Sagas Of The IcelandersÝmsir höfundar 3 HeimsendirGuðmundur Steingrímsson 4 ÓttinnC.L. Taylor 5 Independent PeopleHalldór Laxness 6 Iceland in a BagÝmsir höfundar 7 Sumar í litla bakaríinuJenny Colgan 8 Iceland Wild at Heart Einar Guðmann/Gyða Henningsdóttir 9 Hözzlaðu eins og þú verslarLin Jansson 10 Mínus átján gráðurStefan Ahnhem 1 OriginDan Brown 2 Midnight LineLee Child 3 No Middle NameLee Child 4 NucleusRoy Clements 5 Sharp ObjectsGillian Flynn 6 People vs. Alex CrossJames Patterson 7 President is MissingBill Clinton 8 The MegSteve Alten 9 WidowsLynda La Plante 10 Look For MeLisa Gartner Allar bækur Erlendar bækur És las Mómó eftir Michael Ende, í íslenskri þýðingu Jórunnar Sigurð- ardóttur, í sumar með krökk- unum mínum, las hana upphátt fyrir þau. Það var ekki í fyrsta skipti sem við lásum hana. Það spunnust svo skemmtilegar um- ræður í kjölfarið um það hvað það sé að vera góður hlustandi. Þau veltu því mikið fyrir sér í framhaldinu og þegar við hittum fólk, vorum að tala við fólk, fóru þau að spá í það hvort viðkomandi hafi verið góður hlustandi eða hvort hann hafi bara viljað tala. Það var skemmtilegt að bæta því við pæl- ingarnar um tím- ann. Svo las ég The Girl Who Smiled Beads eftir Clem- antine Wamariya. Þetta er saga ungrar konu sem flúði frá Rúanda með sytsur sinni þegar hún var sex ára, Þetta er mjög mögnuð bók sem setur mann aðeins í spor þeirra sem þurfa að flýja sitt heimaland og fjölskyldu og allt, hvernig það breytir þeim og hvernig þau geta ekki farið til baka. ÉG ER AÐ LESA María Rán Guðjónsdóttir María Rán Guðjónsdóttir er bókaútgefandi. Hin fullkomnaþrennaVel samsett boost, einusinni á dag, eykur orkuna,kemur meira jafnvægi áblóðsykurinn. Candéa Byggir upp og kemur jafnvægi á þarma- flóruna. Öflugt fyrir ónæmiskerfði og vinnur á candéa sveppnum. Betri melting Aukin orka Öflugra ónæmiskerfi Meltingin og þarmaflóran er grunnur að góðri heilsu Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Digest Spectrum – einnig gegn fæðuóþoli • Styður meltingu á glúteini, laktósa, kaseini, próteini og baunum. • Hentar vel þeim sem glíma við ýmiskonar fæðuóþol. • Viðurkennt af Autism Hope Aliance. • Hentar allri fjölskyldunni, tekið rétt fyrir mat.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.