Jökull - 01.12.2003, Síða 65
Society report
Jarðfræðafélag Íslands
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárin 2002 og 2003
STJÓRNARSTARF
Fyrri hluta ársins 2003 störfuðu í stjórn félagsins
Ármann Höskuldsson, Íslenskum Rannsóknum ehf
(form.), Haraldur Auðunsson, Tækniháskóla Íslands
(varaform.), Hjörleifur Sveinbjörnsson, Veðurstofu
Íslands (gjaldkeri), Sigurður Sveinn Jónsson, Íslensk-
um Orkurannsóknum, ÍSOR (ritari), Grétar Ívarsson,
Orkuveitu Reykjavíkur, Jórunn Harðardóttir, Orku-
stofnun og Þorsteinn Þorsteinsson, Orkustofnun.
Umsjón með vefsíðu félagsins var í höndum Vig-
fúsar Eyjólfssonar á Veðurstofu Íslands. Seinni hluta
árs urðu mannaskipti í kjölfar aðalfundar. Úr stjórn
gekk Grétar Ívarsson og í hans stað kom Vigdís Harð-
ardóttir ÍSOR.
FÉLAGSSTARF
Störf félagsins voru með hefðbundnum hætti á árinu
2003. Aðalfundur var haldinn í júní. Tvær ráðstefnur
voru haldnar, að vori og hausti sem nánar verður kom-
ið að hér á eftir. Þrem erlendum jarðvísindamönnum
var boðið að halda fyrirlestra á vegum félagsins, en
einn þeirra forfallaðist á síðustu stundu. Annað fyrir-
lestrahald á vegum félagsins var í lágmarki, enda hef-
ur framboð á fyrirlestrum aukist til muna hin síðari
ár. Þar er helst að nefna fyrirlestraröð hjá Norrænu
eldfjallastöðinni, Orkustofnun, Náttúrufræðifélaginu,
á vegum Raunvísindastofnunar og hjá Náttúrufræði-
stofnun Íslands.
Jarðfræðafélagið, í samstarfi við sendiráð Frakk-
lands í Reykjavík, vann að stofnun sjóðs sem ætl-
að er að stuðla að auknum samskiptum íslenskra og
franskra vísindamanna. Sjóðurinn hlaut nafnið Jules
Verne í höfuð sagnaskáldsins franska er sendi sögu-
hetjur sínar í iður jarðar um Snæfellsjökul. Í tengslum
við fyrstu úthlutun bárust alls 23 umsóknir. Úthlutað
var úr sjóðnum í fyrsta skipti 19. júní 2003. Alls fóru
fjórir styrkir til verkefna á sviði jarðvísinda í þessari
úthlutun. Næst verður úthlutað á árinu 2004.
Samningur var gerður við Íslenska Málstöð með
það að markmiði að starfsmenn hennar sjái um að
halda til haga og gera aðgengilegt orðasafn í jarð-
fræði. Unnið verður að því að koma safninu á Netið
hjá ÍM þar sem þeir er þess óska geta ráðfært sig um
þýðingar á erlendum jarðfræðiheitum yfir á íslenska
tungu.
IAVCEI, í lok ársins hafði stjórn „International
Assosiation of Volcanology and Chemistry of the
Earths Interior“ samband við stjórn félagsins. Erind-
ið var að athuga hvort að áhugi væri á því hér á landi
að halda utan um aðalfund IAVCEI árið 2008. Stjórn
JFÍ tók vel í málaleitan þeirra og hefur hafið undirbún-
ingsvinnu vegna þessa.
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
Haustráðstefna 2002 var helguð 70 ára afmæli Guð-
mundar Sigvaldasonar jarðfræðings og var hún haldin
að Nesjavöllum 18 október 2002. Um var að ræða
heilsdagsráðstefnu sem lauk með hátíðarkvöldverði.
Þrem erlendum fyrirlesurum var boðið til ráðstefn-
unnar, en það voru þeir Claude Jaupart frá IPGP, París,
Haraldur Sigurðsson frá RHI, USA og Terry M Sew-
ard frá Sviss. Ráðstefnan tókst með miklum ágæt-
um. Styrktaraðilar voru Franska Sendiráðið í Reykja-
vík, Orkuveita Reykjavíkur og Norræna eldfjallastöð-
in. Undirbúningsnefnd skipuðu Stefán Arnórsson,
Sigurður Steinþórsson, Freysteinn Sigmundsson, Sig-
urður Sveinn Jónsson og Ármann Höskuldsson
Vorfundur Jarðfræðafélagsins 2003 var haldinn
síðasta vetrardag, eða 23 apríl, á Hótel Loftleiðum.
Fundurinn var heilsdagsfundur og tókst hann með
JÖKULL No. 53, 2003 63