Jökull - 01.12.2003, Qupperneq 72
Magnús T. Guðmundsson
endurbæta hann enn frekar á þessu ári. Dodginn var
seldur og mun í ellinni sinna fjárflutningum og öðrum
bústörfum austur á Jökuldal. Síðasta ferð hans fyr-
ir félagið var haustferðin á Vatnajökul þar sem hann
gegndi hlutverki sínu með prýði. Bílanefndin sér um
viðhald bílanna og hefur til þess aðstöðu í Eldshöfða.
Helstu verkefni bílsins á árinu voru ferðir félagsins
(Esjufjöll, vorferð, haustferð, þátttaka í borverkefni á
Vatnajökli í júní auk ferða á Langjökul vegna afkomu-
mælinga og borana). Nokkrar tekjur komu inn vegna
sumra verkefna en rekstrarkostnaður er þó mun hærri
eins og eðlilegt er því notkunin fellur að mestu til í
ferðum félagsins sjálfs.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð var haldin í Haukaheimilinu í Hafnarfirði
þann 16. nóvember. Gleðin hófst í nýrri verslun
66◦N í Garðabæ en þar bauð fyrirtækið upp á léttar
veigar auk þess sem fólki gafst kostur á að skoða úti-
vistarfatnað og annan varning. Hátíðina sóttu um 65
manns og voru allir á einu máli um að hún hefði tekist
með afbrigðum vel.
STOFNUN ÞJÓÐGARÐS Á VATNAJÖKLI
Eins og kunnugt er hefur ríkisstjórnin ákveðið að
stofna þjóðgarð sem nái yfir jökulhettu Vatnajökuls.
Undirbúningur er í gangi á vegum ríkisvaldsins og
nefndir starfandi. Félagið á ekki beina aðkomu að
þeirri vinnu en fulltrúar þess voru kallaðir á fund í
apríl til að ræða sjónarmið þess um ferðamennsku,
skála, aðstöðu og fleira. Þjóðgarðshugmyndin er
góðra gjalda verð en fyrir félagið er ekki allur mun-
ur á hvort aðstaða þess er innan Vatnajökulsþjóðgarðs
eða Skaftafellsþjóðgarðs eins og verið hefur í um 20
ár. Stjórnin mun fylgjast áfram með málinu, leggja
verndun Vatnajökuls lið eftir megni og gæta hags-
muna rannsókna og félagsins í þessu máli.
LOKAORÐ
Starfsemi Jöklarannsóknafélagsins er að mörgu leyti í
föstum skorðum. Félagið starfar eftir lögum sem það
hefur sett sér. Markmið félagsins koma fram í 2. grein
laganna en hún hljóðar svo: Markmið félagsins er að
stuðla að rannsóknum og ferðalögum á jöklum lands-
ins, gefa út tímaritið Jökul ásamt fréttabréfi, og gang-
ast fyrir fræðandi fyrirlestrum og myndasýningum.
Til að framfylgja þessum markmiðum hefur félagið
einkum beitt sér á þremur sviðum: (1) Standa fyrir
árlegum rannsóknaferðum á Vatnajökul auk annarra
styttri ferða, (2) Koma upp aðstöðu fyrir rannsóknir
og ferðalög á jöklum landsins með byggingu skála,
og (3) að gefa út tímaritið Jökul sem er hvortveggja í
senn alþjóðlegt vísindarit og félagsrit Jöklarannsókna-
félagsins. Í fjórða lagi eru svo fræðslufundirnir en
þeir hafa verið að jafnaði þrír á ári. Í meginatrið-
um hefur félaginu tekist vel að rækja markmið sín.
Það hefur verið vettvangur þar sem öflugir einstak-
lingar hafa fundið farveg fyrir starfsorku og fram-
kvæmdagleði eins og skálaeignin ber vott um, auk
þróttmikils framlags sjálfboðaliða í vísindaleiðöngr-
um. Félagið mun halda áfram á þeirri braut sem það
hefur markað sér. Uppi eru hugmyndir um myndar-
lega rafvæðingu Grímsfjalls en handbært fjármagn og
styrkir munu ráða hversu langt verður hægt að fara í
því efni á þessu ári. Ritstjórar Jökuls hafa metnaðar-
fullar áætlanir um að styrkja ritið sem alþjóðlegt vís-
indarit og verið er að kanna hvort framkvæmanlegt sé
að gera það að einhverju leyti aðgengilegt á netinu.
Það gæti aukið mjög hróður þess og útbreiðslu. Þar
þarf þó að gæta þess að fjárhag félagsins verði ekki
stefnt í hættu því það á mikið undir því að félagsgjöld
og áskriftir skili sér. Einnig hefur verið rætt um að efla
þátttöku félagsins í ráðstefnuhaldi fyrir fræðimenn og
nýta slíkar ráðstefnur til að bjóða upp á áhugavert efni
á fundum fyrir hinn almenna félagsmann. Tækifærin
eru mörg og félagið á alla möguleika á að láta að sér
kveða í framtíðinni.
Í lokin vil ég nota tækifærið og þakka Ástvaldi
Guðmundssyni fyrir mikil og farsæl störf í stjórn fé-
lagsins. Hann hefur nú ákveðið að gefa ekki kost á sér
aftur til stjórnarsetu en hann hefur setið í varastjórn
og stjórn frá 1981 eða í 22 ár. Valdi hefur beitt sér
í skálamálum, verið lykilmaður í ferðum félagsins og
hélt utanum útleigu skálanna í mörg ár. Að auki hef-
ur hann verið manna lagnastur við að leysa úr deilu-
málum. Við sjáum mjög eftir Ástvaldi úr stjórninni
en virðum ákvörðun hans. Ljósi punkturinn í málinu
er sá að Valdi mun áfram starfa í skálanefnd og við
treystum því að við megum áfram leita til hans þegar
okkur liggur mikið við.
Magnús Tumi Guðmundsson
70 JÖKULL No. 53, 2003